Þjóðviljinn - 23.12.1987, Síða 1

Þjóðviljinn - 23.12.1987, Síða 1
Samningaviðrœður Kippt í spottann? Samningaviðrœður verkalýðsfélagsins Jökuls og Kaupfélags A-Skaftfellinga um útfœrslufastlaunasamninga út um þúfur. Björn Grétar: Áttum von á að samningar tœkjust. Viðsemjendur sneru við blaðinu. Hermann Hansson: Vildum aldrei semja nema aðfenginni tryggingufyrir betri afkomufiskvinnslunnar Samningaviðræðum er lokið án árangurs og ég tel það mjög miður. Viðræðurnar hafa verið afar vinsamlegar og við áttum von á að samningar tækjust, en í fyrradag sneru viðsemjendur okkar við blaðinu og ákváðu að semja ekki, sagði Björn Grétar Sveinsson formaður verkalýðsfé- lagsins Jökuls á Höfn í Hornafirði í samtali við Þjóðviljann í gær en fram að fundi Kaupfclagsstjórn- ar A-Skaftfellinga í fyrradag höfðu fulitrúar verkalýðsfé- lagsins verið vongóðir um árang- ur I gerð fastlaunasamninga fyrir fiskvinnslufólk sem samningasað- ilar hafa verið að útfæra á síðustu vikum. Björn Grétar sagði að þær hug- myndir sem ræddar voru, hafi verið tillögur til leiðréttingar á launum fiskvinnslufólks. Þærhafi ekki falið í sér grunnkaups- hækkun heldur starfsaldurs- hækkanir og átti hækkunin að verða mest hjá starfsfólki með 15 ára starfsreynslu hjá sama at- vinnurekanda, eða 25% miðað við byrjunarlaun. Samningnum var ætlað að gilda frá áramótum fram í febrúarlok. „Með þessari skammtímalausn töldum við að hægt yrði að flýta fyrir heildarkjarasamningum, en viðsemjendur okkar treystu sér ekki til að taka fyrsta skrefið," sagði Björn Grétar. Þá sagði Björn Grétar að hann sæi fram á stórátök á vinnumark- aðnum eftir áramót og hann viidi hvetja verkafólk til þess að vera viðbúið slíkum átökum. Aðspurður neitaði Hermann Hansson kaupfélagsstjóri A- Skaftfellinga því að Vinnumála- sambandið eða Vinnuveitendas- ambandið hafi kippt í spottann á síðustu stundu, en miðað við væntingar verkalýðsfélagsins um niðurstöður samningsviðræðna er ekki fráleitt að álykta að svo hafi verið. „Það kemur mér á óvart hversu bjartsýnir viðsemj- endur hafa verið. Við höfum all- an tímann sagt þeim að samning- ar kæmu ekki til greina nema trygging fengist fyrir því að tekjur fiskvinnslunnar færu batnandi," sagði Hermann. -K.Ól. 1 dagur ti! jóla Fjárlög Fiskur niður varalitur upp Söluskattur áfiski endurgreiddur um 15%. Vörugjald lagtá varalit ogsnyrtivörur Ríkisstjórnin hefur ákveðið að greiða niður söluskatt á fiski um 15%, þannig að fiskur muni hækka um 10% eftir áramót í stað 25%. Ákveðið hefur verið að verja 160 mi|jónum til þessa á fjárlögum. Áætlað er að með því að leggja vörugjald á varaliti og snyrti- vörur „einkum fyrir hið veikara kynið,“ einsog Sighvatur Björg- vinsson, formaður fjárveiting- arnefndar orðaði það þegar hann mælti fyrir breytingartillögum nefndarinnar við fjárlagafrum- varpið við þriðju umræðu á Al- þingi í gær megi afla 150 miljóna til þessa. Sighvatur rökstuddi vörugjald- ið með því að benda á að erlendir merkjaframleiðendur myndu aldrei una því að verð á þessum vörum lækkaði um 47% á lslandi, heldur myndu þeir hækka innkaupsverðið erlendis og því hefði þetta verið ákveðið. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans þótti það hinsvegar afar slæmt áróðurslega að varalitir lækkuðu um 47% samtímis og fiskur hækkaði um 25% og því greip ríkisstjórnin til þessa ráðs. Menn hrista hinsvegar hausinn yfir því hvernig það samræmist einföldun á söluskattskerfinu með því að leggja fyrst 25% sölu- skatt á fisk og niðurgreiða hann síðan um 15% og segja þetta nán- ast óframkvæmanlegt. -Sáf Sjá nánar umfjárlög og aðrar þingýréttir á bls. 3 Allt trá 1960 hefur fæðingum á íslandi farið fækkandi. Er þróunin að snúast við? Landspítalinn Fæðingum fjölgar um 8% Fjölgunfœðinga á Landspítalanum gœti bent til þess aðfæðingar á landinu öllu verðifleiri en á síðustu árum Fæðingum á Landspítalanum hefur fjölgað um 8% á árinu. Stór hluti fæðinga á landinu fer fram á Landspítalanum og gæti þessi fjölgun því bent til þess að fæðingar í ár verði eitthvað fleiri en undanfarin ár. Fæðingar á Landspítalanum í ár eru 2306, miðað við bráða- birgðatölu fyrir desember, en í fyrra voru þær 2139. Fæðingum þar hefur því fjölgað um tæp 8%. Ekki virðist þó sama þróun eiga sér stað annars staðar á landinu en Þjóðviljinn hafði samband við nokkur sjúkrahús úti á landi og þar var útliti fyrir að fjöldi fæð- inga í ár yrði mjög svipaður og á síðasta ári. Allt frá árinu 1960 hefur fæð- ingum á íslandi farið fækkandi en þá fæddust tæplega 5000 böm. Á árunum 1985 og 1986 vom fæð- ingar orðnar innan við 4000. í framtíðarspá forsætisráðuneytis- ins kemur fram að ef fæðingum heldur áfram að fækka með sama hraða og undanfarinn áratug verði fæðingar á árinu 2000 að- eins 3400. En eins og danski háð- fuglinn Storm P. segir: „það er erfitt að spá, sérstaklega um framtíðina“ og á það kannski einkanlega við um hegðun mannsins í endurframleiðslunni sjálfri. -K.Ól. OECD Góðærinu lokið OECD (Efnahags- og framfar- astofnun Evrópu) sér merki þess að góðæri, sem hófst á íslandi 1984 og hefur byggst á auknum fiskveiðum, sé nú lokið. Bráða- birgðaspá gerir ráð fyrir 3% aukningu á landsframleiðslu í stað 4,75% aukningar á þessu ári. Samkvæmt Reuter-skeyti em þetta helstu niðurstöður um ís- land í skýrslu OECD um efna- hagshorfur á Norðurlöndum á næsta ári. Höfundar skýrslunnar taka fram að hún sé samin áður en búið er að gera grein fyrir nýjustu aðgerðum stjórnvalda í efna- hagsmálum og því sé aðeins um að ræða fyrstu drög að spá. En líkur séu á að hagvöxtur hægi á sér.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.