Þjóðviljinn - 23.12.1987, Page 15
ÍÞRÓTTIR
Handbolti
Alfreð
tilKR
Alfreð Gíslason, leikmaður
með Essen í Bundesligunni í V-
þýskalandi, hefur ákveðið að
koma heim og leika með KR
næsta vetur.
Alfreð Gíslason hefur leikið í
fimm ár í Bundesligunni og tvisv-
ar orðið þýskur meistari með liði
sínu.
Alfreð lék með KR áður en
hann hélt út og mun að sjálfsögðu
vera KR-liðinu gífurlegur liðs-
styrkur. -Ibe
Evrópukeppni
Naumt hjá
Portúgal
Portúgal sigraði Möltu, 1-0, í
síðasta leiknum í 2. riðli Evróp-
ukeppninnar í knattspyrnu um
helgina.
Leikurinn var slakur, enda
voru ítalir löngu búnir að tryggja
sér sæti í úrslitakeppninni.
Lið Portúgal, sem var að mestu
skipað leikmönnum úr Olympíul-
iðinu, tryggði sér sigur með
marki frá Frederico á 74. mínútu.
Lokastaðan í 2. riðli:
ftalfa.........8 6 1 1 16-4 13
Svíþjóö........8 4 2 2 12-5 10
Portúgal.......8 2 4 2 6-8 8
Sviss..........8 1 5 2 9-9 7
Malta..........8 0 2 6 4-21 2
-Ibe/Reuter
Frjálsar íþróttir
íslandsmet
í hástökki
Gunnlaugur Grettisson ÍR setti
nú fyrir skömmu íslandsmet í
hástökki innanhúss og bætti 25
ára gamait met Jóns Þ. Ólafs-
sonar.
Gunnlaugur stökk 2.12 metra
og bætti gamla metið um einn
sentimetra. _ih.
Frakkland
Þjálfarinn
rekinn
Þjálfari franska l.deildar liðsins
Paris Saint Germain, Eric Momba-
erts, var rekinn frá liðinu á laugar-
dag. Þá var hann aðeins búinn að
starfa í átta vikur hjá félaginu. Lið-
ið hafði leikið níu lciki undir stjórn
Mombaerts en aðeins unnið einn
leik.
Francois Borelli, forseti félagsins
sagði að nýr þjálfari yrði ráðinn nú
á næstu dögum. „Paris SG þarfnast
alvöru læknis til þess að ná okkur úr
þeim rústum sem við erum nú í,“
sagði Borelli. Paris SG hefur haft
12 þjálfara eða liðsstjómendur síð-
an félagið var stofnað 1973.
-ih/Reuter
Handbolti
Haldið til
Danmerioir
íslenska landsliðið í hand-
knattleik fær ekki langt jólafrí.
Annan í jólum halda landslið-
mennirnir til Danmerkur þar sem
ísland tekur þátt í fjögurra þjóða
móti.
Auk íslendinga verða þar Dan-
mörk, Sviss og Frakkland.
Næsta verkefni eftir Danmerk-
urförina er World Cup í Svíþjóð,
en þar mæta til leiks átta sterk-
ustu þjóðir heims.
-Ibe
Atli Hilmarsson lyftir sér upp og skorar sitt eina mark í leiknum. Mynd: Sig.
Handbolti
Hraðinn of mikill
Fimm marka tap fyrir Suður-Kóreu í síðari landsleiknum
íslendingum tókst ekki að ráða
við hraða hinna smávöxnu Suður-
Kóreumanna í síðari landsleik
þjóðanna í gær. Eftir glæsilegan ís-
lenskan sigur í fyrrakvöld náðu
Kóreumenn að svara fyrir sig og
sigruðu, 28-33. Þó var leikurinn
ekki ólíkur þeim fyrri, en nú voru
það Suður-Kóreumenn sem höfðu
heppnina með sér, en sigur þeirra
var sanngjarn þegar á heildina er
litið.
,4 gær fóru strákarnir í leikinn til
að sigra og með einbeitinguna í lagi.
í kvöld var það hinsvegar svo að
einbeitinguna vantaði, en hugsun-
arleysið var algjört,“ sagði Bogdan
Kowalczyk landsliðsþjálfari eftir
leikinn í gær. „Okkur gekk illa að
stöðva Kang, enda eru svona leik-
menn ekki á hverju strái. Við
reyndum allar gerðir varna og flöt
vörn reyndist best, en ekki nógu vel.
Slæm byrjun
Það byrjaði illa í gær og eftir fjór-
ar mínútur var staðan 0-3, Kóreu-
mönnum í vil. íslendingar náðu að
saxa á forskotið, en þegar fyrri hálf-
leikur var tæplega hálfnaður var
staðan 5-7. Þá komu fimm mörk í
röð frá Kóreu, tvö þeirra voru svo-
kölluð „sirkusmörk“. Munurinn
því orðinn sjö mörk og útlitið ekki
bjart.
Þegar staðan var 6-13 kom Vald-
imar Grímsson inná. Hann fór á
kostum og skoraði sex af næstu sjö
mörkum Islands. Stóð sig ótrúlega
vel og nýtti færi sín til fullnustu. í
hálfleik var staðan 13-16, Kóreu-
mönnum í vil.
Alltaf undir
Guðmundur Hrafnkelsson lék í
markinu í síðari hálfleik, en það
vakti nokkra athygli að hann skyldi
ekki byrja í markinu eftir góða
frammistöðu í fyrri leiknum. „Þó
að leikmaður eigi góðan leik er ekki
þarmeð sagt að hann sé í byrjunar-
liðinu,“ sagði Bogdan Kowalczyk
eftir leikinn. „Einar er ekki í réttu
formi og hann þarf að spila. Þetta
var aðeins æflngaleikur, en hefði
þetta verið á Olympíuleikunum þá
hefði Guðmundur líklega haflð
leikinn. Annars voru þeir svipaðir
og ég held að þetta hafl ekki breytt
neinu.“
Síðari hálfleikur byrjaði rólega,
það liðu tæpar sjö mínútur þartil
Suður-Kóreumenn skoruðu sitt
fyrsta mark. Guðmundur varði
mjög vel, en íslendingum tókst
ekki að nýta færin nógu vel. Mun-
urinn var þó aðeins tvö mörk, 16-18
og íslendingar virtust líklegir til að
jafna. Þá kom slæmur kafli og þrjú
mörk í röð frá Kóreumönnum sem
breyttu stöðunni í 16-21. Þessi
munur hélst lengst af í síðari hálf-
leik, en íslendingum tókst að
minnka muninn í þrjú mörk, 24-27.
Þá komu aftur þrjú mörk í röð frá
Kóreumönnum og þá má segja að
úrslitin hafi verið ráðin.
„Það var bara þannig að í gær
var sóknarleikurinn frábær og við
vissum að við myndum ekki ná slík-
um leik aftur. Það lá því fyrir að
bæta varnarleikinn, en það tókst
ekki,“ sagði Þorgils Óttar Mathie-
sen, fyrirliði íslenska landsliðsins
eftir leikinn. „Okkur gekk illa.
Vörnin var slök og sóknarleikurinn
óöruggur. Það voru aðeins tveir
leikmenn sem stóðu sig vel í liðinu
Valdimar Grímsson og Guðmund-
ur Hrafnkelsson.“
íslenska liðið átti frekar slakan
dag. Það var erfitt fyrir liðið að elt-
ast allan tímann við 4-5 marka for-
skot og hvorki vörnin né sóknar-
leikurinn voru sérlega
sannfærandi. íslenska liðið lék nær
allar gerðir af vörnum, en ekkert
dugði gegn skyttum Kóreumanna
og í sókninni var mikið um klaufa-
leg mistök og mörg dauðafæri fóru í
súginn.
Valdimar Grímsson stóð þó fyrir
sínu og átti mjög góðan leik og
Guðmundur Hrafnkelsson varði
vel, 8 skot þaraf eitt víti. Einar Þor-
varðarson varði sex skot, þaraf eitt
vítakast.
„Þetta var í raun svipaður leikur
og sá fyrri. Málið var bara að þeir
höfðu heppnina með sér,“ sagði
Valdimar Grímsson eftir leikinn.
„Ég er ekki ánægður með minn
leik, enda unnum við ekki sigur og
það er alltaf jafn sárt að tapa, sama
hvað maður skorar mörg mörk.“
í liði Suður-Kóreu var Kang allt í
öliu. Ótrúlega góður leikmaður.
Þrátt fyrir að vera aðeins 180 sent-
imetrar fór hann létt með að stök-
kva yfir stærstu mennina í vörn fs-
lands.
Úrkoman úr þessum leikjum er
ekki svo slæm. Einn sigur og eitt
tap, en leikirnir hafa verið hin besta
skemmtun fyrir áhorfendur.
-Ibe
' Laugardalshöll 22. desember
Ísland-Suður-Kóreu 28-33 (13-16)
0-3,3-5,5-7,5-7,6-13,10-15,13-16,16-18,16-21,18-23,21-26,23-26,
24-27, 24-30, 26-32, 28-33.
Mörk íslands: Valdimar Grímsson 8, Sigurður Gunnarsson 5, Kristján
Arason 4(1 v), Þorgils Óttar Mathiesen 4, Jakob Sigurðsson 2, Guðmundur
Guðmundsson 1, Geir Sveinsson 1, Atli Hilmarsson 1 og Júlíus Jónasson
1.
Mörk Suður-Kóreu: Jae-Won Kang 10, Sang-Hyo Lee 8(1 v), Jae-Hwan
Kim 6, Young-Dae Park 4, Suk-Chang Koh 2, Young-Suk Sin 2 og Jin-Suk
Lim 1.
Dómarar: Ingve Walstad og Ove Olsen frá Noregi: - mjög slakir.
Maður lelksins: Jae-Won Kang, Suður Kóreu.