Þjóðviljinn - 23.12.1987, Qupperneq 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þjómnuiNN
OO -vAr 1007 OQQ IAIiiHI/iA AO Arnnnni i
Mlðvikudagur 23. desember 1987 288. tölublað 52. örgangur
Þjónusta
íþínaþágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Sambandið
Rökleysa hjá ráöheira
Synjun á tilboðinu í Útvegsbankann afpólitískum
toga. Meðferð stjórnvalda á málinu ámœlisverð. SIS
bíður átekta
Samband íslenskra samvinnu-
félaga segir að raunveruleg
ástæða fyrir synjun Jóns Sigurðs-
sonar viðskiptaráðherra á tilboði
.SÍS í hlutabréf Útvegsbankans sé
af pólitískum toga og að þær
ástæður sem ráherra færi fyrir
synjun sinni, að engin
fullnægjandi tilboð hafi borist í
bréfm, eigi ekki við rök að styðj-
ast.
í yfirlýsingu sem Sambandið
hefur sent frá sér segir ma. að
synjun ráðherra eigi rót sína að
rekja til þess pólitíska uppnáms
sem varð meðal þeirra, sem fram
að því að Sambandið lagði fram
boð sitt, höfðu ekki sýnt hluta-
bréfakaupum neinn áhuga, en
vildu fyrir hvern mún koma í veg
fyrir að viðskiptaráðherra seldi
Sambandinu og samstarfsfyrir-
tækjum þess hlutabréf ríkissjóðs í
bankanum.
Forráðamenn Sambandsins
segja í yfirlýsingunni að þeim hafi
verið ljós sá vandi sem viðskipta-
ráðherra rataði í vegna þessa
upphlaups og því fallist á ósk
hans um óformlegar könnunar-
viðræður um ráðstöfun á hluta-
bréfaeign ríkissjóðs, sem leiddu
ekki til neins.
- Við lítum svo á, að meðferð
stjórnvalda á þessu máli hljóti að
teljast ámælisverð og ekki í sam-
ræmi við góða viðskiptahætti,
segja Sambandsmenn og lýsa því
yfir að þeir ætli ekki að efna til
frekari deilna um þetta mál en
bíða átekta eftir frekari aðgerð-
um stjómvalda um endurskipu-
lagningu bankakerfisins.
-4g-
Útvegsbankinn
Jólaskák
Síðasta mót Jóhanns fyrir
einvígið
Jóiahraðskákmót Útvegsbank-
ans verður haldið á sunnudaginn.
Þetta er í sjöunda sinn sem mótið
er haldið.
Mótið hefst kl. 14 í afgreiðslu-
sal bankans og eru keppendur 18
talsins og tefla allir við alla, alis
17 umferðir. íslensku stór-
meistararnir láta sig ekki vanta
og er sérstök ástæða til að fylgjast
með Jóhanni Hjartarsyni sem að
öllum líkindum teflir þarna í síð-
asta skipti opinberlega áður en
hann heldur til einvígis við Viktor
Kortsnoj.
Öllum skákáhugamönnum
gefst kostur á að fylgjast með
keppninni.