Þjóðviljinn - 06.01.1988, Page 2
"SPURNINGIN™
Trúir þú á tilvist álfa?
Helena Stefánsdóttir,
nemi:
Já, ég trúi því aö þeir séu til.
Raunar hef ég aldrei beinlínis
orðið vör viö þá en þó kannski
næstum því.
Margrét Orradóttir,
starfar hjá íslenskri getspá:
Ég trúi á blómálfa því ég hef séð
þá á blómunum.
Þór Hreinsson,
nemi:
Bæði og. Maður trúir svo sem á
ýmislegt. Annars þarf ég helst að
sjá til þess að trúa og ég hef
aldrei séð álfa.
Örn Helgason,
póstmaöur:
Nei, ég hef ekki nokkra trú á að
þeir séu til.
Björn Björnsson,
eftirlaunaþegi
Nei, ekki svona í venjulegri merk-
ingu. Hinsvegar er náttúrlega til
viss manngerð, sem stundum er
kölluö álfar.
FRÉTTIR
Smáþorskur
Mikið áhyggjuefni
Hafrannsóknastofnun: 101 skyndilokunífyrra. 74 árið!986.1955
veiddustl31 milljónþorska. Meðalþyngd4,l kíló. Aflinn 538þúsund
tonn. Svipað magn veiddistífyrra, enmeðalþyngd2,9 kíló ogaflinn
aðeins 380 þúsund tonn
Okkur er það að sjálfsögðu
mikið áhyggjuefni hve mikið
er af smáþorski í afla togara á
miðunum umhverfis landið og
hver þróunin hefur verið á síð-
ustu áratugum í þeim efnum.
Enda var það svo að skyndilokan-
ir urðu alls 101 í fyrra sem er
algjört met. Árið 1986 urðu þær
aðeins 74 sem einnig var met og
þótti þá mörgum nóg um, segir
Sigfús A. Schopka, fiskifræðing-
ur hjá Hafrannsóknastofnun við
Þjóðviljann í gær.
Samkvæmt upplýsingum hjá
Hafrannsóknastofnun hefur
þyngd þorsksins sífellt farið
minnkandi á síðustu áratugum.
Sem dæmi má nefna að árið 1955
var meðalþyngd þorsksins, sem
veiddist hér við land um 4,1 kíló.
Þá veiddust 131 milljón þorskar
sem vigtuðu alls 538 tonn. í fyrra
veiddust jafn margir þo9rskar og
fyrir rúmum þrjátíu árum en þeir
voru að meðaltali aðeins um 2,9
kíló og samtals varð tonnafjöld-
inn aðeins liðlega 380 þúsund
tonn. Mismunurinn er hvorki
meiri né minni en 158 þúsund
tonn sem einungis er tilkominn
vegna þess að þorskurinn er
miklu léttari en áður var, þó svo
að sami þorskafjöldinn sé
veiddur. Sé mismunurinn
reiknaður í afurðaverðmæti og
reiknað með að hægt sé að fá um
50 krónur fyrir kílóið af þorsk-
inum, höfum við tapað nærri 7,9
milljörðum króna.
Sífellt léttari þorskur gerir það
að verkum að veiða þarf alltaf
fleiri og fleiri þorska til þess að-
eins að ná svipaðri tonnatölu og
áður var. Það kemur fram í enn
meiri sókn í þorskstofninn og
samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskifélags íslands fyrir nýliðið ár
reyndist þorskaflinn vera 15 þús-
und tonnum meiri en árið á
undan. - grh
C'
X
4T
Happdrœtti Þjóðviljans
Átak fyrir
uppbyggingu
Lokaskilfyrir 15. janúar. Selma Kristjáns-
dóttir: Öflug uppbygging og endurnýjun á
tœkjabúnaði blaðsins
■ Það er ekki að heyra annað að Lynghálsi 9, norðan við Ar-
Selma Kristjánsdóttir umsjónarmaður happdrættis Þjóðviljans: Brýnt að gera
skil fyrir miðjan mánuðinn. Mynd-Sig.
en góð viðbrögð frá stuðnings-
mönnum og velunnurum Þjóð-
viljans. Innheimta er nú í fuilum
gangi hjá umboðsmönnum um
alit land og ég vii brýna fyrir fólki
að tryggja full skil fyrir 15. janú-
ar, sagði Selma Kristjánsdóttir
umsjónarmaður Happdrættis
Þjóðviljans í samtali við blaðið.
Dregið verður í happdrættinu
þann 15. n.k. og glæsilegir vinn-
ingar í boði eins og jafnan áður.
Meðal vinninga eru bifreið, tölv-
ur, ferðlög, húsbúnaður, bækur
og fleira.
Að sögn Selmu geta þeir sem
ekki hafa fengið senda miða heim
eða verið rukkaðir, gert skil hjá
umboðsmönnum, en listi yfir þá
er birtur í Þjóðviljanum, á skrif-
stofu blaðsins, Síðumúla 6 eða
skrifstofum Alþýðubandalagsins
Hverfisgötu 105.
Fyrir dyrum standa miklar
breytingar á högum Þjóðviljans,
en fest hafa verið kaup á nýju
húsnæði fyrir starfsemi blaðsins
bæjarhverfið. Blaðaprent flytur
starfsemi sína þangað á næstunni
en Þjóðviljinn flytur í nýja hús-
næðið væntanlega á síðari hluta
þessa árs.
Að sögn Ragnars Árnasonar
formanns Útgáfufélags Þjóðvilj-
ans er jafnframt stefnt að því að
fjárfesta í samvinnu við hin
Blaðaprentsblöðin í nýjasta
tæknibúnaði á prentsviðinu. -
Þetta eru nauðsynlegar en dýrar
fjárfestingar en ávinningurinn
mun skila sér þegar frá líður. Við
treystum því sem fyrr á stuðning
velunnarra Þjóðviljans við að
styrkja búnað og um leið stöðu
blaðsins, sagði Ragnar.
-lg-
Fœrðin
Má heita góð um allt land
Hálka er mikil á vegum
Færð á vegum má nú yfirleitt
heita góð og í gær voru
hreinsaðir þeir vegir, sem ófærir
urðu, að því er Vegagerðin tjáði
blaðinu.
Allmikinn snjó setti niður á
Norðausturlandi og raunar einn-
ig á Vestfjörðum, í byrjun kulda-
kastsins, sem nú gengur yfir. í
gær var unnið að því að hreinsa
vegi austur frá Akureyri og yfir
Hálsana til Patreksfjarðar. Fært
var þá orðið til Siglufjarðar og
fyrir Ólafsfjarðarmúla. Snjór er
því naumast til fyrirstöðu á veg-
um, eins og sakir standa, en hins-
vegar er víða mikil hálka og þá er
jafnan fyllstu varúðar þörf við ak-
sturinn.
- mhg
Bessastaðir
Nefnd um
endurbætur
Forsætisráðherra hefur skipað
nefnd til þess að gera tillögur til
forsætisráðuneytisins um endur-
bætur og framtíðaruppbyggingu
forsetasetursins á Bessastöðum.
Formaður nefndarinnar er
Matthías Á. Mathiesen, sam-
gönguráðherra, og með honum í
nefndinni eiga sæti Kjartan Jó-
hannsson, alþingismaður,
Kornelíus Sigmundsson, forset-
aritari, Helga Jónsdóttir, aðstoð-
armaður utanrikisráðherra,
Leifur Blumenstein, bygginga-
fræðingur og Guðmundur Jóns-
son, húsasmíðameistari.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 6. janúar 1988