Þjóðviljinn - 06.01.1988, Blaðsíða 3
Kvótinn
Hagsmuna-
aðilar í
hár saman
Fjögur stéttarfélög yf-
irmanna áfiski-
skipum mótmœla
harðlega vinnu-
brögðum Alþingis
„Við getum alls ekki liðið það
að Alþingi ætli sér að hygla smá-
bátaeigendum á kostnað annarra
hópa sem eiga ekki síður allt sitt
undir afkomunni á sjónum. Ef
svo fer verður einungis minna til
skiptanna fyrir hina og það fínnst
okkur vera forkastanleg vinnu-
brögð“, segir Helgi Laxdal, for-
maður Vélstjórafélags íslands í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Um áramótin sendu fjögur
stéttarfélög yfirmanna á fiski-
skipum, það er Vélstjórafélag ís-
lands, Skipstjóra- og Stýri-
mannafélagið Sindri á Austur-
landi, Skipstjóra- og Stýrimanna-
félagið Aldan í Reykjavík og Vél-
stjórafélag Vestmannaeyja, frá
sér harðorða ályktun þar sem
vinnubrögðum Alþingis er mót-
mælt að hafa ekki samþykkt
kvótafrumvarp ríkisstjórnar-
innar fyrir áramót. Jafnframt
mótmæla félögin því að smábáta-
eigendum verði færðar veiði-
heimildir umfram aflareynslu
viðmiðunaráranna. í ályktun fé-
laganna segir að slík stjórnun
skapi óréttlæti og óeiningu meðal
þeirra sem eftir verða að starfa.
Örn Pálsson, framkvæmda-
stjóri Landsambands smábáta-
eigenda, sagði aðspurður um
þessa ályktun stéttarfélaganna,
að þarna væri á ferðinni „handa-
uppréttingarliðið", eins og hann
orðaði það. Örn sagðist vilja vísa
allri ályktuninni til föðurhúsanna
eins og hún legði sig. Hann sagði
að það væri mesta firra að halda
því fram að smábátaeigendur
væru að fara fram á eitthvað
meira en þeim bæri. Sagði hann
að það sem nú lægi fyrir þinginu
væri mjög mikil skerðing á hlut
smábáta í þorskaflanum, og einn-
ig að fjölga banndögunum, úr 66
eins og var á síðasta ári í 79.
- grh
FRETTIR
Forstjóralaun
Um 200.000 á mánuði
Forstjórar banka ogfjármálastofnanaforstjóra hœstir
í launum. Það opinbera borgar verst
Forstjórar höfðu að meðaltali
190.000 króna mánaðarlaun í
októbermánuði á síðasta ári. For-
stjórar í störfum hjá ríki eru sýnu
lægra launaðir en stallbræður
þeirra hjá einkaaðilum. For-
stjórar hjá því opinbera þágu að
meðaltali 153.000 í iaun, meðan
forstjórar á hinum almenna vinn-
umarkaði eins og það er nefnt,
báru að meðaltali 192.000 úr být-
um. Allra forstjóra fengsælastir
voru þó forsvarsmenn fjármála-
stofnana og banka, en meðallaun
þeirra námu litlum 200.000 krón-
um.
Þessar upplýsingar koma fram
í nýlegu fréttabréfi Félags við-
skiptafræðinga og hagfræðinga
og eru forsmekkurinn að því sem
koma skal er endanlegar niður-
stöður verða gerðar lýðnum
heyrin kunnar úr launakönnun
sem félagið gekkst fyrir í október
á sl. ári meðal félagsmanna sinna.
í fréttabréfinu kemur fram að
yfirvinna, unnin og óunnin, sem
og hvers kyns sporslur, eru
óverulegur hluti af launum for-
stjóranna. Af 190.000 króna
meðalmánaðarlaunum forstjóra
eru 11.000 vegna yfirvinnu, 2.961
vegna aukastarfa, tæp 12.000
vegna ómældrar yfirvinnu og tæp
18.000 vegna hlunninda.
Til samnburðar má geta þess
að í könnuninni kemur fram að af
109.000 króna meðalmánaðar-
laun kennara í framhaldsskólum
Nýr íslenskur söngleikur
Sunnudaginn 10. janúar kl. 20.00 frumsýnir
Leikfélag Reykjavíkur söngleikinn „Síldin er
komin“ eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur með
tónlist eftir Valgeir Guðjónsson. Leikstjóri sýn-
ingarinnar er Þórunn Sigurðardóttir og meðal
leikenda eru þau Sigrún Edda Björnsdóttir, Jón
Sigurbjörnsson og Guðrún Ásmundsdóttir sem
hér sjást í hlutverkum sínum. Mynd - Sig.
Bankastjórar
Helmingaskiptin á hreinu
✓
A 35 árum hafa 8þingmenn orðið bankastjórar ríkisbanka. Allir úr röðum
Sjálfstœðis- og Framsóknarflokks. Flestir hafa gegnt tveimur störfum samtímis.
Þingmennska stökkpallur í bankastjórastöður? Sverrir Hermannsson og Kjartan
Jóhannsson efstir á biðlista
g ankastjórastöður
í ríkis-
bönkunum hafa lengi verið
með eftirsóknarverðari hnossum
sem ýmsir þingmcnn hafa getað
hugsað sér að sinna jafnhliða
þingsetunni eða sem lifibrauð
eftir að af þingsetu er látið. Nú
síðast hafa Sverrir Hermannsson
og Kjartan Jóhannsson verið
nefndir sem vonbiðlar banka-
stjórastóla sem losna á næstunni
eða kunna að losna. Fullyrt er að
samkomulag hafí orðið með ríkis-
stjórnarflokkunum að Sverrir fái
stól í Landsbankanum og Kjartan
f Búnaðarbankanum.
Jafnvel þótt ýmsir bankamenn
og stjórnmálaflokkar hafi gagn-
rýnt þessa skipan mála á undan-
förnum árum og bent á að eðli-
legra sé að taka tilit til faglegra
sjónarmiða við ráðningu banka-
stjóra en að bankastjórn gangi í
pólitískar erfðir, er ljóst að á und-
anförnum áratugum hafa þing-
flokkar Sjálfstæðisflokks og Fra-
msóknar ekki verið sama sinnis
og neytt valdastöðu sinnar og út-
býtt banakstjórastólunum sér og
sínum til handa.
Frá því á sjötta áratugnum hafa
alls átta alþingismenn hreppt
bankastjórastöður í ríkisbönkun-
um, - flestir meðan þeir voru enn
á þingi. Það er ekki svo lítið þegar
þess er gætt að ráðning í embætti
bankastóra ríkisbankanna hefur
nánast jafngilt æviráðningu.
Athyglisvert er að allir þessara
átta þing-bankastjóra koma úr
röðum Sjálfstæðis- og Framsókn-
arflokksins. Sjálfstæðisflokkur-
inn ber þó höfuð og herðar yfir
Framsókn í þessu tilliti. Alls hafa
sex sjálfstæðisþingmenn sest í
bankastjórastóla ríkisbankanna
síðastliðin 35 ár, en á sama tíma
hafa bankastjórar úr þingmanna-
liði Framsóknarflokksins verið
tveir talsins.
Úr þingliðinu voru síðast
ráðnir Geir Hallgrímsson og
Tómas Árnason sem fóru í Seðla-
bankann og Lárus Jónsson, sem
tók við stjórnvelinum í Útvegs-
bankanum þó skemur væri en
upphaflega hafði verið ráð fyrir
gert sökum óvæntra uppákoma í
tengslum við Hafskipsmálið.
Aðrir bankastjórar úr hópi
þingmanna undanfarna þrjá ára-
tugi, sem eru úr röðum þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins, eru
þeir Davíð Ólafsson, sem varð
bankastjóri í Seðlabankanum er
hann fór út af þingi 1967, Jóhann
Hafstein, var bankastjóri Út-
vegsbankans 1952-63 samhliða
þingsetu og um tíma ráðherra-
dómi, Jónas G. Rafnar banka-
stjóri sama banka frá 1967 sam-
hliða þingsetu til 1971 og Magnús
Jónsson sem var bankastjóri
Búnaðarbankans 1961, samhliða
þingsetu, en að undanteknum
þeim tíma sem hann var ráð-
herra.
Úr þingflokki Framsóknar-
flokksins hefur Helgi Bergs, auk
Tómasar Árnasonar setið á bank-
astjórastóli. Helgi er einn núver-
andi bankastjóra Landsbankans,
eða frá 1971, Helgi sat á þingi
fyrir Framsóknarflokkinn á árun-
um 1963-67.
Til viðbótar má geta þess að
tveir aðrir þingmenn hafa setið
við stjórnvöl banka meðan á
þingsetu stóð. Finnbogi Rútur
Yaldimarsson var bankastjóri
Útvegsbankans 1957-72 og jafn-
hliða var hann í þingliði Alþýð-
uflokksins eða frá 1959-63. Einar
Ágústsson var bankastjóri Sam-
vinnubankans, sem reyndar telst
ekki til ríkisbankanna, frá 1963-
71, og þingmaður að auki.
-rk
eru 2.000 vegna hlunninda og
rúmar 40.000 vegna yfirvinnu.
-rk
Fiskveiðistefnan
Langt
í land
Önnur umræða
um kvótann hófst í
gær og heldur
áfram í dag. Fjöldi
breytingatillagna
hggja fyrir
Fiskveiðistefnan kom til ann-
arrar umræðu í neðri deild Al-
þingis í gær. Alls lágu fjögur
nefndarálit fyrir þingmönnum og
fjöldi breytingatillagna við frum-
varpið.
í gær mæltu nefndarmenn fyrir
álitunum en fundi var frestað
klukkan sjö og haldið áfram í dag
klukkan 10. Kjartan Jóhannsson
mælti fyrir áliti meirihluta sjávar-
útvegsnefndar, og greindi frá
breytingartillögum meirihlutans.
Meginbreytingin er sú að heim-
ildir smábátaeigenda verða
rýmkaðar miðað við frumvarpið
þó enn séu banndagar töluvert
fleiri en í fyrra.
Matthías Bjarnason lagði fram
átta breytingartiliögur við frum-
varpið. Varða þær m.a. rækju-
kvótann og að samráðsnefndin
verði skipuð 5 mönnum, þremur
skipuðum af Alþingi, einum af
sjómönnum og einum af útgerð-
armönnum. Þá leggur hann til að
níu manna nefnd verði kosin
hlutfallskosningu af Alþingi til að
endurskoða fiskveiðistefnuna.
Hann er einnig með tillögu um að
gildistíminn verði bara tvö ár.
Matthías er hinsvegar ekki með
neina breytingartillögu við veiðar
smábáta.
Hjörleifur Guttormsson er
með fjölda breytingartillagna við
frumvarpið m.a. um að sérstök
framkvæmdanefnd skipuð níu
mönnum kosnum hlut-
fallkosningu til eins árs fari með
stjórn fiskveiðanna samkvæmt
lögunum. Þá boðar Hjörleifur
enn frekari rýmkun fyrir smábát-
ana og það sama gerir Hreggvið-
ur Jónsson.
Hjörleifur er einnig með til-
lögu um að þriðjungur af kvótan-
um fylgi skipi en restinni sé út-
hlutað til byggðarlaga.
Búist er við löngum umræðum
um kvótann og þarf frumvarpið
að fara aftur til efri deildar áður
en það verður að lögum.
-Sáf
Tívolíbombur
sala bönnuð
Dómsmálaráðherra hefur
ákveðið að banna sölu á Tívolí-
bombum til almenningsnota á
meðan rannsókn fer fram á þeim
slysum sem urðu af völdum
þeirra um síðustu áramót.
Jafnframt hefur ráðuneytið.
óskað eftir því að lögregla út um
allt land fylgist vel með því að
þessu banni sé framfylgt svo og
fyrri fyrirmælum ráðuneytisins
varðandi sölu og meðferð skot-
elda. _ grh
Miðvikudagur 6. janúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3