Þjóðviljinn - 06.01.1988, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR
íþróttamaður ársins
Kjör
íþróttamanns
ársins
sem vera átti síðastliðinn mánu-
dag verður haldið í dag kl. 17.30 á
Hótel Loftleiðum.
ogþetta
líka...
Stórmót
Samtaka íþróttafréttamanna og Adi-
das verður haldið á Akranesi á laug-
ardag. Dregið hefur verið í riðla og
eru það Fram, ÍA, ÍBK og KA sem
leika í A-riðli. í B-riðli eru Valur, KR,
Þór og Samtök íþróttafréttamanna
(Sl). Mótið hefst á laugardaginn kl.13
en úrslitaleikirnir hefjast kl.17:30.
Leikið verður í 2x8 mín. í riðlakeppn-
inni en 2x10 mín. í úrslitunum.
Aðgangseyrir verður kr. 200 fyrir full-
orðna en kr.50 fyrir börn.
Arnór Guðjohnsen
hafnaði í fimmta sæti í kjöri um knatt-
spyrnumann ársins í Belgíu. Það var
markvörðurinn Michel Preud'homme
sem sigraði í kjörinu. Knattspyrnu-
maður ársins í Belgíu er valinn af
Samtökum íþróttafréttamanna þar í
landi, dómurum, þjálfurum og fulltrú-
um frá íþróttafélögunum. Sigurvegar-
inn hlýtur „Gullskóinn" að launum.
John Wark
gekk aftur til liðs við sitt gamla félag
Ipswich á mánudag. Wark sem var
seldur til Liverpool fyrir fjórum árum
fyrir 450.000 sterlingspund, hefur
ekki tekist að komast í liðið hjá Liverp-
ooI í vetur. Talið er að Ipswich hafi
greitt 187.000 sterlingspund fyrir
Wark.
Matti Nykaenen
sem oft hefur verið nefndur Finninn
fljúgandi styrkti stöðu sína í efsta sæti
heimsbikarsins í skíðastökki á sunnu-
daginn. Þá sigraöi hann í sjötta
skiptið af þeim sjö mótum sem hann
hefur tekið þátt í. Nykaenen er nú
langefstur í keppninni með 170 stig.
Næstur er Tékkinn Ploc með 128
stig.
Bandarískt
körfuknattleikslið er komið hingað til
lands úr keppnisferðalagi um Norður-
lönd. Gainsville Florida. en svo heitir
liðið, leikur tvo leiki við Úrvalslið sem
valið er af Val Ingimundarsyni, þjálf-
ara Njarðvíkinga. Gainsville Florida
er skipað mjög sterkum leikmönnum
sem hafa leikið með háskólaliðum í
Bandaríkjunum. Koma liðsins er mik-
ill fengur fyrir körfuknattleiksáhuga-
menn og er víst að þeir fái að sjá
eitthvað af því besta sem körfuknatt-
leikurinn býður uppá. Leikirnir tveir
verða í íþróttahúsi Njarðvíkur á mið-
vikudag kl. 20 og í íþróttahúsi Kefla-
víkur kl. 20.
Watford
er enn á sölulista hjá popparanum
Elton John og enn hefur hann fengið
tilboð í félagið. Að þessu sinni er til-
boðið frá næturklúbbaeigandanum
Paul Reymond. Reymond sagði á
mánudaginn að hann hefði ekki enn
gert formlegt tilboð í fólagið. „Ég hef
alltaf haft mikinn áhuga á að eignast
knattspyrnufólag. Ég hefði nú kosið
að eignast Chelsea en það er ekki til
sölu svo Watford verður að duga,"
sagði Raymond ennfremur. í síðustu
viku dró Robert Maxvell, blaðaútgef-
andi, tilboð sitt í Watford til baka, en
fjölskylda hans á fyrir 1. deildar fé-
lögin Derby og Oxford.
Sund
Atta
fslandsmet
Fatlaðir bœta
sig verulega
Nýárssund fatlaðra barna og
unglinga fór fram í Sundhöll
Reykjavíkur um helgina. Á mót-
inu kepptu 25 börn og unglingar
frá fjórum íþróttafélögum.
Keppendur frá Akureyri komust
þó ekki á mótið vegna slæmra
veðurskilyrða.
Alls voru sett 8 íslandsmet á
mótinu og flestir keppendur
bættu fyrri árangur sinn verulega.
Á mótinu var keppt eftir sérstakri
stigatöflu sem gefur öllum kepp-
endum jafna möguleika á að
vinna þrátt fyrir mismunandi fötl-
un. Sá sem nær bestum tíma þarf
því ekki endilega að hafa unnið
besta afrekið á mótinu heldur sá
sem nær bestum tíma miðað við
sinn flokk.
Bestum árangri mótsins náðu
þau Gunnar Þ. Gunnarsson,
l.F.S. en hann hlaut 590 stigoger
það mesti stigafjöldi sem kepp-
andi hefur náð á Nýárssundmót-
inu frá upphafi. Kristín R. Há-
konardóttir, Í.F.R., 538 stig og
Sigrún H. Hrafnsdóttir, Ösp, 534
stig.
Heiðursgestur mótsins, Jó-
hanna Sigurðardóttir, afhenti
öllum keppendum mótsins viður-
kenningarskjal fyrir þátttökuna
og Gunnari Þ.Gunnarssyni
„Sjómannabikarinn".
Körfuknattleikur
Frá vinstri: Erling Ásgeirsson formaður íþrótta- og tómstundaráðs, Sigurður Einarsson, Debbie Einarsson kona hans og
Lilja Hallgrímsdóttir forseti bæjarstjórnar. - Mynd - Herborg.
Frjálsar
Garðabær styrkir Sigurð
Fer líklega á Ólympíuleikana í Kóreu
Bæjarstjórn Garðabæjar á-
kvað fyrir skömmu að veita Sig-
urði Einarssyni styrk til að undir-
búa sig fyrir Ólympíuleikana í
Suður-Kóreu. Einnig er stefnt að
því að fá fyrirtæki í Garðabæ til
að bæta við styrk.
Sigurður er innfæddur Garð-
bæingur en stundar nú nám í
íþróttafræðum íTuscoloosa, Ala-
bama og lýkur því að vori.
Spjótverk hefur Sigurður æft
reglulega frá 1976 að undan-
skildum árunum 1981-1982. Því
þá átti hann við meiðsli í olnboga
að stríða.
Þar sem Alþjóða ólympíulág-
markið er 76 metrar og Sigurður
kastar vel yfir það má gera ráð
fyrir að hann hafi eitthvað að
gera til S-Kóreu. Sigurður er nú
númer 21 á skrá yfir bestu spjót-
kastara heims og að mati Stefáns
Jóhannssonar landsliðsþjálfara í
spjótkasti, hefur hann möguleika
á að komast í fremstu röð meðal
spjótkastara.
- ste
Drengjalandsliðið
tapaði naumlega
Knattspyrna
„Ólætin verður að stöðva“
Forseti Alþjóðaknattspyrnu-
sambandsins, FIFA, Joao Have-
lange hvatti stjórnvöld til að grípa
til aðgerða er gætu hindrað ólæti
á knattspyrnuvöllum. Inná vellin-
um gætu dómarar gripið í
taumana en slíku væri ekki fyrir
að fara á áhorfendapöllum.
„Ólætin verður að stöðva,"
sagði Havelange. „Við höfum
áhyggjur vegna sívaxandi ofbeld-
is á knattspyrnuvöllum. Það er í
höndum stjórnvalda viðkomandi
ríkja að stöðva ólæti á áhorfend-
apöllum. Ef stjórnvöld geta ekki
tryggt öryggi áhorfenda ættu þau
ekki að leyfa knattspyrnu."
Havelange sagðist ekki vilja
breyta reglum varðandi knatt-
spyrnuna sjálfa. „Ég tel leikregl-
urnar í knattspyrnu algjörlega
fullkomnar.“
Havelange sagði einnig að hver
leikur í Heimsmeistarakeppninni
í knattspyrnu 1990 myndi kosta
FIFA 1,2 milljónir dollara, þann-
ig kosta allir leikirnir 52 um 60
milljónir dollara.
-ih/reuter
íslenska drengjalandsliðið í
körfuknattleik tekur nú þátt í 4.
liða móti í Belfast á N-írlandi.
Drengirnir hafa leikið tvo
leiki. í fyrri leiknum töpuðu þeir
naumlega á móti Skotum, 69-67.
Það var ekki fyrr en eftir að
venjulegur leiktími var liðinn að
úrslit fengust. Þegar nokkrar sek-
úndur voru til leiksloka var stað-
an jöfn 67-67 en þá fengu Skotar
tvö vítaskot og skoruðu úr þeim
báðum. Að sögn Björns Leós-
sonar, stjórnarmanns í KKÍ, þá
áttu drengirnir jafna möguleika á
að sigra í þessum leik. Leikurinn
var mjög jafn og mesti munur að-
eins 5-6 stig, Skotum í hag.
Stigahæstu menn í þessum leik
voru Rúnar Árnason 15 stig,
Egill Viðarsson, 14 stig,
Sveinbjörn Sigurðsson, 12 stig og
Hannes Haraldsson, 10 stig.
Liðin sem taka þátt í þessu
móti eru frá Skotlandi, íslandi og
tvö lið frá N-írlandi (unglinga og
drengja).
Getraunir
Einn með 12 rétta
Aðeins ein röð kom fram með
12 rétta í 18. leikviku getrauna.
Það voru getspakir menn úr
hópnum SVEFN í Kópavogi sem
hirtu pottinn í þetta sinn.
Vinningur á 12 rétta var
kr.549.835 en þar sem hópurinn
var með opinn kerfisseðil með
7.776 röðum þá fengu þeir líka 15
raðir með 11 rétta. Samtals fengu
þeir því 653.785 krónur í vinning.
Hópleikurinn sem íslenskar
getraunir hafa verið með í vetur
gengur mjög vel. Margir hafa
tekið þátt og keppnin er jöfn og
spennandi. Sá hópur sem hefur
náð bestum árangri kallar sig BIS
og hefur hann haft 10.07 rétta að
meðaltali. Hóparnir heita margir
hverjir hinum skemmtilegustu
nöfnum s.s. Ricki 2001, Tromp-
ásinn, Sörli og Babú. Aðrir hópar
draga nöfn sín af þeim félögum
sem þeir halda uppá í ensku
knattspyrnunni s.s Portsmouth.
Næsta laugardag verða ein-
göngu leikir úr 3. umferð ensku
bikarkeppninnar á seðlinum.
Ekki verður framlengt þó jafn-
tefli verði að loknum venjulegum
leiktíma heldur leikið aftur síðar.
íþróttafréttamenn eru líka í
leik hjá getraunum og hér á eftir
má sjá spá þeirra fyrir næstu
leikviku.
Miðvikudagur 6. janúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
1X2... 1X2... 1X2... 1X2... 1X2...
19. vika ti>sí=sii
a 5 Ot-OŒOUOO)
Blackburn-Portsmoulh............................2 1 2 1 1 1 1 x x
Derby-Chelsea...................................x 1111x211
Huddersfield-Man.City...........................2 x22x2222
Leeds-Aston Villa.............................. * x x 1 1 1 x 1 1
Newcastle-CrystalPalace.,.................... ./4 1 1 1 1 1 1 1 x
Oldham-Tottenham................................tx 2 2 1 2 2 2 x2
Reading-Southampton..............................2 x 2 x 1 x 2 2 2
Sheff.Wed.-Everton..............................1 x x x 2 x 2 2 1
Stoke-Liverpool................................. 2 2 2 2 2 2 2 2 2
Swindon-Norwich..................................1 x 2 2 1 1 2 2 1
Watford-Hull....................................111111111
WestHam-Charlton................................1 1 1 1 1 1 1 1 x