Þjóðviljinn - 22.01.1988, Side 1

Þjóðviljinn - 22.01.1988, Side 1
Föstudagur 22. janúar 1988 16. tölublað 53. örgangur Kjarasamningar Mænt vestur á firði Verkalýðsforystan tvístígandi. Bakslag komið í kröfur um samninga til skemmri tíma. Karvel Pálmason: Rétt að Véstfirðingar fáifyrst að sýna hvað íþeim býr. Þórarinn V. Þórarinsson: Innanhússvandamál VMSI Forystmenn Verkamannasam- bandsins og atvinnurekendur virðast á einu máli um að rétt sé að bíða átekta með frekari hug- myndir um skammtímasamn- inga, þar til sýnt er hver niður- staðan verður í samningaviðræð- unum á Vestfjörðum í anda ný- rrar þjóðarsáttar. - Mér finnst að Vestfirðingar eigi að fá að reyna til þrautar áður en aðrir rjúka til, sagði Karvel Pálmason, varaformaður Verkamannasam- bandsins og Þórarinn V. Þórar- insson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins tók í sama streng. Formaður og varaformaður VMSÍ gengu fyrir fjármálaráð- herra í gær og viðruðu hugmyndir um að ríkisvaldið greiddi götu kjarasamninga með skattaíviln- unum fiskverkafólki til handa og verkalýðsfélagið Baldur á ísafirði hefur sent forsætisráðherra áskorun sama efnis. Forsætis- og fjármálaráðherra taka ekki ólík- indalega undir þá hugmynd, en því aðeins að kauphækkunum verði haldið í lágmarki. - Verkamannasambandið hef- ur ekki rætt við atvinnurekendur. Ég tel eðlilegt að menn bíði átekta þar til útséð er með samn- ingatilraunir á Vestfjörðum og Suðumesjum, sagði Karvel, en líklegt er að línurnar muni skýrast fyrir vestan í dag er af- staða verður tekin til áframhald- andi viðræðna á fundi aðalsamn- inganefndar Alþýðusambands Vestfjarða. - VMSÍ hefur ekki óskað eftir viðræðum við okkur. Það er fullkomlega ótímabært að kasta frá sér hugmyndum um samninga til lengri tíma og hugmyndir um skammtímasamning eru fyrst og fremst innanhússmálefni í VMSL - Ljái stjórnvöld máls á skatta- ívilnunum af einhverju tagi liðkar það vissulega fyrir kjarasamning- um, sagði Þórarinn V. Þórarins- son. Að sögn Ásmundar Stefáns- sonar, forseta Alþýðusambands- ins er líklegt að landssamböndin innan ASÍ haldi að sér höndum þar til niðurstaða liggur fyrir í kjaramálum VMSÍ, en miðstjóm ASÍ þingaði í gær, þar sem kjara- málin bar meðal annars á góma. Ásmundur sagði að hugmyndir um skattaívilnanir, s.s. hækkun skattleysismarka, væru allrar at- hygli verðar. -rk Austurland 10% fyrst - meira síðar Ófaglœrðir á elliheimil- um ogsjúkrahúsumfá 10% kauphækkun Samkvæmt kjarasamningi til skamms tíma sem Alþýðusam- band Austurlands náði fram á mánudag við stjórnir elliheimila og sjúkrahúsa á Austurlandi, hækkar kaup ófaglærðs starfs- fólks um 10% frá og með ára- mótum. Samningurinn gildir til 1. apríl. Viðsemjendur Alþýðusam- bandsins gáfu jafnframt vilyrði fyrir því að föst afturvirk krónut- öluhækkun yrði greidd þegar nýr heildarkjarasamningur hefur náðst. Þessi 10% hækkun jafngildir á mánuði frá 3.100 krónum til 4.200 króna kaupauka ófaglærðs starfsfólks elliheimila og sjúkra- húsa á Austurlandi. Ráðstefna hvalveiðiþjóða Rætt um svæða- samtök Hugað að úrsögn úr Alþjóðahvalveiðiráð- inu. Mikill lögreglu- viðbúnaður við ráð- stefnustaðinn Ljóst er að aðal umræðuefni ráðstefnu hvalveiðiþjóðanna, sem sett var í Borgartúni 6 í gær, er stofnun sérstakra svæðasam- taka hvalveiðiþjóða, annarsvegar þjóða við Norður-Atlantshaf og hinsvegar þióða við Kyrrahaf. Halldór Ásgrímsson drap lítil- lega á þessa hugmynd í setningar- ávarpi sínu á ráðstefnunni í gær, en blaðamenn fengu að hlýða á ræðu hans áður en salnum var lokað. Halldór sagði að meðal þess sem íslensku fulltrúarnir vildu at- huga, „er svæðisbundin stjórnun, sem nær til allra sjávarspendýra og gerir ráð fyrir: - ábyrgð á vís- indarannsóknum á öllu svæðinu, - ábyrgð á stjórnun utan fisk- veiðilögsögu; - stofnun við- eigandi alþjóðlegra samtaka á hverju svæði um sig.“ Mikill lögregluviðbúnaður var í kringum ráðstefnuna og var gerð vopnaleit á blaðamönnum áður en þeir fengu að stíga í fund- arsalinn. Framsöguerindum lauk um há- degi í gær og hófust þá vinnu- fundir starfshópa. Munu starfs- hóparnir vera að fram yfir hádegi í dag en þá hefjast umræður um niðurstöður þeirra. Ráðstefn- unni lýkur svo klukkan 17:15 í dag og halda ráðstefnugestir þá í Þjóðleikhúskjallarann, en þar snæða þeir kvöldverð í boði sjáv- arútvegsráðherra. Það vakti athygli að tveir Bandaríkjamenn eru í íslensku sendinefndinni. -Sáf Sjá bls. 5, 6 og bak Joan Falwell ræðir við fréttamenn eftir handtöku Watsons. Sea Shepherd Watson handtekinn við komuna Paul Watson forystumaður Sea Shepherd var handtekinn á Keflavík urflugvelli ígœr. Fœrður íyfirheyrslur hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins Paul Watson, forystumaður Sea Shepherd samtakanna, var handtekinn við komu sína á Kefl- avíkurflugvöll í gær og færður til yfirheyrslu hjá Rannsóknarlög- reglu ríkisins vegna þeirrar að- ildar sem hann hefur sagst eiga að þvi að sökkva tveimur hval- veiðibátum í Reykjavíkurhöfn og að skemmdarverkum sem unnin voru á Hvalstöðinni haustið 1986. Um 10 lögregluþjónar tóku á móti Watson við landgang flug- vélarinnar í gær og færðu hann út um bakdyr á flugvallarbygging- unni í bfl sem flutti hann til Rannsóknarlögreglunnar. í fylgd með Watson voru sambýliskona hans Joan Falwell og formaður Bretlandsdeildar samtakanna. Þau fengu inngöngu inní landið eftir stutt spjall við útlendingaeft- irlitið sem spurði þau m.a. hvort þau hygðust fremja hryðjuverk á meðan á dvöl þeirra hér á landi stæði. „Við sögðum þeim eins og er að við erum komin hingað í friðsamlegum tilgangi til þess að vekja athygli á málstað Sea Shep- herd,“ sögðu þau Falwell og Berg, en þau komu hingað til lands ásamt Watson vegna ráð- stefnu um nýtingu sjávarspen- dýra sem nú stendur yfir. Sam- kvæmt heimildum Þjóðviljans eru fleiri meðlimir samtakanna komnir hingað til lands vegna ráðstefnunnar. Líkur eru á að Watson muni við yfirheyrslur standa við fyrri yfirlýsingar sínar, en óvíst er hvernig mál hans verður afgreitt. Því er spáð að annað hvort verði honum vísað úr landi eftir að framburður hans liggur fyrir eða að gefin verði út ákæra og hann verði dæmdur hér á landi. Telja margir það líklegra að íslensk stjórnvöld leysi málið með því að vísa Watson úr landi. -K.Ól.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.