Þjóðviljinn - 22.01.1988, Side 6
ALÞYDUBANDALAGK)
Alþýðubandalagið á Norðurlandi eystra
Þingmenn á almennum stjórnmálafundum
í þinghléi
Akureyri
Margrót Frímannsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon verða á fundi í Alþýðu-.
húsinu á Akureyri föstudaginn 22. janúar. Fundurinn hefst kl. 20:30.
Ólafsfjörður
Svanfríður Jónasdóttir og Steingrímur J. Sigfússon verða á fundi í Tjarnar-
borg í Ólafsfirði sunnudaginn 24. janúar. Fundurinn hefst kt. 20:30.
Spilakvöld Alþýðubandalagsins í Reykjavík
Fyrsta spilakvöld vetrarins verður haldið kl. 20:30 þriðjudaginn 26. janúar í
Miðgarði, Hverfisgötu 105. ABFj
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Þorrablót
félagsins verður haldið í Þinghóli, Hamraborg 11, laugardaginn, 30. janúar
Husið verður opnað kl. 19:00 og verður þá boðið upp á lystauka.
Blótstjóri verður Sigurður Grétar Guðmundsson.
Heimir Pálsson stjórnar fjöldasöng.
Hljómsveitin Haukar leikur fyrir dansi.
__Miðsala er í Þinghóli miðvikudaginn 27. janúar kl. 17-19 og fimmtudaqinn
28. januar kl. 17-22 og verða þá þorð frá tekin um leið.
Miðaverð er aðeins kr. 1.750. Stjórnin
Alþýðubandalagið Skagafirði
Félagsfundur
Fundur í Villa Nova, Sauðárkróki, mánudaginn 25. janúar kl. 20 30
Fundarefni:
1) Félagsstarfið.
2) Fjárhagsáætlun Sauðárkróksbæjar.
3) Önnur mál.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Afmælisundirbúningur
Vegna undirbúnings fyrir 30 ára afmæli Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði 5.
mars n.k. boðar stjórn fólagsins til fundar í Skálanum, Strandgötu 41,
laugardaginn 23. janúar n.k. kl 10.00.
Til umræðu verður útgáfa afmælisblaðs félagsins og eru allir þeir sem
áhuga hafa á að vinna að útgáfunni eða eru með tillögur um efni og vinnslu
hvattir til að mæta á fundinn.
Stjórnin
Alþýðubandalagið
Stjórnmálafundir
á Austurlandi
Bakkafjörður, opinn fundur með
Hjörleifi Guttormssyni, föstudaginn
22. janúar kl. 13.30.
Esklfjörður, félagsfundur ABE,
föstudaginn 22. janúar kl. 20.30.
Fáskrúðsfjörður, aðalfundur Alþýð-
ubandafélags Fáskrúðsfjarðar í
Verkalýðshúsinu, mánudaginn 25.
janúar kl. 20:30.
Höfn I Homafirðl, opinn fundur í
Miðgarði, þriðjudaginn 26. janúar kl.
20:30.
Hjörleifur Gutt
ormsson alþing-
ismaður heldur
áfram ferð um
kjördæmið í kom-
andi viku, kemur á
vinnustaði og
verður á fundum
sem hér segir:
Hjörleifur
Breiðdalur, opinn fundur í Staðar-
borg, fimmtudaginn 28. janúar kl.
20:30.
Reyðarfjörður, aðalfundur Alþýðu-
bandalagsfélags Reyðarfjarðar í
Verkalýðshúsinu, föstudaginn 29.
janúar kl. 20:30.
Alþýðubandalaglð
- kjördæmisráð
Alþýðubandalagið Akureyri
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur (bæjarmálaráði í Lárusarhúsi, mánudaginn 25. janúar kl. 20.30.
Dagskrá: 1) Dagskrá bæjarstjómarfundar þriðjudaginn 26. janúar.
2) Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Vestmannaeyjum
Lífskjörin - nýjar leiðir í íslenskum stjórnmálum
Opinn almennur fundur í Félagsheimili Vestmannaeyja, þriðjudaginn 26.
janúar kl. 20.30.
Frummælendur: Ólafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubandalagsins
og Margrét Frímannsdóttir alþm.
Allir velkomnir.
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalag Selfoss og nágrennis
Almennur félagsfundur
Þingmennirnir Margrét Frímannsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon ræða
þjóðmálin við félaga og stuðningsmenn Alþýðubandalagsins, miðvikudaqinn
27. janúar kl. 20.30.
ATH! Fundurinn verður í sal verkalýðsfélagsins Þórs, Árvirkjahúsinu við Eyra-
veg.
Mætiðvelogstundvíslega. Stjórnin
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Bæjarmálaráð
Fundur í bæjarmálaráði verður haldinn í Þinghóli, Hamraborg 11, mánu-
daginn 25. janúar kl. 20.30.
Fundarefni: Fjárhagsáætlun Kópavogskauþstaðar fyrir 1988, önnur mál.
Stjórnin
Alþýðubandalagið í Kóþavogi
Morgunkaffi
Heiðrún Sverrisdóttir bæjarfulltrúi og Eggert Gautur Gunnarsson, fulltrúi í
félagsmálaráði, verða með heitt á könnunni í Þinghóli, Hamraborg 11,
laugardaginn 23. janúar frá 10-12. Allir velkomnir. Stjórnln
Öryggisverðir leita á tveimur japönskum blaðamönnum sem fylgdust með setningunni, en einsog íslenskum kollegum
þeirra, var þeim vísað á dyr strax að afloknu setningarávarpi sjávarútvegsráðherra.
Löggur í leyni
Öflug löggcesla við Borgartún 6 og Hótel Sögu.
Leynimakk um stofnun svœðissambanda hvalveiði-
þjóða
Mjög öflug löggæsla er við
Borgartún 6 og Hótel Sögu á með-
an að hvalveiðiþjóðirnar þinga.
Ráðstefnustaðnum var haldið
leyndum fram á síðustu stundu og
var leitað að vopnum á blaða-
mönnum þegar þeir komu á ráð-
stefnustaðinn.
Allt í kringum gömlu Rúg-
brauðsgerðina mátti sjá fíleflda
lögregluþjóna, liggjandi í leyni á
bakvið húshom og í anddyrinu
tóku óeinkennisklæddir lögreglu-
menn á móti gestum og könnuðu
skilríki þeirra. Þegar upp var
komið var öllum blaðamönnum
fyrirskipað að stíga í gegnum
vopnaleitarhlið og þá fyrst gátu
þeir farið í salinn. Ekki mun hins-
vegar hafa verið leitað að vopn-
um á ráðstefnugestum.
Einsog fram hefur komið þá
rikir mikil launung um ráðstefnu-
haldið og fengu blaðamenn bara
að vera viðstaddir á meðan Hall-
dór Ásgrímsson flutti setningará-
varp sitt. Síðan var blaða-
mönnum vísað út og dyrum lok-
að.
Nokkuð ljóst er samt að aðal-
tilgangur ráðstefnunnar er að
kanna hug þessara þjóða til stofn-
unnar sérstakra svæðasambanda
hvalveiðiþjóða.
-Sáf
Ljósmyndari Tímans þurfti að ganga í
gegnum sérstakt vopnaleitarhlið,
einsog tíðkast á flughöfnum. Aldrei
að vita nema að úlfur leynist undir
sauðargæru Timans. Myndir Sig.
______________VIÐHORF_____________
Fasteignagjöld
Alögum mótmælt
Opið bréf til bœjarstjórnar í Kópavogi
Rcykjavík, 20. janúar 1988
Ég undirritaður, sem er
greiðandi fasteignagjalda og íbúi
í Kópavogi, fékk um daginn inn-
heimtubréf vegna fasteigna-
gjalda af íbúð við Furugrund 62.
Þegar ég sá seðilinn þá brá mér
illilega í brún því við samanburð
við gjöld ’87 höfðu þessi gjöld
hækkað um ca. 62%.
Ég verð að segja að þrátt fyrir
að þegnar þessa lands séu ýmsu
vanir í hækkunum álaga nú þessa
mánuði, þá tekur steininn úr með
þessari ósvífnu hækkun fast-
eignagjalda hjá bæjarstjóm
Kópavogs. Þær skýringar sem
forseti bæjarstjórnar gefur til
réttlætingar í Alþýðublaðinu eru
svo fáránlegar að engu tali tekur
- í því sambandi er rétt að benda á
að ekki rekur Kópavogur slök-
kvilið eða sjúkrahús og til þessa
dags hefur varla verið hægt að
tala um að í Kópavogi væri sund-
laug. Þá er rétt að benda ykkur á,
ef þið skylduð ekki vita það, að til
skamms tíma var varla hægt að
tala um frambærilegt gatnakerfi í
bænum.
Halldór Bjömsson
Ég hefði nú haldið að flokkar
sem kenna sig við félagshyggju
gengju ekki fremstir í því að
hækka álögur á íbúana í slíkum
mæli og gert er með þessari
hækkun.
Ég vii harðlega mótmæla þess-
ari ósvífnu hækkun og krefst þess
að hún verði tekin til endurskoð-
unar til lækkunar álagningunni.
Vlrðlngarfyllst,
Halldór Björnsson
Furugrund 62
Kópavogi