Þjóðviljinn - 22.01.1988, Qupperneq 7
Spuming um stríð eða frið
Stjórnvöld í Nicaragua segja bandaríska þingmenn hafa í
hendi sér hvort íbúar Mið-Ameríku munu búa við stríð eða
frið á nœstu árum
Ríkisstjórn Nicaragua kom
mönnum í opna skjöldu í gær
með því að senda fulltrúa sína tU
viðræðna við fuUtrúa Kontraliða
f Costa Ricu, mun fyrr en gert
hafði verið ráð fyrir. Hún lýsti
þvf jafnframt yfir að frekari fjár-
framlög Bandarfkjaþings tU rek-
sturs málahersins myndi binda
enda á alla friðarviðleitni og
valda styrjöld í Mið-Amerfku.
„Hverskyns fjáraustur, hvort
Þjóðarleiðtogarnir sex létu það verða sitt fyrsta verk á fundi sínum í Stokkhólmi
að heiðra minningu Olofs Palme.
Friðarfrumkvœði úr fimm heimsálfum
Krefjast
tilraunabanns
Þjóðarleiðtogarnir sex krefjastþess að tilraun-
ir með kjarnvopn verði bannaðar og skora á
Reagan og Gorbatsjov aðfœkka langdrægum
kjarnvopnum um helming
Leiðtogar sex ríkja bandalags
um friðarfrumkvæði í heimin-
um kröfðust þess í gær að kjarn-
orkuvopnum yrði þegar f stað
fækkað um helming og að Sam-
einuðu þjóðirnar ættu frum-
kvæði að því að blátt bann yrði
lagt við tUraunum með slík vopn.
Þriðji leiðtogafundur ríkjanna
sex hófst í Stokkhólmi í gær með
því að fundarmenn heiðruðu
minningu Olofs heitins Palmes en
hann var einn af stofnendum
samtakanna árið 1984. Rajiv
Gandhi, forsætisráðherra Ind-
lands, lagði blómsveig á gröf
Palmes en viðstaddir voru Ingvar
Carlsson, eftirmaður Palmes,
Miguel de la Madrid, forseti
Mexíkó, Julius Nyerere, fyrrum
forseti Tanzaníu, Andreas Pap-
andreou, forsætisráðherra
Grikklands og Dante Caputo,
utanríkisráherra Argentínu.
Raul Alfonsin forseti átti ekki
heimangengt sökum eftirmála
dátauppreisnarinnar um síðustu
helgi.
Síðdegis í gær undirrituðu
leiðtogarnir síðan sjö síðna
plagg, svonefnda Stokkhólms-
yfirlýsingu, sem dreift verður til
forystumanna í öllum ríkjum
heims.
Gestgjafinn Carlsson lét svo
ummælt í gær að hann myndi við
fyrstu hentugleika beita sér fyrir
því að Sameinuðu þjóðirnar
efndu til sérstakrar ráðstefnu í
því augnamiði að hanna traust
eftirlitskerfi með tilraunabanni.
Hann gat þess ennfremur að á
næstunni myndu sérfræðingar
ríkjanna sex funda í Stokkhólmi
um leiðir til þess að koma í veg
fyrir að samningsaðilar brytu
slíkt bann.
í Stokkhólmsyfirlýsingunni er
orðum beint að Ronaldi Reagan
Bandaríkjaforseta og Míkael
Gorbatsjov sovétleiðtoga og hart
lagt að þeim að semja um helm-
ingsfækkun langdrægra kjarn-
vopna sinna fyrir lok júnímán-
aðar í ár.
í ræðu sinni fórust Carlsson
orð á þessa lund: „Það verður að
binda enda á kjarnorkuvígbún-
aðarkapphlaupið strax! Langd-
rægum kjarnvopnum verður að
fækka strax! Það verður strax að
koma í veg fyrir vígbúnaðar-
kapphlaup úti í geimnum!"
Gandhi tók í sama streng og
kvað brýna nauðsyn bera til að
þeir Reagan og Gorbatsjov létu
ekki staðar numið eftir gerð
samningsins um eyðingu með-
aldrægu kjarnflauganna í síðasta
mánuði heldur næðu jafnframt
samskonar samningum um aðrar
gerðir kjamvopna.
Reuter/-ks.
sem hann verður sagður til hern-
aðar ellegar „mannúðarmála"
eða hvað sem hann verður nefnd-
ur, mun eyða að fullu öllum til-
raunum til þess að koma á friði í
álfunni og leiða til styrjaldar sem
mun geisa hvarvetna í Mið-
Ameríku.“ Þetta er tilvitnun í
leiðara málgagns ráðamanna í
Managua, Barricada, frá því í
gær. A sama tíma og það barst til
lesenda sinna í gærmorgun bárust
þær fréttir frá Hvíta húsinu í Was-
hington að Reagan hygðist beita
sér fyrir slíkum fjáraustri. Var
haft eftir talsmanni Hvíta hússins
að forsetinn hygðist fara fram á
50 miljón dala framlag þings til
Kontraliða og róa að því öilum
árum að þingfulltrúar skelltu
ekki skollaeyrum við beiðni sinni
því lýðræði og frelsi Vesturheims
væri í húfi.
í leiðaranum stóð jafnframt:
„Afnám fjárstuðnings til Kontra-
liðanna er hið eina er tryggt getur
framgang friðaráætlunarinnar,"
en með þessum orðum er vísað til
áætlunar miðamerísku forset-
anna fimm frá því í ágúst í fyrra en
hún aflaði höfuðsmiðnum, Osc-
ari Arias frá Costa Ricu, friða-
rverðlauna Nóbels.
Leiðarahöfundurinn klykkti út
með því að staðhæfa að samþykkt
frekari fjárframlags til málalið-
anna myndi gefa Reagan frjálsar
hendur til nánast hvers sem væri í
Mið-Ameríku, hugsanlega inn-
rásar bandarískra hermanna í
Nicaragua.
Reuter/-ks.
Tveir kampakátir snáðar í Managua, höfuðborg Nicaragua. Það veltur á
ákvörðun Bandaríkjaþings um fjáraustur í Kontraliða hvort þeir munu alast upp
i friði eða styrjöld.
Spánn
Sósíalistar þinga
Ríkisstjórn Felipes Gonzalezarþykir hafa staðið sig vel í efna-
hagsmálum en sœtir ámœli vinstrimannafyrir árangursleysi íbaráttu
við atvinnuleysi
Spænskir sósíalistar munu
þinga í dag og um helgina. Mál
málanna á samkundu þeirra
verður án efa óánægja vinstri-
manna með launastefnu ríkis-
stjórnar Felipes Gonzalezar og
hið mikla atvinnuleysi í landinu.
Sökum þessa tveggja tapaði Só-
síalistaflokkurinn um einni milj-
ón atkvæða í sveitarstjórnarkjöri
í fyrra og hafa forystumenn
flokks og rflds legið undir miklu
ámæli félaga sinna af vinstri-
vængnum. Hafa þeir borið Gonz-t
alez á brýn að hafa fórnað sígild-
um hugsjónamálum sósíalista í
skiptum fyrir huggulegar tölur
um hagvöxt og látið spillast af
þrásetu við kjötkatla ríkis-jöt-
unnar.
En sagnir herma að stór hluti
spænsku þjóðarinnar sé fjarri því
óánægður með núverandi vald-
hafa. Frá því Sósíalistaflokkurinn
hófst til valda árið 1982 er talið að
hætta á upphlaupi valdfíkinna
herforingja hafi liðið hjá og heyri
nú sögunni til. Hagvöxtur kvað
hafa verið um 4,5 af hundraði í
fyrra sem er helmingi meira en
aðrar aðildarþjóðir Evrópuband-
alagsins geta státað af. Stjórnin
hefur samið um inngöngu Spánar
í Evrópubandalagið, markað
skýra stefnu í varnarmálum og
hafið þátttöku í allskyns alþjóð-
legu stússi.
En atvinnuleysið er akkilesar-
hæll ríkisstjómarinnar, 21 af
hundraði vinnufærra manna mæl-
ir götur með hendur í vösum þar
syðra. Verkalýðshreyfingin hefur
ítrekað gagrýnt stjórnvöld fyrir
aðgerðaleysi í málum þessa fólks
og segja forystumenn hennar til
lítils að ná árangri í efna-
hagsmálum ef afraksturinn kem-
ur ekki alþýðu manna til góða.
Maður er nefndur Nicolas Re-
dondo. Hann er leiðtogi verka-
lýðssambands sósíalista og átti
stóran þátt í því á sínum tíma að
Gonzalez var falin forysta flokks-
ins. Hann sagði af sér þing-
mennsku í fyrra í mótmælaskyni
við stefnu ríkisstjómarinnar í
kaupgreiðslu- og eftirlaunamál-
um. Hann hefur þrásinnis gert
því skóna að hann muni leita
samstarfs við verkalýðsfélög
kommúnista um andóf gegn ríkis-
valdi og atvinnurekendum hristi
Gonzalez ekki af sér slyðruorðið
og taki af festu á atvinnuleysis-
málunum.
Þótt fæstir þeirra 862 fulltrúa
flokksþingsins sem ráða ráðum
sínum um helgina þyki líklegir til
þess að beita sér fyrir stefnu-
breytingu í ríkisrekstrinum er
ljóst að Gonzalez hyggst gera
gangskör að því að koma
atvinnuleysi fyrir kattamef og
auka hlut almennings af vaxandi
þjóðarauði. „Það verður líkast
því að rita nýja biaðsíðu í sömu
bókina,“ sagði blaðafulltrúi ríkis-
stjórnarinnar, Javier Solana.
Reuter/-ks.
Föstudagur 22. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7