Þjóðviljinn - 27.01.1988, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 27.01.1988, Blaðsíða 2
'SPURNINGItrn Hefurðu borðað hvalkjöt nýlega? Þorbergur Ólafsson auglýsingamaöur: Já, ég borða hvalkjöt yfirleitt og finnst það gott. í dag borða ég hann helst súran með öðrum þorramat. Ásta Ingvarsdóttir tækniteiknari: Nei. Ég hef aðeins borðað hval- kjöt einu sinni og fannst það vont. Síðan þá hef ég látið það vera. Vilhjálmur Hendriksson rafeindavirki: Nei, ekki nýlega. Ég borða hval- kjöt þegar ég næ í það, því mér finnst það gott. Ingíbjörg Þórhallsdóttir sjúkraliði: Nei. Ég hef smakkað það, en mér finnst það vont og ekki fyrir minn smekk. Pétur Óli Pétursson verslunarmaður: Nei, það hef ég ekki. Þó hef ég borðað það og finnst það gott. En’ súran hval borða ég um leið og ég kemst í tæri við hann. FRÉTTIR Verðtrygging lána Myrkviðir vísitalna Lánsloforð Húsnœðisstjórnar hækka ekki í takt við bankalán eir sem nú eru að fá greidd út lán hjá Húsnæðisstjórn hafa sumir hverjir haft lánsloforð undir höndum í heilt ár. I mörg- um tilvikum hafa menn slegið bankalán út á lánsloforðin og þurfa að endurgreiða þau nú ásamt verðbótum samkvæmt hækkunum á lánskjaravísitölu. Á biðtímanum hafa veitt lánsloforð Húsnæðisstjórnar breyst í takt við byggingarvísitölu en hún hef- ur ekki hækkað líkt því eins mikið og lánskjaravísitalan. Vitað er um mann sem fékk fyrir tæpu ári loforð um að fyrri hluti húsnæðisstjórnarláns yrði greiddur út í febrúar 1988, 603 þúsund krónur sem breytast skyldu samkvæmt byggingarvísi- tölu. Honum tókst að slá lán tryggð með lánskjaravísitölu út á loforð Húsnæðisstjórnar. í næsta mánuði fær hann 710 þúsund króna húsnæðisstjórnarlán en þarf þá að greiða 741 þúsund krónur auk vaxta til að greiða upp bráðabirgðalánið. Misgengi vísitalna stafar m.a. af efnahagsaðgerðum ríkisstjórn- arinnar. Lánskjaravísitalan er samsett úr framfærsluvísitölu að tveim þriðju en byggingarvísitölu að einum þriðja. Framfærslu- kostnaður hefur rokið upp m.a. vegna álagningar matarskattsins en byggingarvísitalan hefur vaxið hægar og jafnvel lækkað nú í jan- úar vegna breytinga á tollum og vörugjaldi. ÓP Á síðustu árum hefur islenskum kaupskipum fækkað úr 50 í 34 og farmönnum fækkað um 300 en erlendum leiguskipum stórfjölgaö. ASÍ Kaupskip undir fölsku flaggi Viðskiptaráðherra grípi í taumana. Fjölgun erlendra leiguskipa stöðvuð. íslenskskip verkefnalaus á sama tíma ogerlendum leiguskipumfjölgar Miðstjórn ASÍ skorar á við- skiptaráðherra að stöðva nú þegar öll leyfi til gjaldeyrisyfir- færslu vegna töku erlendra skipa sem mönnuð eru erlendum sjó- mönnum og ætluð til reglubund- inna siglinga að og frá landinu, segir m.a. í samþykkt miðstjórn- ar Alþýðusambandsins. í samþykktinni er bent á að ís- lensk skipafélög hafi að undan- förnu tekið á leigu kaupskip með erlendum áhöfnum og íslensk kaupskip legið langtímum saman verkefnalaus í fslenskum höfn- um. Á sama tíma og íslenskum kaupskipum hefur fækkað á síð- astliðnum árum úr 50 skipum í 34 og farmönnum fækkað um 300, eru um þessar mundir 12 erlend leiguskip í reglubundnum sigling- um fyrir íslensk skipafélög. Þar af eru 7 skipanna eingöngu mönnuð útlendingum. „Miðstjórn ASÍ mótmælir harðlega gegndarlausum leigu- tökum erlendra kaupskipa sem mönnuð eru erlendum sjón- mönnum. Jafnframt er varað við þeirri þróun að í vaxandi mæli eru skip undir svokölluðum „þæg- indafánum" í rekstri íslenskra Samkvæmt tölum frá ávana- og fíkniefnadeild lögreglunnar voru 447 einstaklingar ákærðir fyrir að flytja inn, dreifa eða neyta ólöglegra fíkniefna á sl. ári. Árið 1986 voru 380 manns ákærðir fyrir þessar sömu sakir. Karlar eru í miklum meirihluta ákærðra, 366 en 81 kona. Um kaupskipaútgerða mönnuð ís- lendingum sem lögskráðir eru er- lendis. Ljóst er að þess vegna greiða útgerðarmenn slíkra skipa ekki það sama í sameiginlega sjóði og aðrir íslenskir atvinnu- rekendur." þriðjungur þeirra sem ákærðir voru í fyrra höfðu ekki verið ákærðir áður af ávana- og fíkni- efnadeildinni. Flestir þeirra sem ákærðir voru eru neytendur en 85 voru ákærðir fyrir dreifingu og 39 fyrir inn-’* flutning. Þeir yngstu sem ákærðir voru eru 15 ára en flestir ákærðu eru á aldrinum 20-30 ára. Kvenréttindafélagið Sérstakar aðgerðir í þágu kvenna Afmœlisfundur á Litlu- Brekku í kvöld Sérstakar aðgerðir í þágu kvenna - hvernig má nýta 3. grein jafnréttislaganna? nefnist erindi sem Vilborg Harðardóttir blaða- maður flytur á afmælisfundi Kvenréttindafélagsins á veitinga- húsinu Litlu-Brekku í kvöld. Fundurinn hefst kl. 19.30 með borðhaldi og er sérstaklega hald- inn í tilefni 81 árs afmælis félags- ins. í 3. grein jafnréttislaganna, sem Vilborg ætlar að fjalla um, er heimild til að framkvæma sér- stakar aðgerðir í þágu kvenna til að bæta stöðu þeirra t.d. við stöðuveitingar, nefndastörf o. fl. Að loknu framsöguerindi verða almennar umræður sem Lára V. Júlíusdóttir formaður félagsins stýrir. Félagsmenn eru hvattir til að mæta og tilkynna þátttöku á skrifstofu félagsins. Fiskeldi Söluskaftti mótmælt Stjórn Landssambands fískeld- is- og hafbeitarstöðva hefur harð- lega mótmælt álagningu 25% söluskatts á vatnafíska, lax og si- lung á sama tíma og 10% sölu- skattur er lagður á annan neyslu- físk. Segja fiskeldismenn að með þessari skattlagningu sé vegið að ört vaxandi atvinnugrein og að stórlega hafi nú dregið úr kaupum almennings á laxi og sil- ungi. - Það er því verulegt áhyggju- efni að á tímum umræðna um heilbrigt mataræði skuli vatna- fiskar vera skattlagðir sem um lúxusvöru væri að ræða, segja fi- skeldismenn og skora á stjórnvöld að lækka söluskattinn í það minnsta niður í 10%. -Ig- Fíkniefni Um 450 ákærðir Sífellt fleiri ákœrðir en fœrri nýliðar 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvlkudagur 27. janúar 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.