Þjóðviljinn - 27.01.1988, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 27.01.1988, Blaðsíða 11
ERLENPAR FRETTIR ísrael og herteknu svœðin Berja bamshafandi konur JassírArafatsegir27palestínskar konur hafa misstfóstur eftir barsmíðar ísraelsdáta. Rabin sœtir æ meiri gagnrýni, jafnt innanlands sem utan fsraelskur dáti mundar vopn sín frammi fyrir palestínskum ungmennum á Gazasvæðinu. Varnarmálaráðherra ísraels sætir æ meiri gagnrýni innan- lands og utan fyrir barsmíða- stefnu sína gagnvart Palestínu- mönnum á herteknu svæðunum. Engu að síður virðist hann ekki ætla að iáta segjast og ísraelskir dátar halda uppteknum hætti við misþyrmingar á vesturbakkanum og Gazasvæðinu. Ríkisstjórnir ýmissa arabalanda reyna að vinna hugmyndum um friðar- stefnu um málefni Mið- Austurlanda fylgi á ný. ísraels- stjórn hyggst reka fimm Palest- ínumenn úr landi til viðbótar við þá sem áður hafa verið reknir frá heimkynnum sínum á Gazasvæð- inu þótt ríki heims hafi fordæmt slíkar lögleysur. Jassír Arafat, leiðtogi Frelsis- samtaka Palestínumanna sagði á blaðamannafundi í Túnis í gær að hann hefði sannanir fyrir því að ísraelskir hermenn hefðu barið 27 barnshafandi palestínskar konur og orsakað fósturlát af yf- irlögðu ráði. „Það er hin nýja stefna ísraelskra ráðamanna að drepa palestínsk börn meðan þau eru enn í móðurkviði,“ sagði Arafat. ísraelskir embættismenn við- urkenndu í gær að barsmíðunum væri ekki síður ætlað að „skjóta palestínskum ungmennum skelk í bringu“ en koma á friði og spekt á herteknu svæðunum. En arabísk- ir íbúar Gaza og vesturbakka Jór- danár segja það vopn gersamlega hafa snúist í höndum ísraels- manna. „Nú er svo komið að eng- inn óttast lengur ísraelska dáta,“ skrifar palestínski blaðamaður- inn Awad Abdel Fattah, „mótmælendur hugsa fyrst og fremst um máistað sinn og láta ekki kúga sig til hlýðni með byss- ukúlum og bareflum." ísraelskir hermenn skutu og særðu ungan Palestínumann í bænum Jenín á vesturbakka Jór- danár í gær. Þrír Palestínumenn sem liggja á sjúkrahúsinu í Ram- allah með mjög slæma áverka eftir barsmíðar, meðal annars beinbrot í andliti, greindu frétta- manni Reuters frá því í gær að ísraelskir dátar hefðu ruðst inná heimili þeirra á mánudaginn, flutt þá á afvikinn stað og barið þá látlaust alla aðfaranótt þriðju- dags. Yitzhak Rabín var gagnrýndur harðlega af vinstrisinnuðum þingmönnum í gær sem segjast hafa í höndunum sannanir fýrir gegndarlausum fantaskap bar- smíðaglaðra dáta hans. Hann hefur ennfremur sætt gagnrýni erlendis frá, til dæmis frá banda- rískum gyðingum. Ríkisstjómir ýmissa araba- landa, svo sem Egyptalands og Jórdaníu, reyna nú að vinna hug- myndinni um alþjóðlega ráð- stefnu um frið £ Mið-Austurlönd- um fylgi meðal ríkisstjórna á Vesturlöndum og í Páfagarði. Hosni Mubarak Egyptalandsfor- seti hefur gert víðreist að undan- förnu og kom til Bandaríkjanna í gær. Ráðgert er að bæði hann og Hussein Jórdaníukóngur eigi fund með Jóhannesi Páli páfa á næstunni. Munu þeir leggja mjög hart að honum að vinna að fram- gangi friðarfundarins. Reuter/-ks. Bangladesh Verkfall númer 20 Mikil þátttaka var í tuttugasta allsherjarverkfalli stjórnarandstœðinga til höfuðs Ershadforseta Oeirðalögregla Hossains Mo- hammads Ershads forseta Bangladesh slóst við stjórnar- andstæðinga í gær en þeir skipu- lögðu daglangt verkfall sem virð- ist hafa tekist með ágætum, að minnsta kosti voru samgöngur og hverskyns viðskipti í ólestri af völdum þess. Að sögn forystu- manna stjórnarandstöðuflokka slösuðust að minnsta kosti 100 manns í átökunum í gær. Lög- regluyfirvöld tjáðu frétta- mönnum að 45 einstaklingar hefðu verið teknir höndum fyrir að reyna að vera með uppsteyt. reglu við háskóla borgarinnar. I Chittagong Iögðu um 25 þús- und hafnarverkamenn niður vinnu í gær og víða slógust verk- fallsmenn við kylfubera Ershads. Að sögn hinna síðarnefndu munu 50 manns hafa slasast þar í bæ. Hasina var í gærkveldi hæst- ánægð með þátttöku alþýðu manna í verkfallinu. Sagði hún eins gott fyrir Ershad að segja af sér þegar í stað þar eð ella kynni honum að verða sparkað frá völdum á næstunni. Reuter/-ks. Lögreglumenn í Dakka lumbra á stjórnarandstæðingi. Enn þráast Ershad við að segja af sér. Spánn/Nicaragua Ortega leggur land undir fót Hyggst vinna stjórnir Spánar, Páfagarðs, Ítalíu og Svíþjóðar til liðs við friðarstarfí Mið-A meríku Verkfallið í gær var hið tuttug- asta í röð slíkra frá því breiðfylk- ing stjórnarandstöðuflokka sagði Ershad forseta stríð á hendur í nóvember í fyrra. Sem kunnugt er vilja stjórnarandstæðingar að Ershad segi af sér þegar í stað enda hafi hann komist í embættið með bolabrögðum og helberri fúlmennsku árið 1982. Ákvörðunin um verkfallið í gær var tekin eftir að 17 stjórnar- andstæðingar voru skotnir til bana í hafnarbænum Chittagong á sunnudaginn. Peir höfðu safn- ast saman á fjölförnum stað til að hlýða á mál leiðtoga Awami- bandalagsins, Sheikh Hasinu, sem þar var á ferð. Lögregluyfirvöld og embættis- menn kváðu banka og verslanir hafa verið lokuð um land allt í gær og samgöngur í algeru lág- marki. Yfirvöld í Dakka, höfuðborg Bangladesh, kváðu verkfallið hafa farið friðsamlega fram í gær utan hvað eitthvað kastaðist í kekki milli námsmanna og lög- Vel var tekið á móti Daníel Or- tega, forseta Nicaragua, á Barajas flugvelli í Madríd í gær en för hans þangað er liður í bar- áttuherferð fyrir auknum stuðn- ingi Evrópuríkja við friðaráform í Mið-Ameríku. Blaðamenn fengu ekki að koma nærri Ortega á flugvellin- um og öryggisgæsla var í há- marki. Hann mun dvelja á Spáni í tvo daga en þvínæst er ferðinni heitið til Ítalíu, þá Páfagarðs og loks verður hann gestur Svía. Talsmenn spænsku ríkisstjórn- arinnar sögðu að heimsókn Or- tegas hefði átt sér skamman að- draganda og hefði hann sjálfur átt frumkvæði að henni. Létu þeir þess ennfremur getið að Fel- ipe Gonzalez forsætisráðherra myndi ræða ítarlega við forsetann um stöðu mála í Mið-Ameríku og hygðist gera allt sem í hans valdi stæði til þess að stuðla að friði í álfunni. Ortega ræddi við spænska fjöl- miðlamenn nokkru eftir komu sína til Madríd í gær og ítrekaði fyrri ummæli sín um að nú stæðu þjóðir Mið-Ameríku á tíma- mótum, héðanífrá yrði annað tveggja unnið af heilindum að friði ellegar að styrjaldarbál blossaði upp fyrir tilstuðlan Bandaríkjastjórnar og erindreka hennar. Hann kvaðst ennfremur Vera þeirrar skoðunar að Spán- verjar og aðrar Evrópuþjóðir ættu að eiga hlutdeild í þróun álf- unnar og ljá friðaráætlun forseta fimm ríkja á þessum slóðum heilshugar og virkan stuðning. Ákvörðunin um för Ortegas til Evrópu var tekin í Managua skömmu eftir að Ronald Reagan Bandaríkjaforseti Iét það boð út ganga að hann hygðist af öllum mætti reyna að fá bandaríska þingið til að samþykkja viðbótar fjárframlög til málaliða sinna í Mið-Ameríku, svonefndra Kontraliða. Ríkisstjórn Nicarag- ua kveður slíkan fjáraustur ein- ungis leiða til frekari átaka á svæðinu og grafa undan friðar- áætlun forsetanna fimm en í henni er skýrt tekið fram að ríkis- stjórnum sé bannað að hygla uppreisnarhópum utan landa- mæra ríkja sinna. Reuter/-ks. Ítalía Goría fer gálgafrest Einhverra hluta vegna hlaut hin ósamstœða ríkisstjórn Ítalíu traustsyfirlýsingu þingsins Hin sex mánaða gamla ríkis- stjórn Giovannis Gorias hélt velli þegar tvívegis voru greidd at- kvæði um trauststillögu á hana á ítalska þinginu á mánudagskvöld- ið. Engu að síður er talið að for- sætisráðherrann eigi mikið og vandasamt verk fyrir höndum að sigla ljárlögum gegnum óstýriláta löggjafarsamkunduna. Goria fór þess sjálfur á leit við þingheim að hann segði af eða á um stuðning sinn við fimm flokka stjórn sína eftir að hún hafði hvað eftir annað mátt þola smánarlega ósigra í leynilegum atkvæða- greiðslum um ákvæði fjárlaga ársins í ár. Stjórnarþingmenn virðast nefnilega ítrekað hafa hlaupist undan merkjum og því síst að furða þótt Goria væri far- inn að efast um einlægan stuðn- ing þeirra við sig og sín áform. En ríkisstjórnin vann glæsta sigra í hvoru tveggja traustskjör- inu, 348-209 og 349-210. Mestum vandkvæðum hafa kommúnistar valdið Goria. Þeir báru fram tillögu um að þrjú þús- und miljörðum líra til viðbótar upphaflegum útgjöldum yrði á næstu þrem árum varið til fram- færslu berfætlinga. Þetta var sam- þykkt á þingi með 20 atkvæða meirihluta þrátt fyrir hatramma baráttu Gorias sem var allur af vilja gerður að hindra þessa ósvinnu enda góður og gildur frj álshyggj udrengur. Reuter/-ks. Mlðvikudagur 27. Januar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.