Þjóðviljinn - 27.01.1988, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 27.01.1988, Blaðsíða 6
ALÞYÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið Ólafsvík Steingrímur J. Sigfússon og Skúli Alexandersson veröa á fundi í Mettubúð fimmtudags- kvöldið 28. janúar. Fundurinn hefst kl. 20:30. Allir velkomnir Stjórnln Skúli Steingríi rimur Alþýðubandalagið Akureyri Bæjarmálaráðsfundur Fundur í Lárusarhúsi, mánudaginn 1. febrúar, kl. 20.30. Dagskrá: 1) Dagskrá bæjarstjórnarfundar 2. febrúar. 2) Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar. Stjórnin Alþýðubandalagið Stjórnmálafundir á Austurlandi Brelðdalur, opinn fundur í Staðar- borg, fimmtudaginn 28. janúar kl. 20:30. Hjörleifur Gutt- ormsson alþing- ismaður heldur áfram ferð um kjördæmið, kemur á vinnustaði og verður á fundum sem hér segir: Reyðarfjörður, aðalfundur Alþýðu- bandalagsfélags Reyðarfjarðar í Verkalýðshúsinu, föstudaginn 29. janúar kl. 20:30. Alþýðubandalagið - kjördæmisráð Alþýóubandalagið í Kópavogi Þorrablót fólagsins verður haldið í Þing- hóli, Hamraborg 11, laugardag- inn 30. janúar. Húsið verður opnað kl. 19.00 og verður þá boðið upp á lystauka. Blótstjóri verður Sigurður Grétar Guð- mundsson. Heimir Pálsson stjórnar fjöldasöng. Hljómsveit- in Haukar leikur fyrir dansi. Miðasala er í Þinghóli miðvikudaginn 27. janúar kl. 17-19 og fimmtudaginn 28. janúar kl. 17-22 og verða þá borð frátekin um leið. Miðaverð er aðeins kr. 1.750.- Stjórnin. pplpf}^ ^ jr m,' Heimlr Sigurður Alþýðubandalag Selfoss og nágrennis Almennur félagsfundur Þingmennirnir Margrét Frímannsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon ræða þjóðmálin við félaga og stuðningsmenn Alþýðubandalagsins, miðvikudaginn 27. janúar kl. 20.30. ATH! Fundurinn verður í sal verkalýðsfólagsins Þórs, Árvirkjahúsinu við Eyra- veg. Mætiðvelogstundvíslega. Stjórnin ÆSKULÝÐSFYLKENGIN Æskulýðsfylkingin Stjórnarfundur Æskulýðsfylkingar Alþýðubandalagsins verður haldinn á ísafirði dagana 28. janúar til 1. febrúar. Dagskrá verður auglýst síðar. Atkvæðisrétt á stjórnarfundum ÆFAB eiga framkvæmdaráðsmeðlimir ÆF, auk eins full- trúa frá hverri deild. Rótt til setu á stjórnarfundi eiga allir meðlimir ÆFAB og gestir þeirra. Félagsfundur í ÆFAH verður haldinn þriðjudaginn 26. janúar kl. 20.00. Allir velkomnir. SKÁK_______________ Jóhann heldur forystunni Jafntefli eftir einn leik í biðskákinni. Short ogJúsúpov sigurvœnlegir Þótt aðeins tvær skákir hafl verið tefldar á áskorendamótinu í Saint John í Kanada eru iínur þegar farnar að skýrast í nokkr- um einvígjanna. Englendingur- inn Nigel Short virðist ekki ætla að bregðast vonum landa sinna, hann hefur unnið báðar skákir sínar við Ungverjann Gyula Sax, og má teljast öruggur um sigur. Short er yngsti keppandinn í Sa- int John, aðeins 22 ára gamali, og sjá margir í honum líklegan áskoranda Garys Kasparovs. HELGI ÓLAFSSON SKRIFAR FRÁ ST. JOHN Enn er ekki gott að segja til um það hvernig Jóhanni Hjartarsyni reiðir af í einvíginu við Kortc- hnoi, en taflmennskan hingað til lofar góðu, þótt hann hafi teygt 8 sig heldur of langt í annarri skák- 7 inni. Kortchnoi fékk mjög þægilega o stöðu úr byrjuninni, en Jóhanni - tókst með nákvæmri taflmennsku að jafna taflið og náði síðan smátt 4 og smátt betri stöðu. Hann missti svo af vænlegri leið í tímahrak- inu, en jafnteflið varð reyndin eftir einn leik í biðskákinni. Þótt Kortchnoi hafi hafnað jafnteflis- tilboði Jóhanns í fyrradag bauð hann það sjálfur í gær. (62. leikur Kortchnois var Kb5, Jóhann svaraði með Be3, - og hvítur finn- ur enga leið.) Jóhann hefur nú hvítt gegn Kortchnoi í þriðju ein- vígisskákinni í kvöld. Hollendingurinn Jan Timman hefur teflt fremur ósannfærandi í einvígi sínu við Sovétmanninn Valery Salov. Báðum skákunum hefur lokið með jafntefli, en þar hefur verið fátt um fína drætti. Artúr Júsúpov hefur hinsvegar teflt af miklu öryggi gegn landa sínum Jan Ehlvest, og er greini- lega sterkari en hinn tiltölulega óreyndi Eistlendingur. Júsúpov vann fyrstu skákina, og var ná- lægt sigri í annarri skákinni. Þá hefur orðið jafntefli í báð- um skákum Vaganjans frá Sovét- ríkjunum og Ungverjans Lajos Portisch, og er einsog hvorugur þori að taka mikla áhættu í þessu einvígi. Hinn sovéski Andrei Sokolov vann öruggan sigur gegn heima- manninum Kevin Spraggett í annarri skákinni, en Spraggett var einsog Sax talinn „dæmdur maður“ í þessari keppni. í>á vakti athygli að Englend- ingurínn Speelman náði forystu í einvígi sínu við Yasser Seirawan frá Bandaríkjunum þrátt fyrir að hafa klúðrað yfirburðastöðu í fyrstu skákinni. Það hefur komið fram að að- stæður eru til fyrirmyndar hér í Saint John, - nema að einu leyti. Friðrik Ólafsson vakti máls á því þegar mikið tímahrak var yfirvof- andi á fjðrum borðum að júgó- slavneski stórmeistarinn Gligoric var eini dómarinn sem var ná- lægur. Þá hékk sýningartjaldið fyrir ofan þá Jóhann og Kortc- hnoi hálfskakkt uppi, þannig að fyrsta reitaröðin hvarf alveg af borðinu, og einnig tímaskráning og leikj afjöldi. Nóg um það. Hér kemur skák þeirra Sax og Shorts úr annarri umferð. Hvítt: Guyla Sax Svart: Nigel Short Spænskur leikur 1. e4 e5 2. RÍ3 Rcó 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 d6 8. c3 0-0 9. h3 Bb7 10. d4 He8 11. a4 h6 12. Rbd2 Bf8 13. Bc2 exd4 14. cxd4 Rb4 15. Bbl c5 16. d5 Rd7 17. Ha3 c4 18. axb5 axb5 19. Rd4 Hxa3 20. bxa3 Rd3 21. Bxd3 cxd3 a b c d e f g r • Ég hef farið hratt yfir sögu. Þessi staða kom upp í 14. einvíg- isskák Kasparovs og Karpovs í þriðja einvígi þeirra. Kasparov vann eftir harða baráttu, en það var ekki útá byrjunina. Fyrir ól- ympíumótið í Dubai 1986 var leikurinn 22. He3 tekinn til at- hugunar en síðar beitti Jón L. Árnason honum með árangri á skákmóti í ísrael. Sax fer að ráði hans en missir fljótlega þráðinn. 22. He3 Re5 23. Rxb5? Þetta er ekki góður leikur. Við litum aðeins á 23. Db3, sem færir hvítum heldur betri möguleika. 23. ... Da5 24. Rd4 1X3! Svarta drottningin og peðið á d3 vinna feiknalega vel saman og bæta fyllilega upp óverulegt lið- stap svarts. 25. R2b3 Ba6 26. Bd2 Db2 27. Bb4 g6 28. f4?! Vafasamur leikur. Sax var einsog venjulega kominn í mikið tímahrak, en hann ætti að vita að opnun stöðunnar þjónar aðeins hagsmunum svarts. 28. ... Rc4 29. Hxd3 Hxe4 30. Df3 He8 31. Kh2 Bg7 32. Rc6 De2 33. Rbd4 Dxf3 34. Hxf3 He4 35. Rb3 He2 36. Rcd4 He4 37. Rc6 He2 38. Kg3?? Þessi hrikalegi afleikur á víst að heita vinningstilraun af hálfu Sax. Hann gat endurtekið leiki og sett stefnuna á jafntefli þótt Short geti í raun og veru teflt áfram. En í einni hendingu nær Englending- urinn nú vinningsstöðu. 38. ... Re3 39. h4 Hxg2+ 40. Kh3 Bc8+ Sax sást yfir þennan einfalda leik. Nú er staða hans vonlaus. 41. f5 Bxf5+ 42. Hxf5 gxf5 43. Bxd6 Hb2 44. Re7+ Kh7 45. Rc5 Bf6 - og Sax gafst upp. Nigel Short hinn enski, einn líklegra áskorenda. 6 SÍÐA - ÞJÓÐViLJINN Miðvlkudagur 27. janúar 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.