Þjóðviljinn - 27.01.1988, Qupperneq 4
LEIÐARI
Afleitir
Kjarasamningarnir sem undirritaöir voru á
ísafirði í fyrrakvöld hafa ekki vakið mikinn
fögnuð, en það segir sitt um samningana hverjir
hafa orðið til að Ijúka á þá lofsorði. Það hafa
nefnilega gert ráðherrarnir Jón Baldvin Hanni-
balsson og Þorsteinn Pálsson og framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambandsins, Þórarinn V.
Þórarinsson.
Samningurinn er metinn sem 12-13 prósent
hækkun í tölum ofaná lægstu laun, heldur
minna á hærri flokka. í honum eru ákvæði um
hækkun námskeiðsálags og starfsaldurshækk-
anir sem er hvorttveggja jákvætt, en segir lítið í
útborguðum krónum, - og nánast brjóstum-
kennanleg er sú endurbót á orlofi sem skrifað
var undir fyrir vestan: einn orlofsdagur í viðbót
fyrir þá sem hafa unnið í áratug hjá sama fyrir-
tækinu.
Þeir fyrir vestan treysta svo á ríkisstjórnina
með skattaívilnanir, og er hugsanlegt að þannig
bættust við uppundir þúsund krónur á mánuði
hjá þeim sem nú eru yfir skattleysismörkunum,
- þó því aðeins að önnur samtök fylgi í kjölfarið.
Hugsanleg matartímagreiðsla og breyting á
eftirvinnu í næturvinnu voru settar í nefnd, hugs-
anlegt hlutaskiptakerfi líka.
Þetta er ekki kauphækkun. Talið er að frá
október til áramóta sé kjararýrnun taxtanna um
tíu prósent, og það sem verkamenn á Vestfjörð-
um fá útúr samningunum vegur þessa rýrnun
ekki upp. Við þessi tíu prósent bætast síðan
áhrif matarskattsins þannig að niðurstaðan á
ísafirði er kjaraskerðing þegar tekið er tillit til
aukinna byrða síðustu mánaða.
Að auki hefur verið samið um svokölluð græn
strik, sem virðast tákna að verkalýðsfélögin hafi
kratasamningar
leyfi til að byrja á samningum um launatölur
uppá nýtt ef verðbólguspár standast ekki.
Þá er miðað við 14 prósent verðbólgu á þessu
ári, verðbólgu sem er hærri en umsamin
kauphækkun en ævintýralega miklu lægri en
verðbólga undanfarinna mánaða.
Eftir samningana fyrir vestan er mánaðarlegt
taxtakaup í lægsta flokki 31.475 krónur. Undan-
farið hafa laun fiskvinnslufólks hinsvegar verið
uppundir 60 þúsund krónur, - og Ijóst er að með
samningunum fyrir vestan er enganveginn
breytt hlutfalli milli taxta annarsvegar og yfir-
vinnu og bónusgreiðslna hinsvegar.
Viðbrögð oddvita launafólks í öðrum lands-
hlutum hafa hingaðtil verið neikvæð. Þessir
samningar eru „ekki fyrirmynd" segir Björn
Grétar Sveinsson á Höfn. Jón Kjartansson í
Eyjum segir fiskvinnslufólk þar þurfa 20 til 25
prósent hækkun, langt yfir tölunum að vestan.
Þröstur Ólafsson hjá Dagsbrún telur af og frá að
ísafjarðarsamningurinn gangi yfir línuna og
Guðmundur J. Guðmundsson segir að við
fyrstu sýn lítist honum illa á, það „þýði ekki að
bjóða fólki þetta almennt". Birna Þórðardóttir
segir hér í Þjóðviljanum í dag að í raun muni
óverðtryggðir láglaunasamningar einsog ísa-
fjarðarsamningurinn þýða að launabilið aukist.
„Þau félög sem möguleika og aðstöðu hafa
munu semja fyrir sig einsog síðustu ár en taxta-
fólkið situr eftir og verkalýðshreyfingin heldur
áfram að molna sundur.
Vestfirðir eru í mörgu tilliti sérstæðir, og
Vestfirðingar hafa áður farið eigin leiðir í kjara-
málum. Það verður þó ekki séð hvaða sérað-
stæður knýja forvígismenn verkalýðsfélaganna
fyrir vestan til að semja um kjaraskerðingar, og
undarlegt að þurfa að sitja sólarhringum saman
yfir slíku verki.
Enda bendir margt til þess að helstu forkólfar
vestra hafi látið undan annarlegum þrýstingi
samflokksmanna sinna í ráðherrasætum syðra,
þeim sömu og hafa undanfarið sett á ræður um
„nöldur“, „sífranda", „heimtufrekju" og „dekur“
þegar minnst er á verðhækkanir og kjararýrnun.
Thor Vilhjálmsson
Þær gleðifréttir bárust frá Þórshöfn í Fær-
eyjum í gær að bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs yrðu í ár veitt einum helsta rithöfundi
okkar, Thor Vilhjálmssyni.
Það verður í þriðja sinn sem íslendingur
hlýtur þessa viðurkenningu, og í fyrsta sinn sem
verðlaunin eru veitt fyrir íslenska skáldsögu.
Thor Vilhjálmsson er einstaklega vel að
þessum heiðri kominn. Hann hefur fylgt þeirri
hefð fremstu menntamanna okkar að standa
föstum fótum í íslenskri þjóðmenningu og sjá
um leið vítt og of vítt um veröld hverja. Hann
hefur sett listræn markmið ofar stundarvinsæld-
um, og um leið verið djarfur sóknarmaður
aukinnar menningar og fulls þjóðfrelsis.
Þjóðviljinn óskar Thor Vilhjálmssyni innilega
til hamingju og þakkar honum forna vináttu og
nýja.
Grámosinn glóir, og Islendingar allir sam-
fagna skáldi sínu. -m
KUPPT OG SKORIÐ
Böggull fylgi
skammrifi
Furðuleg skrif í Tímanum í
gær. Öll íslenska þjóðin gleðst
innilega yfir velgengni Jóhanns
Hjartarsonar stórmeistara í ein-
vígi hans við Viktor Kortsnoj sem
nú fer fram í St. John vestur í
Kanada. Jóhann vann fyrstu
skákina og áður en fréttir komu
af umsömdu jafntefli stórmeist-
aranna í gærkvöldi biðu allir
skákáhugamenn eftir fréttum af
annarri skákinni. Endaði hún í
jafntefli, eða gæti það skemmti-
lega gerst að Jóhann ynni aftur?
Þá yrði nú aldeilis gaman að lifa
fyrir okkur íslendinga.
En Tíminn kom auga á það sem
enginn annar sá. Það var högg-
ormur í þessari Paradís. Tíminn
telur sem sagt stórfellda hættu á
að Skáksamband íslands geti far-
ið á hausinn ef Jóhann vinnur ein-
vígið við Kortsnoj.
,Jóhann Hjartarson, óskabarn
íslenskrar skáklistar, gœti komið
Skáksambandi íslands í verulega
fjárhagserfiðleika, ef hann sigrar
Viktor Kortsnoj í einvígi þeirra í
heimsmeistarakeppninni í skák
sem nú fer fram í St. John í Kan-
ada. Einvígið sem nú er háð mun
kosta Skáksamband íslands að
minnsta kosti 800 þúsund krónur,
jafnvel vel á aðra milljón, þegar
upp verður staðið og á Skáksamb-
andið að öllu óbreyttu enga
möguleika að fjármagna annað
einvígi strax í kjölfarið. “
Það er eins gott að Jóhann láti
ekki áhyggjur af fjármálum
Skáksambandsins trufla sig við
taflmennskuna fyrir vestan. I
rauninni er hér ekki um neitt
vandamál að ræða.
Fari svo að Jóhann haldi áfram
eftir einvígið í St. John og verði
enn í þeim hópi, sem berst um
réttinn til að skora á heimsmeist-
arann, þá verða þeir án efa fjöl-
margir sem vilja láta eitthvað af
hendi rakna til að standa straum
af því stríði.
Jóhann Hjartarson má ekki
láta þessi illa tímasettu Tímaskrif
um fjármál Skáksambandsins
hafa hin minnstu áhrif á sig. Von-
andi að Tímafréttir berist ekki til
Kanada.
Matarskattur
veldur óróa
Ljóst er að fáar aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar hafa vakið jafn al-
menna reiði og álagning matar-
skattsins alræmda. Mönnum
blöskrar að ráðherrar skuli hafa
iátið sér detta í hug að rétta af
halla ríkissjóðs m.a. með því að
leggja söluskatt á matvæli, því að
sú skattheimta mun leggjast með
hlutfallslega mestum þunga á lág-
launafólk.
í Reykjavíkurbréfi Morgun-
blaðsins síðastliðinn sunnudag er
fjallað um matarskattinn og það
fer ekki milli mála að þar á bæ
gera menn sér fyllilega grein fyrir
því að ekki dugar að styðja þessa
skattheimtu skilyrðislaust. Samt
kemur fram einsog örlítil undrun
á því að almenningur skuli láta
hækkað verð á lífsnauðsynjum
skyggja á gleðina yfir því að með
straumlínulöguðu skattkerfi eigi
að fækka undanskotum á skatti.
Kannski kennir reynslan
mönnum að því hærri sem sölu-
skatturinn er þeim mun stærri er
sjóðurinn sem þjófarnir geta látið
greipar sópa um.
„Þegar hins vegar eru gerðar
ráðstafanir, sem öðrum þrœði
miða að því að tryggja betur skil á
söluskatti, bregðast menn hinir
verstu við. Það sýnir náttúrlega
fyrst og fremst, að á íslandi er
fiskur ákaflega viðkvœmur fyrir
verðhækkunum vegna þess, að
hvað sem öðru líður erfiskur dag-
leg fæða meginþorra þjóðarinn-
ar. I annan stað eru búvörur afar
viðkvæmar fyrir verðhækkunum
vegna þess, að þær eru einnig dag-
legfæðafólks og lambakjöter enn
sem fyrr helzti helgarmatur fólks.
Þetta hefur kannski gleymzt síð-
ustu árin, þar sem menn hafa tal-
ið, að neyzluvenjur fólks hafi
tekið miklum breytingum. Senni-
lega eru þær að þessu leyti minni
en œtlað hefur verið. “
Ráðherraraunir
Jón Baldvin Hannibalsson
fjármálaráðherra og formaður
Alþýðuflokksins hefur lagt mikla
áherslu á að gera matarskattinn
að „sínu máli“. Ekki er ljóst
hvort hann hefur gengið til þessa
leiks með hugarfari þess manns
sem tekur öllu því með jafnaðar-
geði sem að höndum ber, eða
hvort hann hefur í raun og veru
talið að það yrði honum og flokki
hans til pólitísks framdráttar að
klessa sig upp við hinn óvinsæla
matarskatt.
Að sjálfsögðu hafa viðbrögð
almennings verið reiði og sú reiði
hefur einkum beinst gegn Jóni
Baidvini fjármálaráðherra. Auð-
vitað bera aðrir ráðherrar og
þingmenn stjórnarflokkanna
sinn skerf af ábyrgðinni á matar-
skattinum. Það er engin ástæða
til að láta Jón Baldvin einan bera
alla sök, hann hefur meir en nóg á
sinni könnu. Þetta sér höfundur
Reykjavíkurbréfsins og reynir að
bera nokkurt blak af aðfram-
komnum fjármálaráðherranum:
„Deilurnar um „matarskatt-
inn“ hafa brunnið mest á Jóni
Baldvin Hannibalssyni, fjármála-
ráðherra, eðli málsins sam-
kvæmt. Skatta- og tollamál heyra
undir hans ráðuneyti og þess
vegna eðlilegt, að hann verði
helzti málsvari ríkisstjórnarinnar
í málinu. Það er að vísu ekki öf
undsvert hlutskipti fyrir formann
Alþýðuflokksins, en hann hlaut
þó að vita að hverju hann gekk,
þegar hann ákvað að taka að sér
embætti fjármálaráðherra. Það
embœtti hefur hingað til ekki ver-
ið talið heppilegt ráðherraembætti
fyrir flokksformann en bœði Þor-
steinn Pálsson og síðar Jón Bald-
vin hafa bersýnilega metið það
svo, að nauðsynlegt væri fyrir
flokksformann að hafa þau völd,
sem fylgja þessu ráðherraemb-
ætti. “ qp
þJÓÐVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Rlt8tjórar:Árni Bergmann, MörðurÁrnason, óttarProppé.
Frótta8tjóri: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Elísabet K. Jökulsdóttir, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Hrafn Jökulsson, HjörleifurSveinbjörnsson, Kristín Ólafsdóttir,
Kristófer Svavarsson, Logi Bergmann Eiðsson (íþróttir) MagnúsH.
Gíslason, Ólafur Gíslason, Ragnar Karlsson, SigurðurÁ.
Friðþjófsson, Vilborg Davíðsdóttir.
Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir.
Ljósmyndarar: EinarÓlason, SigurðurMarHalldórsson.
Útlitsteiknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason, Margrót
Magnúsdóttir.
Framkvæmdastjóri:HallurPállJónsson.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guövarðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Auglýsingastjóri: Sigríður HannaSigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Unnur Ágústsdóttir, Olga Clausen, Guðmunda Krist-
insdóttir.
Símavarsla: Hanna Ólafsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Útbreið8lu-og afgreiðslustjóri: HörðurOddfríðarson.
Útbreíðsla: G. Margrétóskarsdóttir.
Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, HrefnaMagnúsdóttir.
lnnheimtumenn:BrynjólfurVilhjálmsson,ÓlafurBjörnsson.
Útkeyrslo, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333.
Auglý8ingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
'Verð í lausasölu: 55 kr.
Helgarblöð: 65 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 600 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Midvikudagur 27. janúar 1988