Þjóðviljinn - 27.01.1988, Page 16
■.v.r „■ £.r;
"Siii®
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þfÓÐVIUINN
Mlðvikudagur 27. janúar 1988 20. tölublað 53. árgangur
Tfirdráttur
á téKKareiKninga
launafólKs
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF
Hœkkun barnabóta
Fáeinir hundraðkallar
Útgjöld vísitölufjölskyldunnar hœkka um 4,000 krónur á
mánuði vegna matarskattsins, samkvœmt útreikningum ASI
r
sís
Gengisfelling?
Stjórn Vinnumálasambands
samvinnufélaga, sem er aðili að
VestQarðasamningunum, telur
ekki unnt að staðfesta þá fyrr en
vitað er til hvaða efnahagsað-
gerða ríkisstjórnin grípur.
í ályktun stjórnarinnar segir að
óskað verði „eftir viðræðum við
ríkisstjórnina um mögulegar að-
gerðir í efnahagsmálum til að
styrkja stöðu atvinnurekstrarins í
landinu.
Ljóst er að rekstrargrundvöll-
ur atvinnulífsins hefur versnað
mjög verulega á síðustu mánuð-
um, m.a. vegna verðfalls Banda-
ríkjadollars, hækkunar vaxta og
almennrar þenslu í efnahagslíf-
Stjórnvöld hafa ákveðið að
hækka barnabætur frá
upphaflegu frumvarpi til að vega
upp á móti áhrifum matarskatts-
ins, en samkvæmt útreikningum
ASÍ nemur þessi hækkun fáeinum
hundraðköllum þegar best lætur.
Þannig hækka barnabætur á
mánuði fyrri hluta þessa árs með
fyrsta bami um 126 krónur. Upp-
haflega frumvarpið gerði ráð
fyrir 1,365 krónum til þess arna,
en að meðtalinni viðbót vegna
matarskatts hækkar þessi upp-
hæð í 1,491 krónu.
Þá hækkar barnabótaauki á
barn um 284 krónur, bætur með
hverju barni umfram eitt um 189
krónur, og viðbót vegna barns
undir sjö ára aldri um 126 krónur.
Hver og einn getur metið hvort
hann telur þessa hækkun vega
upp þau áföll sem hann verður
fyrir daglega vegna matarskatts-
ins, segir Ásmundur Stefánsson,
forseti ASÍ, í athugasemd í Morg-
unblaðinu í gær. Hann telur
tekjuskattsbyrðina hafa aukist
um 25% milli ára 1987 og 1988
með nýjum skattalögum. „Þar að
auki hækka útsvör um 7 til 9% og
stórhækkun verður á fasteigna-
gjöldum um allt land,“ segir Ás-
mundur.
Heildarútgjöld vísitölufjöl-
skyldunnar voru 114,523 krónur í
janúar, en voru 99,590 krónur í
júlí. Þau hafa því hækkað um
14,933 krónur á mánuði á hálfu
ári. Af þessari hækkun má rekja
5,399 krónur til hækkunar mat-
vöru, en þau útgjöld hækkuðu úr
22,798 krónum í júlí í 28,197
krónur í janúar. Af matvöru-
hækkuninni má rekja um 4,000
krónur til matarskattsins í ágúst
og janúar, segir Ásmundur.
HS
Ivar Valgarðsson og Steinþór Sigurðsson bera sjálfsmynd Helga Þorgils Friðjónssonar inn á Kjarvalsstaði. Mynd - E.ÓI.
Sýning á Kjarvalsstöðum
Sjálfsmyndir
listamanna
Hvernig sjá menn sjálfa
sig?
Hvernig sjá menn sjálfa sig?
Það vill oft bera við að hugmynd-
ir fólks um sjálft sig stangist á við
skoðun umhverfisins, hvort held-
ur sem spurt er um útlit eða
innræti. Á sunnudaginn gefst
mönnum kostur á að sjá hvernig
íslenskir myndlistarmenn lýsa
sjálfum sér, en þá verður opnuð á
Kjarvalsstöðum sýning sem ber
yfirskriftina Sjálfsmyndir. Þar
verður til sýnis úrval sjálfsmynda
eftir íslenska myndlistarmenn og
er stiklað í gegnum íslenska
myndlistarsögu allt frá 19. öld og
fram á okkar daga. Sýningunni er
ekki ætlað að vera sögulegt yfirlit
eða fræðileg úttekt, heldur hefur
verið reynt að velja margbreyti-
leg og góð verk, listunnendum til
skemmtunar og yndisauka. Jafn-
framt er fólki gefið tækifæri til að
hugleiða sannleiksgildi sjálfs-
mynda, hvort raunveruleikinn
sleppi ávallt úr greipum þess sem
málar, og hvernig myndmálið
getur gripið inn í málverkið þó
svo að gerandinn og myndefnið
séu það sama. LG
Verðlagsráð
Fundur um brauð- og fiskverð
Fundur í Verðlagsráði á morgun. Krafa um tafarlausa lœkkun á brauði ogfiski. Bensínverð trúlega lœkkað
Verðlagsráð mun að öllum lík-
indum, ó fundi sínum á morg-
un, skipa bökurum að lækka verð
á brauðum og kökum til þess sem
var fyrir álagningu 10% sölu-
skatts og reikna síðan söluskatt-
inn ofan á það verð. Tillaga um
slíkt liggur fyrir frá fulltrúum
launþega í ráðinu.
Bakarar hafa alfarið neitað að
verða við óskum Verðlagsráðs
við verðlækkun og bera fyrir sig
ýmsar kostnaðarhækkanir á síð-
ustu vikum og mánuðum. Ný
verðkönnun, sem Verðlagsstofn-
un lét gera í bakaríum í þessari
viku, staðfestir að verð á
brauðum og kökum hefur ekki
lækkað, þrátt fyrir samþykkt
Verðlagsráðs í síðustu viku.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans mun einnig verða lagt til á
fundi Verðlagsráðs að áður sam-
þykkt 15% hækkun á útsöluverði
ýsu frá því um áramót verði tekin
til baka, vegna villandi upplýs-
inga til ráðsins um verð á fisk-
mörkuðum í lok sl. árs.
Útsöluverð á bensíni og olíu
kemur einnig til umræðu á fundi
Verðlagsráðs en vegna lækkunar
á Rotterdammarkaði hefur stað-
an á innkaupajöfnunarreikningi
olíufélaganna batnað verulega og
því allt sem bendir til þess að út-
söluverð á bensíni verði lækkað
um tæpar 2 kr. hver lítri. -Ig.
Húsnœðisstofnun
Biðbmi forgangshóps
Biðtími þeirra sem eru í for-
gangshópnum hjá Húsnæðis-
stofnun lengist vegna þeirra
breytinga á lögum um húsnæðis-
lánasjóði ríkisins sem samþykkt-
ar voru fyrir áramót. Ástæðan er
sú að forgangshópurinn stækkar.
Nú tcljast ekki eingöngu til hans
þeir sem eru að byggja eða kaupa
í fyrsta sinn, heldur einnig þeir
sem þurfa að stækka við sig vegna
fjölskyldustærðar, eða annarra
ástæðna.
Þá má einnig búast við því að
biðtími þeirra sem ekki eru í for-
gangshópnum lengist einnig, þar
sem lögin gera ráð fyrir að bið-
tími þeirra sé helmingi lengri en
þeirra sem tilheyra forgangs-
hópnum.
Onnur breyting sem nýju lögin
hafa í för með sér er að þeir sem
eiga skuldlitla íbúð fyrir fá ekki
lán. Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans voru það um 40 manns af
þeim 6000 sem eiga umsóknir
lengist
íiggjandi inni hjá Húsnæðisstofn-
un.
Samkvæmt upplýsingum í
Húsnæðisstofnun má búast við að
fyrstu lánsloforðin síðan í mars á
síðasta ári, verði send út um og
uppúr næstu helgi.
-Sáf