Þjóðviljinn - 06.02.1988, Qupperneq 10
Dagvist barna
Nóaborg
Vantar starfsmann eftir hádegi í stuðning.
Upplýsingar í síma 29595.
Utboð
Innkaupastofnun Reykajvíkurborgar, fyrir hönd
Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í
stjórnloka fyrir Nesjavallaæð. Útboðsgögn eru
afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað
miðvikudaginn 9. mars kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Simi 2580Ó
Slökkvistöðin
í Reykjavík
auglýsir eftir sumarstarfsmönnum.
Skilyrði eru:
- séu á aldrinum 20-28 ára
- hafi iðnmenntun eða samsvarandi menntun
- hafi meirapróf bifreiðastjóra.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar liggja
frammi á skrifstofu Slökkvistöðvarinnar.
Umsóknum skal skila fyrir 15. febrúar.
Dagvist barna
Tjarnarborg
Fóstru eða starfsmann vantar nú þegar. Um
hlutastarf eftir hádegi er að ræða.
Upplýsingar í síma 15798.
|1| Dagvist barna
Dyngjuborg
Vantar yfirfóstru allan daginn frá 20. febrúar.
Einnig fóstru eða manneskju til stuðnings-
kennslu fyrir börn með sérþarfir og starfsmann í
hálfa afleysingastöðu.
Upplýsingar í síma 31135.
Öldrunarfulltrúi
Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsir stöðu
öldrunarfulltrúa lausa. Um er að ræða nýtt starf
sem m.a. lýtur að eftirfarandi þjónustu: Félags-
starfi aldraðra, heimilishjálp, húsnæðis- og vist-
unarmálum, auk ráðgjafar við aldraða og að-
standendur þeirra.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið háskólaprófi í
félagsráðgjöf, félagsfræðum eða hjúkrunarfræði.
Starfsreynsla á sviði öldrunarmála æskileg.
Umsóknarfrestur er til 20. febrúar og liggja um-
sóknareyðublöð frammi á Félagsmálastofnun
Kópavogs, Digranesvegi 12. Nánari upplýsingar
veitir undirritaður í síma 45700.
Félagsmálastjóri
MENNING
BÍL
íslensk
kvik-
mynda-
gerð
í hættu
Stjórn Bandalags
íslenskra listamanna
lýsir furðu sinni á því
vanmati á störfum
listarnanna og
mikilvægi þeirra fyrir
þjóðarhag sem
speglast í fjárlögum
hverju sinni
Stjórn Bandalags íslenskra lista-
manna telur, að þrátt fyrir að á
fjárlögum þessa árs hafi verið
samþykkt 60 milljón króna fram-
lag til Kvikmyndasjóðs islands,
sé íslensk kvikmyndagerð í mikilli
hættu stödd. Stjórn BILbendirá
að ennþá vanti um 5 milljónir
króna upp á að farið sé að lögum
um framlög kvikmyndasjóðs ís-
lands, og að aðeins einu sinni
hafi það gerst að sjóðurinn hafi
fengið óskert framlag úr Ríkis-
sjóði.
Með samþykkt Alþingis að
taka aftur upp söluskatt af ís-
lenskum kvikmyndum, sé aðsókn
að þeim í raun skorin niður um
helming, þar sem það geri að
verkum að miðaverð, sem nú
þegar helmingi hærra en á er-
lendar kvikmyndir muni hækka
enn frekar, og þar með muni allur
almenningur tæplega telja sig
hafa ráð að sækja sýningar ís-
lenskra kvikmynda.
Jafnframt mótmælir stjórnin
því að ekki skuli farið að lögum
hvað varðar framlög í Listskreyt-
ingasjóð ríkisins, og stungið er
upp á því að Alþingi fari eftir
þeim lögum sem það hefur sjálft
sett. Stjórn BÍL lýsir furðu sinni á
því vanmati á störfum listamanna
og mikilvægi þeirra fyrir þjóðar-
hag sem speglast í fjárlögum
hverju sinni.
Stjórn BÍL skipa: Arnór Be-
nónýsson, Rúrí, Þorsteinn
Hauksson og Þráinn Bertelsson.
LG
Kirkja Rússlands
1000 ára.
Söfnun í norrænu
biblíugjöfina
Póstgíróreikningur
nr. 15000-2
Hið ísl. biblíufélag
Hallgrímskirkju
AIÞýðubankinn hf
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubankans hf. verður hald-
inn í Átthagasal Hótel Sögu, Reykjavík,
laugardaginn 20. febrúar 1988 og hefst kl.
13.30.
Dagskrá:
a) Venjuleg aðalfundarstörf í samræmi við
ákvæði 32. greinar samþykkta bankans.
b) Tillaga um breytingar á samþykktum bank-
ans.
c) Tillaga um heimild til bankaráðs um útgáfu
jöfnunarhlutabréfa.
d) Tillaga um heimild til bankaráðs um nýtt hlut-
afjárútboð.
Aðgöngumiðar að fundinum og atkvæðaseðlar
verða afhentir í aðalbankanum, Laugavegi 31,
dagana 17., 18. 19. febrúar næstkomandi.
Fh. bankaráðs Alþýðubankans hf.
Ásmundur Stefánsson, formaður
Breyttur símatími
Framvegis verður símatími minn kl. 8.15-9.15
nema miðvikudaga.
ísak G. Hallgrímsson læknir
Domus Medica, sími 15033.
Smw
Hús til sölu
í Seyluhreppi
í Skagafjarðarsýslu
Kauptilboð óskast í íbúðarhús ájörðinni Lauftún,
Seyluhreppi, Skagafjarðarsýslu ásamt 1000 m2
leigulóð. Stærð hússins er 603 m3. Brunabóta-
mat er kr. 5.814.000.-
Húsið verður til sýnis í samráði við Sigurð Har-
aldsson oddvita, sími 95-6111 og 95-6192.
Kauptilboð er greini verð og greiðsluskilmála
þurfa að berast skrifstofu vorri fyrir kl. 11:00
þriðjudaginn 16. febrúar nk.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartúni 7, sími 26844
Útboð
Sm Norðausturvegur um f Hafralónsá í Þistilfirði Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Lengd vegarkafla 2,0 km, fyllingar 3.600m3 og burðarlag 7.000m3. Verki skal lokið 1. október 1988. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Akureyri og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 10. febrúar n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 29. febrúar 1988.
Vegamálastjóri
Verkakvennafélagið
Framsókn
Allsherjaratkvæðagreiðsia
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar at-
kvæðagreiðslu við kjör stjórnar og í önnur trúnað-
arstörf í félaginu fyrir árið 1988 og er hér með
auglýst eftir tillögum um félagsmenn í þau störf.
Frestur til að skila listum er til kl. 12 á hádegi
föstudaginn 12. febrúar 1988. Hverjum lista þurfa
að fylgja meðmæli 100 fullgildra félagsmanna.
Listum ber að skila á skrifstofu félagsins SkiD-
holti 50a.
Stjórnin