Þjóðviljinn - 10.02.1988, Side 6
Takið eftir
Staöa leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar er laus
til umsóknar. Skriflegar umsóknir skulu berast
formanni leikfélagsins, Theódóri Júlíussyni, fyrir
15. mars 1988. Hann veitir jafnframt frekari upp-
lýsingar um starfið í síma 96-25073.
Leikfélag Akureyrar
Dagsbrúnarmenn
Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 11.
febrúar kl. 16 í Bíóborginni, Snorrabraut 37, áður
Austurbæjarbíó.
Dagskrá: 1. Heimild til verkfallsboðunar.
2. Skýrt frá gangi samningavið-
ræðna.
Dagsbrúnarmenn, stjórn félagsins hvetur ykkur
eindregið til að taka ykkur frí og koma beint frá
vinnu á fundinn kl. 16.
Stjórn Dagsbrúnar
REYKJkMIKURBORG
JLau&cvi
Staða safnvarðar við Árbæjarsafn er laus til um-
sóknar. Staðan verður veitt frá 1. mars 1988.
Umsækjandi skal hafa lokið háskólaprófi í þjóð-
fræði eða á sviði norrænnar menningarsögu.
Auk þess væri iðnmenntun æskileg. Starfs-
reynsla á minjasöfnum áskilin. Laun samkvæmt
kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar.
Upplýsingar um starfið veitir borgarminjavörður í
síma 84412.
Umsókn ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist starfsmannahaldi Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, á eyðublöðum sem þar
fást, fyrir 25. febrúar 1988.
ST. JÓSEFSSPlTALI, LANDAKOTI
Skóladagheimilið
Brekkukot
Viltu vinna í notalegu umhverfi á góðum stað í
bænum? Okkur vantar aðstoðarmann á skóla-
dagheimilið Brekkukot. Upplýsingar gefur for-
stöðumaður í síma 19600/260 virka daga.
Reykjavík 9. febrúar 1988
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför
Fríðu Davíðsdóttur
Eyrargötu 14b
Sigluflrði
Sigurbjörn Torfason, Danmörku
Halldóra Jónsdóttir, Siglufirði
Hjartkær eiginkona mín
Guðlaug Helgadóttir
Hátúni 8, Reykjavík
andaðist á Landspítalanum 8. febrúar sl.
Fyrir hönd aðstandenda
Ragnar Elíasson
Þjóðminjasafnið
Bömin teikna
Samkeppni í tilefni 125 ára afmœlis safnsins
Þjóðminjasafnið hefur efnt til
teiknisamkeppni meðal grunn-
skólanema í tilefni 125 ára afmæl-
is síns nú í lok mánaðar.
Myndirnar eiga að vera um
efni tengt gömlum tíma og sögu,
af munum Þjóðminjasafnsins eða
byggðasafna, gömlum húsum eða
húsarústum, af daglegu lífi fólks
eða atburðum úr íslandssögunni,
- eða af söfnum framtíðarinnar.
Verðlaun verða veitt fyrir níu
bestu myndirnar, þrjár í hverjum
aldursflokki. í verðlaun eru silf-
ureftirlíkingar af þórshamri, þús-
und ára gömlum skartgrip eða
verndargrip, sem fannst á Fossi í
Hrunamannahreppi. Einnig er
áætlað að sýna eins margar
myndir og mögulegt er í Þjóð-
minjasafninu. Verður sýningin
opnuð laugardaginn 26. mars og
fer verðlaunaafhending fram við
opnunina.
í dómnefnd sitja Þór Magnús-
son þjóðminjavöraður, Rakel
Pétursdóttir safnkennari Lista-
safns íslands og Þóra Kristjáns-
dóttir listfræðingur.
Ný frímerki
Steinn Steinarr
ogDavíð
Stefánsson
Póst- og simamálastofnun hef-
ur tilkynnt um tvö ný frímerki 25.
febrúar, og eru á þeim myndir af
Steini Steinarr og Davíð Stef-
ánssyni.
Þessi frímerki eru í flokki um
merka íslendinga, og er á mynd-
um skáldanna brot úr ljóði eftir
þá og undirskrift.
Davíðsmerkið hefur verðgildið
i
Ég geng í hring
í kringum allt, sem er.
Og útan þessa hrings
er verold min.
1008-1958
I
21 krónu, en Steinsmerkið 16 kr.
Teiknari er Tryggvi T. Tryggva-
son en merkin eru prentuð í
Sviss.
Úr blóði rainu dirifaöi ég
aín b«ztu ástarlióð
é vængina fn'r.a svöitu.
vetrarnóttin hljóf.
18H5-5S64
<3>
þessi skipan að jafnstöðu foreldr-
anna.“
★ „Að svo stöddu virðist ekki
ráðlegt að lögmæla heimild fyrir
dómsmálaráðuneyti (eða dóm-
stóla) til að kveða á um sameigin-
lega forsjá gegn andstöðu annars
foreldris. Er og heppilegt að fá
fyrst reynslu af sameiginlegri
forsjá skv. samkomulagi for-
eldra, áður en lengra skref verður
stigið í löggjöf. “
Persónuleg viðhorf
og efasemdir
Undirritaður hefur ekki
sannfærst um það, að skynsam-
legt sé að lögfesta þá skipan um
sameiginlega forsjá, sem að er
stefnt með þessu frumvarpi.
Kemur þar fyrst og fremst til, að
með því að ýta undir sameigin-
VIDHORF
lega forsjá eftir skilnað sé hagur
barnsins ekki betur tryggður en
með núverandi lagaákvæðum.
Foreldrar sem þrátt fyrir
skilnað hafa vilja og forsendur til
að koma sér saman um samskipti
við börn sín, þurfa ekki til þess
lagaboð, en forsjá barnsins yrði
áfram formlega á annars hendi.
Ég hef heyrt sterkar efasemdir
og andstöðu fólks sem fylgst hef-
ur með umræðu og reynslu á öðr-
um Norðurlöndum og í Banda-
ríkjunum varðandi sameiginlega
forsjá eftir skilnað. í athuga-
semdum með frumvarpinu segir
Sifjanefnd, að „ekki er kunnugt
um kannanir á því, hversu hald-
bær þessi skipan hefur reynst.“
Margir hafa staðhæft við mig, að
tilraunir foreldra með sameigin-
lega forsjá hafi oft runnið út í
sandinn eftir 1-2 ár, og að barnið
verði þolandi „tveggja skilnaða"
og langvinnrar togstreitu.
Ekki vil ég flokka þá skipan
mála, sem lögð er til með frum-
varpinu, sem jafnréttismál. Ég
teldi illa farið ef breyting af þessu
tagi yrði til þess að veikja stöðu
móður í deilu um forsjá eftir
skilnað, en vil á engan hátt stað-
hæfa, að það vaki fyrir flutnings-
mönnum.
Að endingu vil ég hvetja þá
mörgu sem láta sig skipta hag
barna til að kynna sér þetta frum-
varp og koma sjónarmiðum sín-
um á framfæri, m.a. við félags-
málanefnd Neðri deildar Alþing-
is, sem nú hefur fengið frumvarp-
ið til meðferðar.
Alþingi, 9. febrúar 1988
Hjörleifur Guttormsson
Hjörleifur Guttormsson er alþingis-
maður fyrir Alþýðubandalagið í
Austurlandskjördæmi.
6 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN! Mlðvlkudagur 10. febrúar 1988