Þjóðviljinn - 17.02.1988, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 17.02.1988, Blaðsíða 6
AFMÆLI Sjötugur Sigurður Gestsson Mörk Það var þess konar tónn í kvaki fuglsins að andráin varð skáldleg, og hvert kvak átti sér samhljóm í veikum þyti vængsins, og það brast í bóluþanginu þurru og stökku þegar hiti dagsins rann út í rakan sandinn. Maðurinn sat á klöpp í flæð- armálinu að leysa hnúta á kaðli sem bundinn var í net og lagt var í fjörðinn, og aðflæðið gjálfraði við klofhá stígvél svört. Út við hafsauga námu Strandafjöllin ljós úr sólsetrinu gula rauða gyllta, og það blik var sem af stáli er fellur á ís. Það var þögn yfir landinu, en maðurinn brosti því það glitti í silung við baujuna. í ríki náttúrunnar fellur skartið af manninum og verður hjóm eitt, hann gengur í sól og skugga, smár í víðerni, stór hjá smáum formum, í örlæti og harðlæti sem gefur og tekur til baka svo jafnvægi haldist og hringrásin ei- lífa. Og eins og steinninn tekur stundum á sig mynd af manni, þá tekur maðurinn einnig á sig mynd af steini, er allur þó mýkri sveigjanlegri viðkvæmari. Og þannig bar Sigurð Gestsson fyrir augu þetta kvöld í fjörunni að leysa sína tilvistarhnúta: Form- sterkur með sveigðum línum, veðurbarinn í andliti og með mosa í skeggi, markaður langri reynslu, - silfrað berg. Maðurinn einn með sjálfum sér tekur ofan þá grímu sem er umgjörð sársaukans og hlíf gegn þeim spjótum sem kastast og augum köldum, fláræði og fíflsku, - og sæmir að setja upp í æði nútímans og hringlanda þar sem trylltur lýðurinn hefur fund- ið sér takmark til að keppa að, og leikur sitt hlutverk við uppdregin sviðstjöld, en á það til að tapa áttum og missa fótanna og reka fingur í spilverkið þannig að allt hrynur til grunna með reyk og vonbrigði. En viti menn! Kemur nú ekki upp úr kafinu að afmælis- barn þetta á ekki til neitt grímu- safn að skarta með, vegna þess að það dregst ekki í dilka: þykjustunnar þyrnótt land þegna til sín lokkar, játast undir jarðsamband jaðarblómið okkar, - og stendur álengdar með sitt góðlátlega fas og vott af stríðni í björtum augum, þó dálítið eins og hissa: hvaða trix er þetta? og væri allra manna síðastur til að varpa yfir sig dularklæðum og leggja gildrur fyrir fólk með skrumi og skjalli, hvað þá heldur hlaupa í kröfugöngum eða mynda þrýstihóp fyrir góðan eða slæman málstað. En þegar mað- urinn er svona berskjaldaður, þá er eins og vindurinn snúist: við- mælendur hans verða klumsa og skammast sín fyrir að vera ekki betri inn við beinið en almanna- rómur segir. Þarna í fjörunni renna maður land og haf saman í heild, og gol- an strýkur ax af strái á meðan hið óútskýranlega orkuver fer í gang með margslunginni útgeislan og hrífur þá sem hafa viðtækið í lagi og senda kannski veikan straum til baka: móttekið, skipti. Annar tími, aftur kvöld: Ferðalangar á leið vestur í sýslu búnir að húsvitja í Vatnsdalnum þar sem grasið fær að vaxa í friði þessi árin, og fólkið er að haska sér í burtu undan niðurskurði^ fullvirðisrétti og kvóta. Svanur- inn hópar sig á Flóðinu og beygj- urnar í Hólunum eru mjúkar eins og brjóst á feitri heimasætu á smjörbúi í Víðidal. í hvaða bugðu skyldi hun nú hrasa bless- unin í sinni leit: Ó, tunglið tung- lið taktu mig, og elskhuginn hví- ar, já hann hann, - já, það er svo yndislegt að láta fallerast, já, já. En þegar hér er komið hugl- eiðingum réttir Sigurður Gests- son úr bakinu í aftursætinu og segir: „Hann er farinn að sofa, bóndinn í Gröf, og allar kvígurn- ar yxna í hólfinu!“ En þetta er bara ein af mörgum ferðum, og þetta óvænta innskot í rómantíkina á sér fjarskylda ætt- ingja úr einni ferð og annarri. Og alltaf er maðurinn jafn ákafur að komast á stað og hlakkar þessi lifandi ósköp til. Svo þegar stund- in nálgast fer hann allur á ið og snýst í marga hringi í kringum sjálfan sig, þar til viðstaddir fá svima og fara að snúast rangsælis um ferðamanninn, farinn að hall- ast ískyggilega mikið fram á við og göngulagið minnir á svangan skógarbjörn sem hefur þefað uppi hunang í næsta rjóðri. Jafnvel skottúr á traktornum inn í „borgina" verður þessum manni ÞlÓÐVIUINN 0 68 13 33 Tínmm 0 68 18 66 0 68 63 00 Blaðburður er BESTA TRIMMIÐ og borgar sigl BLAÐBERAR ÓSKAST Víðs vegar um borgina Hafðu samband við okkur þJÚÐVILIINN Síöumúla 6 068 13 33 sífrjó uppspretta tíðinda, hval- reki þar sem allt hið smágerða í hversdagsins önn og amstri tvinn- ast saman í mikil ævintýr. Ennþá meiri er þó tilhlökkunin að fara fram á heiði að leggja net í vötn og liggja í tjaldi yfir nótt við móf- uglasöng og ilm úr rökum sverði, - og hjalar lækur í eyra þegar svefn sígur á brá. Eða fara á bæi að spila Lomber og lyfta glasi til að hýrga andann og færa mýkt í galskapinn með smellinni sögu þegar pólitíkin hringsnýst. En ekki síst er það mikið yndi að taka á móti gestum og ganga fram af þeim um allar veitingar, sem Unnur húsfrú Ágústsdóttir töfrar fram eins og þegar smellt er fingr- um, og skiptir þá litlu hvort það er á nóttu eða degi, kvöldmatur eða kaffi, og slík er rausnin að það má metta alla sveitina. Loks- ins þá er gesturinn stendur á öndinni með þaninn kvið og rjóð- ar kinnar og getur ekki meir: „Guð minn góður, ekki meir, ekki meir.“ Kemur þá ekki í stórri sveiflu hroðið fat með söltu hrossakjöti og floti, eitthvert það unaðslegasta ljúfmeti sem fundið hefur verið upp á fslandi, og gest- inum verður ósjálfrátt að orði: „Það vildi ég að þetta yrði minn banabiti!“ Þannig má nálgast manninn á margan máta, en sumir hafa meiri þokka en aðrir, hugljúfir í návist og geðgóðir, lausir við óþarfa kapp eftir vindi, slegnir úr málmi sem ryð fær ekki grandað, - eins og gullið. En til eru þeir menn sem spyrja: er hann nú all- ur þar sem hann er séður, þessi grallari? og kannski er Sigurður Gestsson í Mörk bara úlfur f sauðargæru, - en þangað til ann- að sannast má ætla að gervið verði ekki merkilegra, í lengd og bráð, en það að kasta yfir sig reyfi af veturrúinni kind fyrir skemmt- unar sakir við ullarmat hjá Kaupfélaginu á Hvammstanga. En áfram líður lognkyrrt kvöldið við fjörðinn, krían er far- in að sofa og æðurin vaggar á mjúkri bárunni skammt undan landi. En upp frá fjörunni liðast slóðin í dögginni um túnið, og gljáandi fiskurinn sveiflast í takt við fótstig mannsins sem er þungt og fast á jörðinni, - heim að bæn- um. Níels Hafstein Sigurður Gestsson kom í heim- inn 17. febrúar 1918, sonur Gests Ebeneserssonar og Magnhildar Þórveigar Árnadóttur, sem fædd var á Akranesi. Foreldrar hennar voru Vilborg Pálsdóttir og Árni Magnússon búsett þar. Foreldrar Gests voru Ebeneser Árnason og Ingibjörg Gestsdóttir. Þau Gest- ur og Magnhildur Þórveig eignuðust dóttur, auk Sigurðar, Kristjönu að nafni, hún andaðist fyrir fimmtán árum. Sigurður Gestsson kvæntist árið 1947 Unni Ágústsdóttur (f. 18.5. 1920) frá Gröf á Vatnsnesi, dóttur Ágústs Jakobssonar bónda þar og konu hans Helgu Jónsdóttur, þau eignuðust níu börn sem öll eru á lífi. Foreldrar Helgu voru Jón Eggertsson og Þóra Jóhannesdóttir á Ánastöð- um í sömu sveit, en foreldrar Ág- ústs voru Jakob Gíslason og Sig- urbjörg Árnadóttir á Þverá í Vestur-Hópi. Börn þeirra Sigurðar Gestsson og Unnar Ágústsson eru fjögur: Helga býr í Reykjavík, gift Sæ- vari Snorrasyni, þau eiga son og þrjár dætur, og tvo dætrasyni; Jón er bóndi á Sæbóli í Hvamms- tangahreppi, kona hans er Laufey Jóhannesdóttir, og eiga þau dóttur saman; Magnhildur býr í Reykjavík með Níelsi Haf- stein og eiga þau einn son; Ágúst býr á Hvammstanga, kvæntur Þuríði Þorleifsdóttur, og eiga þau tvo syni. NH MINNING Theodór Grímur Guðmundsson fœddur 9.3. 1966 dáinn 12.1.1988 Glaður hópur á góðri stund, 16. júní, eins árs stúdentsafmæli. Einu sinni enn situr F bekkur frá árunum 1983-86 saman og skemmtir sér hver sem betur get- ur. Teddi, eini karlmaður bek- kjarins, situr hljóður með vina- legt bros á vör. Brosið beikkar þegar skotið er fram sniðugum athugasemdum og hlátur heyrist frá honum. Gleðiglampi fyllir augun. Hver hefði trúað að þetta væri í síðasta skiptið sem allur bekkurinn kæmi saman, að Teddi yrði ekki oftar með okkur? Hvað skal segja þegar bek- kjarbróðir og vinur á unga aldri fellur frá. Orð megna svo ósköp lítils. Aðeins minningin um svart- hærða rólega strákinn lifir. Teddi var atorkusamur á sviði félagsmála í M.A. Hann hafði mikinn áhuga á pólitík og hélt ósjaldan heitar ræður. Talaði af tilfinningu. Augun tindruðu af áhuga. Hann vildi vera virkur, geta stuðlað að meira réttlæti og jafnræði. Eflaust hefur honum fundist áhugaleysi okkar æði mikið en hann lét aldrei bilbug á sér finna og kímdi á sinn góðlát- lega hátt. Nú tindra augun ekki lengur og söknuður fyllir hugi okkar. Við áttum saman góðar stundir sem gleymast aldrei. Við sendum ást- vinum Tedda okkar innilegustu samúðarkveðjur og hafi hann þökk fyrir samveruna og vinátt- una. Bekkjarsystur úr M.A. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 17. febrúar 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.