Þjóðviljinn - 20.02.1988, Page 7
Umsjón:
Lilja Gunnarsdóttir
Herranótt
Góða sálin
í Sesúan
Hvernig fer fyrir þeim sem vilja vera góðar
sálir og hjálpsamar í okkar vesölu veröld?
Annað kvöld frumsýnir Herra-
nótt Góðu sálina í Sesúan eftir
Bertolt Brecht. Leikritið er
skrifað að hluta til í Danmörku
og að hlutatil í Svíþjóð á árun-
um 1938-40. Um það skrifaði
Brecht meðal annars að þorp-
ið Sesúan væri dæmigert fyrir
alla þá staði þar sem fólk
níddist á og misnotaði
náungann.
í stuttu máli fjallar leikritið um
það hvort það sé yfirleitt hægt að
vera góður, lifa samkvæmt boð-
orðunum og láta gott af sér leiða.
Eða, hvernig fer fyrir manneskju
sem á sér enga ósk æðri þeirri að
vilja hjálpa náunganum og láta
engan synjandi frá sér fara?
Guðunum hefur borist til
eyrna að mennirnir séu vægast
sagt óánægðir með skipan mála í
heiminum, og að því sé haldið
fram í fúlustu alvöru að það sé
ógjörningur að lifa samkvæmt
boðorðunum. Heimurinn geti
ekki haldið áfram að vera slíkur
sem hann er, því enginn geti verið
góður á þessari jörð. Þrír útsend-
arar guðdómsins, þrír guðir,
leggja land undir fót með það
fyrir augum að finna þó ekki sé
nema eina góða sál, sem lifi lífi
mönnum samboðið, og virði boð
guðanna. Takist þeim það verður
Þegar Shen Té fær ekki lengur rönd við reist, kemur „frændi" hennar Shui Ta fram á sjónarsviðið og bjargar málunum.
heimurinn áfram óbreyttur, ef
ekki neyðist almættið til að gera
eitthvað í málinu.
Það eru þreyttir og mæddir
guðir sem koma til þorpsins Sesú-
an, orðnir nærri úrkula vonar um
að finna þessa góðu sál sem á að
réttlæta skipan heimsins. En þá
detta þeir í lukkupottinn, þeir
finna Shen Té sem vinnur fyrir
sér sem gleðikona, en á sér enga
ósk heitari en að lifa góðu og
grandvöru lífi. Til að hjálpa
henni í þeim góða ásetningi,
stinga þeir að henni fjárupphæð,
og hverfa síðan á braut, með
góða samvisku. Shen Té kaupir
sér tóbaksbúð og byrjar nýtt líf,
en fljótlega kemur í Ijós að það er
ekki auðvelt að vera góð mann-
eskja í þorpinu Sesúan. Hún
neyðist til að finna upp frænda,
Shui Ta, það er að segja að í hvert
skipti sem góðsemi hennar og
heiðarleiki hefur komið henni í
ógöngur, dulbýr hún sig og bjarg-
ar málunum sem Shui Ta, og
hann er hvorki góð sál né göfug.
Hvernig fer fyrir Shen Té / Shui
Ta, og öllu þessu fólki sem hún
vill hjálpa án þess að láta draga
sig niður í sömu súpuna og þau
eru í, kemur svo í ljós. En niður-
staða Brechts er að vegur dyggð-
arinnar sé vandrataður, ef ekki
ófær mönnunum eins og heimur-
inn lítur út í dag. Og guðirnir...,
ætli það sé ekki óhætt að segja að
þeir lifi í eigin heimi?
Sýningar á Góðu sálinni frá
Sesúan verða í Tjarnarbíó, og
frumsýning er á sunnudagskvöld-
ið kl. 20:30. Alls taka 35 manns
þátt í sýningunni. Af stærri hlut-
verkunum má nefna Góðu sálina,
Shen Té, sem Marta Nordal
leikur, atvinnulausa flugmanninn
Yang Sun leikinn af Hilmi S.
Guðnasyni, Edda Jónsdóttir
leikur ekkjuna Shin og Daníel
Haraldsson, Wang vatnskaup-
mann. Leikstjóri er Þórhallur
Sigurðsson.
LG
Leikhús
Svört sólskin
í kvöld kl. 20:30 frumsýnir
Leikfélag Kópavogs leikritiö
SvörtSólskineftir Jón Hjartar-
son í nýuppgerðum sam-
komusal félagsheimilis Kópa-
vogs. Sýningin er í tengslum
við Kópavogsvöku 1988, en
þá gefst Kópavogsbúum færi
á að endurvígja félagsheimili
sitt sem hefur verið í endur-
byggingusíðan1982.
Jón samdi Svört sólskin fyrir
Leikfélag Kópavogs fyrir tveimur
árum, og var það þá flutt á Nor-
rænni leiklistarhátíð áhugaleikfé-
laga. - Síðan hefur alltaf staðið
til að setja það upp aftur, segir
Jón, en ekki orðið að því fyrr en
nú, vegna húsnæðisleysis.
Um hvað fjallar leikritið?
- Aðalpersónurnar eru ungt
par sem kemur inn á autt svið og
fer að sviðsetja söguna afturábak
og áfram. Og sú saga er bæði
þeirra saga og saga okkar. Hún
tengist óttatilfinningu ungs fólks í
dag, þessari hræðslu við að fram-
tíðin verði ekkert óskaplega björt
og fögur, því ýmsir vágestir guða
á glugga.
Eru þau þá að setja á svið af-
leiðingar kjarnorkustríðs, eða
eitthvað í þá áttina?
- Þau eru ekki eingöngu að
hugsa um framtíðina, það er ým-
islegt í sögunni sem minnir á þær
dekkstu framtíðarspár sem við
þekkjum í dag. Nafnið er sótt í
Völuspá, lýsinguna á Ragnarök-
um, og parið er að ímynda sér
hina og þessa möguleika, hvort
sem það er að við úðum burt ós-
onlaginu eða hvort okkur tekst
að eyða lífi á jörðinni með kjarn-
orkusprengju, svo eitthvað sé
nefnt. Þau taka fyrir hluti sem
eyðileggja framtíðarvonir fólks,
kalla fram bæði fortíð og framtíð,
sækja sér efni í söguna, og í
þjóðsögurnar, og smám saman
verður á reiki hvað er fortíð og
hvað er framtíð.
Hugsarðu mikið um heims-
endi?
- Það er að minnsta kosti full
ástæða til að velta þessu fyrir sér.
Mér finnst vera nokkuð einkenn-
andi fyrir okkur íslendinga hvað
við erum óforbetranlega kæru-
laus í þessum efnum. Við hugsum
mun minna um þessa stóru hættu
en til dæmis fólk í nágrannalönd-
unum. Og miklu minna en ástæða
er til.
Leikstjóri Svartra sólskina er
Ragnheiður Tryggvadóttir. Tón-
list er eftir Gunnar Reyni Sveins-
son, höfundur leikmyndar er
Gylfi Gíslason, hönnuðir ljósa
eru Lárus Björnsson og Egill
Árnason. Aðalhlutverkin leika
þau Jóhanna Pálsdóttir og Fjalar
Sigurðsson, en önnur hlutverk
eru 13. LG
Kópavogsvaka 1988
Dýrðardagar í Kópavogi
Fjölbreytt dagskrá í
Kópavogsvaka verður haldin í
þriðja sinn dagana 21 .-27. fe-
brúar, ífélagsheimili Kópa-
vogs.Vakan er hugsuð sem
menningarviðburður fyrir
Kópavogsbúa og verður
mikið um dýrðir í félagsheimil-
inu þá daga sem hún stendur.
Á opnuninni, á morgun kl.
20:30, verður meðal efnis, ávarp
formanns Lista- og menningar-
ráðs, frumflutningur hátíðarstefs
eftir Misti Þorkelsdóttur, ein-
söngur, ljóðalestur og upplestur.
félagsheimili Kópavogs dagana 21.-27. febrúar
Á mánudag verður tónlistar-
skemmtun fyrir forskólabörn, og
um kvöldið popptónleikar þar
sem þekktar og óþekktar ung-
lingahljómsveitir koma fram. Á
þriðjudagskvöldið verður önnur
sýning Leikfélags Kópavogs á
Svörtum sólskinum eftir Jón
Hjartarson. Á miðvikudaginn
verður bókmennta- og tónlistar-
dagskrá, jasskvöld á
fimmtudaginn, leiksýning ung-
lingaleikhússins og unglinga-
dansleikur á föstudaginn, og á
laugardaginn leiksýning ungling-
aleikhússins, almennur dans-
leikur og kvöldskemmtun. í and-
dyri samkomusalarins verður
ljósmyndasýning Björgvins Páls-
sonar bæjalistarmanns Kópa-
vogs.
Okeypis aðgangur er að dag-
skrám sunnudag, mánudag, mið-
vikudag og fimmtudag. Lista- og
menningarráð Kópavogs skipu-
leggur menningarvökuna, en
framkvæmdastjóri hennar er
Þorgeir Ólafsson.
LG
Fjalar Sigurðsson og Jóhanna Pálsdóttir á ferðalagi um fortíð, - eða kannski
framtíð?
Laugardagur 20. febrúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7