Þjóðviljinn - 20.02.1988, Page 9

Þjóðviljinn - 20.02.1988, Page 9
Myndlist Mónóþrykk, skúlptúrar og teikningar Gallerí Svart á hvítu opnar í nýjum húsakynn- um með sýningu á verkum Olafs Lárussonar í gær opnaöi Gallerí Svart á hvítu I nýju og stærra hús- næði, við Laufásveg 17. Nýja húsnæðið er á tveimur hæð- um, á jarðhæð er rúmgóður sýningarsalur og á efri hæð verður umboðssala gallerís- ins, en ætlunin er að leggja meiri áherslu á þátt umboðs- sölunnar í starfsemi gallerís- insframvegis. Opnunarsýning er sýning á verkum Ólafs Lárussonar, mónó- þrykk, skúlptúrar og teikningar unnar með blandaðri tækni. Ólafur er einn af stofnendum Ný- listasafnsins og sat í stjórn þess til 1981. Hann hélt sína fyrstu einka- sýningu 1974, í Gallerí SÚM í Reykjavík og hefur síðan haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum. Þau verk sem hann sýnir að þessu sinni eru öll unnin síðastliðin tvö ár. Gallerí Svart á hvítu er opið alla daga nema mánudaga kl. 12:00-18:00, sýning Ólafs stendur til sunnudagsins 6. mars. LG Ný ljóðabók Hlustir, eftir Bjöm Garðarsson Út er komin Ijóðabókin Hlustir, eftir Björn Garðarsson. Höf- undur er 32 ára og fæddur í Vestmannaeyjum. Hann hef- ur stundað ýmis störf, auk skáldskapar, en hefurnokkur síðustu ár dvalið við nám í Stokkhólmi og lauk prófi í al- mennri fjölmiðlun frá Dramat- iska Institutet síðastliðið vor. Gunnar Karlsson, myndlistar- maður hannaði kápu bókarinnar. Stefán Karlsson, ljósmyndari tók ljósmynd af höfundi á baksíðu. Svansprent annaðist setningu og Stensill hf. sá um ofsettfjölritun. Bókin er til sölu hjá Bóksölu stúdenta, Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar, Bókabúð Máls og menningar, Fornbókabúðinni Hverfisgötu 16 og hjá höfundi, Reynigrund 13 Kópavogi (s. 91- 44646). Bókin er gefin út á kostn- að höfundar. Þetta er fyrsta bók hans. Ólafur Lárusson með eitt af verkum sínum. Jón Þórisson forstöðumaður gallerísins stendur í dyrunum. Mynd - Sig. Tónleikar Weber, Debussy, Gade Tveir frakkar leika á píanó og klarinettu í Norræna húsinu Tónleikar Þrír Ijóðaflokkar eftir Schubert Andreas Schmidt og Thomasi Palm í íslensku Óperunnimánudags-, þriðjudags-og fimmtudagskvöld í næstu viku munu þýski barít- ónsöngvarinn Andreas Schmidtog píanóleikarinn Thomasi Palm, flytja þrjá Ijóðaflokka eftir Schubert í ís- lenskuóperunni. Andreas Schmidt þykir vera meðal athyglisverðustu flytjenda þýskra ljóða, auk þess sem hann hefur getið sér gott orð sem óper- usöngvari. Hann er nú fastráðinn við óperuna í Berlín., Á mánudagskvöldið flytja þeir Schmidt og Palm Malarastúlkuna fögru, (Die schöne Múllerin), á þriðjudagskvöldið Vetrarferð- ina, (Winterreise) og á fimmtudagskvöldið Svanasöng (Schwanengesang) og úrval ljóða. Allir tónleikarnir hefjast kl. 20:30, miðar fást í íslensku Óper- unni og ístóni. Tveirfranskirhljóðfæraleikar- ar halda tónleika í Norræna húsinu í kvöid og mánudags- kvöldkl. 20:30. Claude Faucomprez, klarin- ettuleikari er fæddur í Lens, N- Frakklandi og stundaði tónlistar- nám í Lille og París. Síðan 1978 hefur hann verið einleikari á klar- inett hjá Sinfóníuhljómsveitinni í Lille. Álain Raes, píanóleikari er frá Roubaix í N-Frakklandi, hann stundaði píanónám í París. Þeir Faucomprez og Raes hafa samhæft tónlistarhæfileika sína síðan 1977, svo og sameiginlegan áhuga fyrir stanslausum tilraun- um til að fullkomna túlkun sína á hinum fjölbreytilegustu og oft á tíðum lítt þekktu tónverkum. Á efnisskrá tónleikanna verða Duo op,15 eftir Norbert Burg- múller, Grand duo op.48 eftir Carl Maria von Weber, Premiére Rhapsodie eftir Claude Debussy, Fantasía eftir Niels Wilhelm Gade og Sónata eftir Francis Po- ulence. LG Claude Faucomprez og Alain Raez. Laugardagur 20. febrúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.