Þjóðviljinn - 20.02.1988, Qupperneq 15
Og þetta
lika...
Wimbledon
fékk ágætis liöstyrk fyrir
skömmu. Þaö voru þeir Laurie
Cunningham (31), sem lék áöur
með West Bromwich Albion og
nú síðast með belgíska liðinu
Charleroi, og Peter Barnes (30),
sem er fenginn að láni frá Manc-
hester City. Þeir ættu að geta
leikið í dag ef þeir hafa náð sér
upp úr veikindum, en Cunning-
ham hefur verið með flensu en
Barnes á við hásinavandamál að
stríða.
Chelsea
hefur fengið nýja þjálfara. Talið
var að framkvæmdastjórinn John
Hollins myndi hætta en þegar
kom að fréttamannafundi þar
sem átti að tilkynna það, mætti
hann með nýjan þjálfara, Bobby
Campbell. Hollins hafði vonað að
vinur sinn Ernie Walley yrði ráð-
inn en segir nú að hann sé sáttur
við þessa ákvörðun. „Það er ekki
venjuleg leið að stjórnin ráði
þjálfara, en ég kvíði ekki sam-
starfi við Hollins," sagði Camp-
bell, sem áður þjálfaði Portsmo-
uth og Fulham.
Hroki
hrjáir skoska landsliðið að sögn
stjóra þess, Andy Roxburgh.
„Við höfum ekki skilið að allur
heimurinn, líka hin svokölluðu
litlu lönd, kunna að spila fótbolta.
Okkar vandamál er hroki og
rembingur," sagði Andy eftir 2-2
jafntefli gegn Saudi-Arabíu fyrir
skömmu. Hann er þó ekki svart-
sýnn á gengi Skotlands í
heimsbikarkeppninni 1990. „Við
erum að skilja að bikarinn er okk-
ar markmið og ég mun ekki
dæma einstaka leiki, heldur
leiktímabil."
Brian Clough
er endanlega hættur við að
stjórna Velska landsliðinu. Lið
hans Nottingham Forest hefur
ekki viljað Ijá máls á því að hann
fái að starfa í hálfu starfi hjá Wa-
les, hvað þá heilu. „Þessar hug-
myndir eru úr sögunni og það er
endanlegt. Ég er orðinn
dauðþreyttur á að svara spurn-
ingum um þetta mál og aimenn-
ingur hlýtur að vera virkilega
hissa á öllu þessu umstangi. Það
verður að skýra þetta út og koma
þessu á hreint,“ sagði Clough.
Forest hafði vonast til að Clough
myndi skrifa undir 5 ára saming
við þá í haust, þegar samningur
hans við þá rennur út, en nú eru
taldar líkur á því að það verði að-
eins 1 árs samningur.
Breskir hermenn
staðsettir í Vestur-Þýskalandi fá
líklega ekki að kaupa miða á leiki
enska landsliðsins erlendis
nema til komi strangari reglur um
sölu miða til þeirra að sögn
stjórnarmanns í enska knatt-
spyrnusambandinu, Bert Milli-
chip. Hann segir einnig að fram-
koma þeirra á áhorfendapöllum
veki einnig spurningar um hvort
þeir eigi að fá miða yfirleitt.
Breski flugherinn var fljótur til
svara og sagði að Millichip vissi
ekkert hvað hann væri að segja.
„Það er staðreynd að i vináttuleik
Englendinga og Þjóðverja í
Dusseldorf nýverið var enginn
hermaður handtekinn. Okkar
menn eru ekki með litaö hár í leð-
urjökkum og þeir vilja einfaldlega
ekki vera tengdir við enska áhorf-
endur,“ sagði talsmaður flug-
hersins. Hermennirnirhafagetað
keypt miða hvenær sem er og
hvar sem er og hafa þar af
leiðandi ekki þurft að láta smala
sér með samlöndum sínum.
Varnarmálaráðuneytið, utan-
ríkisráöuneytið og knattsþyrnuyf-
irvöld hafa þó fjallað um málið og
líklega verður ofan á að her-
mennirnir kaupi miða sína í gegn
um Englendinga til að tryggja frið
á áhorfendapöllum.
ÍÞRÓTTIR
Urvalsdeildin
UBK-KR 43-92 (18-39)
Það var Guðni Guðnason, sem
var stigahæstur KR, skoraði 26
stig. KR-ingar skelltu Blikanum
allrækilega. Þessum leik var flýtt
til klukkan 18.30 og náðist því
miður ekki að tilkynna það nægi-
lega til allra fjölmiðla. Því urðu
nokkrir áhorfendur frá að hverfa
og misstu því af því af þessu rót-
bursti.
Þór-ÍR 68-121 (31-57)
Það var Ijóst strax í leiknum að
það átti að ganga frá Akueyring-
unum. Á 11. mínútu var staðan
orðinn 10-30 og héldu Reykvík-
ingarnir því út hálfleikinn. f
síðari hálfleik byrjaði ballið.
Halldór Hreinsson, sem skoraði
18 stig í leiknum, gerði 16 í síðari
hálfleik og hirti flestöll fráköst.
Þeir juku síðan muninn jafnt og
þétt alveg í lokin án þess að Þórs-
arar næðu að svara á nokkurn
hátt. Af ÍR-ingum gerði Vignir
Hilmarsson 25 stig, Karl Guð-
mundsson 20, Jóhannes Sveins-
son 19 en Halldór eins og áður
sagði 18 stig. Af Þórsurum var
Guðmundur Björnsson stiga-
hæstur með 19, Björn Sveinsson
11, Ágúst Guðmundsson 10 og
Eiríkur Sigurðsson 10. Konráð
Óskarsson, sem hefur verið mjög
atkvæðamikill í Þórsliðinu, sást
lítið í leiknum og fór útaf með
fimm villur fljótlega í síðari hálf-
leik.
-hk/ste
1. deild karla
UMFT-UMFS 136-83
(69-40)
Gríðarlegur stigaleikur þar sem
Eyjólfur Sverrisson gerði 50 stig.
Einnig stóðu sig vel Björn Sig-
tryggsson og Sverrir Sverrisson.
Tindastóll var einfaldlega betri
eins og tölurnar bera með sér.
Skallagrímur gat þó haldið í við
þá framaf fyrri hálfleik en í þeim
síðari gengu Sauðkrækingarnir
yfir þá. Það munaði mestu um að
heimamenn nýttu hraðaupp-
hlaup sín mjög vel ásamt því að
skora fljótlega úr hverri sókn.
Hjá Skallagrími bar enginn af.
Reynir-HSK 65-67 (49-29)
Reynir var 20 stig yfir lengi vel og
leit úr fyrir sigur hjá þeim. En
gestunum tókst að hala inn stig og
komast yfir. Það virtist eins og
Reynismenn gætu ekki haft þetta
og hrikalegt að glutra þessu
svona niður.
-hs/ste
England
1. deild kvenna
UMFN-KR 39-41 (25-12)
Njarðvíkingarnir voru yfir í fyrri
hálfleik en það snerist heldur bet-
ur við í þeim seinni. KR stúlkurn-
ar tóku sig heldur betur á og þeg-
ar 20 sekúndur voru til leiksloka
voru þær yfir 39-41 og tókst að
halda muninum til enda. Græti-
legt fyrir Suðurnesjafljóðin að
missa þetta niður eftir skínandi
fyrri hálfleik.
Guðni Guðnason var atkvæðamestur KR-inga í stórsigri þeirra yfir Blikunum.
lan Russ
með Leeds
Leikur góðgerða-
leik með Leeds í
mars
Þann 29. mars mun marka-
skorarinn frægi Ian Russ, leika
góðgerðaleik með Leeds gegn
Everton.
Það var John Charles sem fékk
Russ til að koma, en John lék
sjálfur með Juventus fyrr á árum.
Leikurinn er einmitt haldinn fyrir
John Charles og Bobby Collins
en hann lék mest með Everton á
sínum tíma. „Það er bara óskandi
að ekkert komi fyrir áður en til
leiksins kemur," sagði Charles
við fréttamenn en hann er einnig
að vinna að því að fá Mickael
Laudrup til viðbótar en ekki talið
líklegt að Juventus taki svo mikla
áhættu.
-JGH/ste
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Perutertur, bananariutertur, rjómas
og rjómahringir.
Góð varaágóöuverði.
Þórsbakarí
Borgarholtsbraut 19 og Hrísateigi 47
Úrslit í körfu
Stórsigrar eða
naum jafntefli