Þjóðviljinn - 08.03.1988, Page 2
SPURNINGIN-n
FRETTIR
Ert þú hissa á útreiðinni
sem nýgerðir kjara-
samningar hafa fengið?
Sigurður Ólafsson
nemi:
Ég er bara hissa á samningunum
sjálfum. Gengisfellingin kemur
t.d. fáránlega út.
Björn H. Guðmundsson
bílamálari:
Já, ég er það. Það vekur furðu
mína að verkfólkið standi ekki
saman. Sumir semja en aðrir
ekki.
Ármann Eiríksson
sölumaður:
Nei, laun þeirra lægst launuðu
eru ekki til að lifa af. Ég er ekki
hissa á því að þeir sem hafa
lægstu launin skuli rísa uþþ gegn
launamisréttinu í landinu.
Jón Gestur Ármannsson
þjónanemi:
Nei, ég er nú ekkert hissa á
henni. Þetta eru lélegir samning-
ar.
Ragnheiður Helgadóttir
fiskverkunarkona:
Nei. Þetta eru ósköp einfaldlega
lélegir samningar.
NORÐURLANDARÁÐ
Deilt um afskipti
af alþjóðamálum
AnkerJörgensen hvatti tilfrumkvæðis um
friðaraðgerðir í átökum ísraela og Palestínumanna
Anker Jörgensen, fyrrum for-
maður danska jafnaðar-
mannaflokksins, hvatti utanríkis-
ráðherra Norðurlandanna I ræðu
sinni í gær til að taka frumkvæði
um friðaraðgerðir í átökum Isra-
elsmanna og Palestínumanna.
Jörgensen vakti þar með upp
gamalt deilumál innan Norður-
landaráðs, spurninguna um
hvort ráðið eigi yflrleitt að ræða
alþjóðamál
Margir þingfulltrúar, einkum
af hægrivængnum, eru þeirrar
skoðunar að Norðurlandaráð eigi
alls ekki að taka fyrir mál af þessu
tagi. Jan P. Syse, formaður
norska hægriflokksins og forseti
þingsins, hefur meðal annarra
lýst yfir andstöðu sinni við af-
skipti þingsins af alþjóðamálum.
I umræðum sem spunnust
vegna ræðu Jörgensens sýndi það
sig að skoðanir eru mjög skiptar
um þetta atriði. Páll Pétursson,
sem gegndi störfum forseta
þingsins um skeið í gær, tók hins
vegar af skarið og las úr Helsink-
isáttmálanum sem kveður á um
að Norðurlandaráð skuli ekki
álykta um alþjóðamál. Hins veg-
ar sé hverjum þingfulltrúa
fullkomlega heimilt að víkja að
alþjóðamálum í umræðum og át-
elja brot á mannréttindum, hvar
sem vera skal. GG/Osló
Verk Thors
kynnt
íOsló
Vésteinn Ólason prófessor við
háskólann í Osló hélt fyrirlestur
um Thor Vilhjálmsson og verk
hans í gær. Thor var viðstaddur
fyrirlesturinn, ávarpaði sam-
komuna og svaraði fyrirspurn-
um.
Fyrirlestur Vélsteins var öllum
opinn og haldinn í tilefni af af-
hendingu bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs í dag. Lesið var
úr tveimur bóka Thors, Fljótt
fljótt sagði fuglinn í norskri þýð-
ingu Knuts Ödegárds og Grá-
mosinn glóir í sænskri þýðingu
Peters Hallbergs.
GG/Osló
Norðurlandaráð
Peter
Hallberg
boðið til
afhendingar
Svíinn Peter Hallberg kom til
Oslóar í gærkvöldi í boði íslenska
menntamálaráðuneytisins til þess
að vera viðstaddur afhendingu
bókmenntaverðlauna Norður-
landaráðs. Athöfnin fer fram í
tónleikahúsi Oslóborgar í kvöld.
Hallberg á heiðurinn af þýð-
ingunni á verðlaunabók Thors
Vilhjálmssonar. Þýðing Hall-
bergs var lögð fram fyrir dóm-
nefndina og bókin verður einnig
gefin út í þýðingu hans í Svíþjóð.
Peter Hallberg er íslendingum
kunnur vegna áhuga hans á ís-
lenskum bókmenntum og starfs
hans að útbreiðslu þeirra. Hann
hefur þýtt fjölmargar bækur
Halldórs Laxness og skrifað
manna mest um skáldið á
Gljúfrasteini.
GG/Osló
Vilja samnorrænt sjónvarp
Eiður Guðnason: Skammsýni ráðið ferðinni ogpólitískan
vilja hefur skort
að jaðrar við hneyksli að ráð-
herranefndin skuli ekki geta
komist að niðurstöðu um sam-
norrænt sjónvarp. Forsætisráð-
herrarnir geta ekki yfirgefið Osló
í þessari viku án þess að hafa
tekið ákvörðun um þetta efni.
Þannig fórust sænska íhalds-
manninum Carl Bildt orð um
áætlanir um norrænt gervihnatta-
sjónvarp, hið svokallaða Tele-x.
Þátttakendum í almennum um-
ræðum á Norðurlandaráðsþing-
inu varð tíðrætt um sjónvarps-
samvinnuna í gær. Undirbúning-
ur að samvinnu Norðurlandanna
um sjónvarpsútsendingar hefur
staðið í mörg ár og þingmenn er
farið að lengj a eftir niðurstöðum.
Nú stendur á ráðherrum Norður-
landanna að taka af skarið.
Það eina sem hefur verið
ákveðið til þessa er að gervihnetti
verður skotið á Ioft á næsta ári.
Engin ákvörðun liggur fyrir um
hvernig eigi að nota þetta dýra
tæki.
Eiður Guðnason, fráfarandi
formaður menningamálanefndar
ráðsins, sagði að skammsýni
hefði ráðið ferðinni hingað til og
áætlunin hefði ekki tekist sem
skyldi þar sem pólitískan vilja
hefði skort. Eiður lýsti yfir
áhyggjum sínum vegna þess fors-
kots sem enskt gervihnattasjón-
varp mun ná í þessum heimshluta
vegna seinagangs Norðurland-
anna.
Jan P. Syse, formaður norska
hægriflokksins, tók í sama streng.
„Margar ólíkar lausnir hafa verið
ræddar í þessu sambandi en nú á
þessu þingi verður að taka
ákvörðun," sagði Syse, sem lagði
áherslu á mikilvægi samnorræns
sjónvarps í menningarsamstarfi
Norðurlandanna. GG/Osló
Og ekkert víðar?
Hvergi annarsstaðar?
C1967 Tnbon* M«d*« Swv>c«».
All Rigbt* R»«rvd
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. mars 1988