Þjóðviljinn - 08.03.1988, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 08.03.1988, Qupperneq 11
ERLENDAR FRETTIR Jesse Jackson hefur komið mjög á óvart og sópað að sér hvítu fylgi. Honum er spáð velgengni í dag. Þessir tveir eru hvor í broddi sinnar fylkingar. Bush, „sjálfboðaliðinn í brunalið- inu,“ og grískættaði kúrekinn frá Massachusetts, Mike Dukakis. Bandaríkin „Þriðjudagurinn stóri“ ídag kann að ráðasthverjir verða frambjóðendur stóru flokkanna tveggja íforsetakosningunum. Bush sigurstranglegastur meðal repúblikana en Dukakis og Jackson fremstir í Demókrataflokknum Idag fara fram forkosningar og prófkjör í 20 fylkjum Banda- ríkjanna. Búist er við því að Ge- org Bush varaforseti skjóti fjend- um sínum í Repúblikanaflokkn- um ref fyrir rass en meiri óvissa ríkir í herbúðum demókrata. Þó þykir ekki ólíklegt að fylkisstjór- inn frá Massachusetts, Mikhael Dukakis, og blökkumannaleið- toginn Jesse Jackson verði feng- sælir. Þetta eru lang umfangsmestu forkosningar á einum degi frá því Bandaríkjamenn tóku upp þetta fyrirkomulag á vali frambjóð- enda stóru flokkanna tveggja til forsetaembættis. Nánast þriðj- ungur kjörfundarfulltúa verður kosinn í dag. Það er því ugglaust ekki fjarri sanni hjá spáglöðum stjórnspekingum þegar þeir segja að sá sem hefjist til flugs í dag verði ekki auðveldlega væng- ísrael Báðir myrða Þrír fsraelsmenn og þrír palest- ínskir skæruliðar létu lífið í gær. Skæruliðarnir munu hafa farið yfir landamærin að Egyptalandi í rauðabítið í gærmorgun. Skömmu síðar sátu þeir fyrir rút- unni sem var á leið til kjarnorku- vers ísraelsstjórnar í Negev eyðimörkinni og náðu henni á sitt vald. Kröfðust þeir þess að allir landar sínir í ísraelskum fangels- um yrðu þegar látnir lausir. Þegar ekki var orðið við kröfu þeirra myrtu þeir einn farþeganna. Hina tvo drápu skæruliðarnir þegar ísraelskir hermenn gerðu leifturárás á bílinn. Enginn skæruliðanna lifði árásina af. Á sunnudaginn skutu ísraelskir hermenn tvo palestínska ung- linga til bana á hernumdu svæð- unum. Þeir voru 85da og 86tta fórnarlömb ísraelsmanna frá því í desember. Reuter/-ks. stýfður né niður skotinn af stjörnuhimni. Hyggjum að einstökum lyst- hafendum og skyggnumst fyrst um bekki í herbúðum lýðveldiss- inna. Þar virðist fyrrnefndur Bush vinsælastur einsog sakir standa. Það kvað vera samdóma álit sérfræðinga að varaforsetinn sé mjög sigurstranglegur enda benda flestar skoðanakannanir til þess að hann geri rósir. Bush nýtur þess ennfremur að hafa sigrað í prófkjöri flokks síns í Suður-Karólínu á laugardaginn. Að lokum má nefna eitt atriði; Ronald Reagan forseti styður hann í laumi. Helsti keppinautur hans, skapbráður öldungadeildarþing- maður frá Kansas að nafni Ro- bert Dole, virðist hafa dalað nokkuð enda vart að furða þar eð ýms vafafygli á borð við Alexand- er Haig og Jeanne Kirkpatrick hafa játað honum fylgi sitt og fulltingi í heyranda hljóði uppá síðkastið. Það getur því vel farið svo að hann neyðist til að glíma um annað sætið við guðlastarann Pat Robertson. Robertson er á heimavelli í suðrinu. Það er kunnara en frá þurfi að segja að hann á auðæfi sín að þakka því hve ötull hann hefur verið við að leggja nafn Jesú Krists við hégóma, fégræðgi og bandaríska hernaðarstefnu. í beinni sjónvarpsútsendingu. Ro- bertson gerir sér fyllilega grein fyrir því að Bush nýtur mests fylg- is lýðveldissinna um þessar mundir. Hann hefur því einbeitt skítkasti sínu að honum og borið honum ýmsa svívirðu á brýn, svo sem hógværð og háttvísi í skiptum við sjálfan myrkrahöfð- ingjann, bóndann í Kreml. Ro- bertson lýsti því yfir á dögunum að ef hann fengi fá atkvæði á „þriðjudaginn stóra“ myndi hann hverfa úr keppni en hvetja sitt fólk til að kjósa Dole. Mjórra er á munum í sam- keppni lýðræðissinna í fylkjunum ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 15 tuttugu. Demókrati hefur ekki haft erindi sem erfiði í forsetakj- öri frá því veltennta brosgríman Jimmy Carter felldi Gerald Ford, þann sem ekki gat með góðu móti gengið og tuggið samtímis, úr embætti árið 1976. Hinn grískættaði Dukakis hef- ur forystuna í ýmsum mikilvæg- um kjördæmum, svo sem Texas og Flórída, en skammt á hæla honum koma þeir töltandi Jesse Jackson, Richard Gephardt, fulltrúadeildarþingmaðurinn ljósrauðhærði frá Missouri, og Álbert Gore, fjallmyndarlegur öldungadeildarþingmaður frá Tennessee. Einnig er þess vænst að Dukakis sigri í heimafylki sínu og á Rhode eyju en þessi kjör- dæmi eru í hópi sex fylkja norðan suðurs sem efna til prófkjörs í dag. Haft hefur verið á orði að lítil kosningaþátttaka í dag komi fyrst og fremst einum frambjóðanda Demókrataflokksins til góða en það er séra Jesse Jackson. Hann njóti fyrst og fremst fylgis þel- dökkra bræðra sinna sem honum hafi tekist að virkja í stórum stíl til stjórnmálastarfs. En að undanförnu hefur komið æ betur í ljós að fleira hangir á spýtu Jacksons. f hverju norður- fylkinu á fætur öðru, Maine, Ver- mont, Iowa og New Hampshire, hefur hann sópað að sér at- kvæðum þótt ekki búi þar nema sárafáir svertingjar. Það gæti því vel farið svo að hann hljóti allt að þriðjung atkvæða í mörgum fylkjanna í dag. Richard Gephardt hefur orðið vel ágengt í prófkjörum fram að þessu. Hann hefur hirt mörg af stefnumálum Garys „heitins" Harts, til að mynda er hann af- skaplega andvígur „kerfinu" um þessar mundir. Gephardt er eini frambjóðandinn sem hefur hreyft þeirri hugmynd að setja hömlur á vöruinnflutning í því augnamiði að „bæta samkeppnisaðstöðu“ bandarísks iðnaðar. Allir keppi- nauta hans saka hann um ábyrgð- arleysi og fullyrða að hugmyndir hans myndu leiða til „alþjóð- legrar viðskiptastyrjaldar“ yrði þeim hrint í framkvæmd. Kolfalli Gephardt á prófinu í dag verður það ugglaust hans beiski bana- biti. Sömu sögu er að segja um „heimamanninn" Albert Gore. Hann hefur lítið haft sig í frammi fyrr en nú, veðjað öllum fúlgum sínum á „þriðjudaginn stóra.“ Reuter/-ks. Frakkland „Sambúð“ á enda Chirac mun ekki Ijá máls á þvíað gegna áfram embœtti forsœtisráðherra ef Mitterrand verður endurkjörinnforseti Jacques Chirac, forsætiráð- herra Frakklands, er sem kunnugt er í framboði til forseta- embættis þar í landi þótt skoð- anakannanir bendi ekki til þess að landar hans meti það framlag hans að verðleikum. Þvert á móti virðast Frakkar áfram um að Francois Mitterrand gegni hinu háa embætti hér eftir sem hingað- til en þó vilja þeir ekki skjóta fyrir það loku að Chirac fái haldið forsætisráðherratign. En Chirac er maður metorða- gjarn og finnst það súrt í broti að vera aðeins l.stýrimaður í skugga skipstjórans Mitterrands. Hann hóf því upp raust í gær og kvað uppúr með það að ekki kæmi til nokkurra mála að hann héldi áfram að stýra ríkisstjórn ef Mitterrand yrði kjörinn á ný í forsetaembættið þann 8da maí næstkomandi. Fram að þessu hefur Chirac reynt að færa sér í nyt vinsældir „sambúðarinnar", en það er nafnið sem valið hefur verið sam- starfi forseta af vinstrivæng og ríkisstjórn hægri manna, og ekki viljað þvertaka fyrir að hún ætti lengra líf fyrir höndum þótt svo óhönduglega tækist til að hann sjáifur yrði ekki næsti forseti Frakklands. En ummæli hans í gær benda til þess að hann hafi lagt höfuðið í gott bleyti um helg- ina. „Ef Francois Mitterrand nær kjöri þann 8da maí þýðir það ekkert annað en það að meiri- hluti þjóðarinnar er á móti stefnu stjórnarinnar. Við nytum ekki lengur trausts hennar. Því ættum við að halda að okkur höndum og láta Francois Mitterrand um að koma á sósíalisma en það gætum við, vitaskuld, aldrei stutt.“ Þótt Mitterrand hafi ekki enn látið uppi um áform sín þá benda skoðanakannanir til þess að hann hreppi 38 af hundraði atkvæða í fyrri umferð forsetakjörs. Chirac og Raymond Barre, fyrrum for- sætisráðherra, geta gert sér vonir um rúm tuttugu prósent hvor en fasistinn Le Pen virðst njóta fulltingis 10 af hundraði franskra kjósenda.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.