Þjóðviljinn - 25.03.1988, Blaðsíða 3
Ferming og ungur sálarháski í
endurminningum ogskáldskap
4
fallið í þá synd að heimta tákn frá
drottni. En gáum líka að
eftirspurn hans eftir kraftaverk-
um: það gekk reyndar eftir að
íslendingar misstu fyrr trúna á
kraftaverk guðspjallanna og
önnur undur þeirra en þeir gæfu
upp á bátinn sína þjóðlegu
drauga, sem létu aldrei bilbug á
sér finna þótt rafmagn og vélar
kæmu í garð, heldur juku kyn sitt
eftir þörfum, fæddu af sér t.a.m.
bíldrauga og fleira þesslegt.
Pegar Matthías er að rifja
þessar efasemdir upp gerir hann
að vísu ráð fyrir því, að hann
kunni að misminna. Kannski hafi
trúarkreppan ekki komið fyrr en
ári síðar með kynnum af manni
sem Jakob hét Athanasíusson og
hefur verið magnaður villumaður
á sinni öld. Matthías segir:
„Meðal annars sagði hann mér
í trúnaði að Biblían væri full af
rugli, að kraftaverkin væru tómar
þjóðsögur, að Kristur hefði
einungis verið góður maður og
hefði aldrei risið upp og fleira.
Hann bað mig að þegja yfir þessu
og það gerði ég, en hafði þó
áhyggjur miklar.“
Heimskuleg og
hræðilega væmin
Auðvitað er það eilífðarmál
allra endurminningahöfunda, að
þeir eiga erfitt með að gera sér
grein fyrir því, hvað þeir í
rauninni hugsuðu á ungum aldri,
og hvað þeim finnst síðar að þeir
hafi þá þegar vitað og skilið eða
skynjað. Til dæmis finnst þeim,
sem les um fermingarraunir
Þórbergs Þórðarsonar í „í
Suðursveit", að þar tali rígfull-
orðinn andstæðingur kirkjulegr-
ar kreddu hiklaust fyrir munn
unglingsskjátukvikindis þess sem
hann eitt sinn var. En allt sé það í
lagi - enda kaflinn skemmtilegur
vel. Þar segir til dæmis á mjög
mælskan og tilþrifamikinn hátt
frá því sem einna skelfilegast
þótti í fermingarundirbúningi
nálægt aldamótum og margir
hafa hryllt sig yfir - en það er að
læra Kverið utanbókar.
Eórbergur segir:
„Einn dag á hausti kom lítil
bók að Hala. Það var ekki stór
bók, en það var vond bók....
Þetta var Helgakver. Það dró
svart ský yfir framtíð mína. Ég
vissi að nú átti ég að fara að
setjast við að læra þessa skruddu
7
imi
m i
.
5 -'.r1' ''k--
• ; ■;
Skátabúöin - skarar framúr.
Panther 3
65 lítrar
Þyngd 1.800 gr.
Verð 5.490,-
Jaguar S 75
75 lltrar
Þyngd 1.800 gr.
Verð 7.490,-
Everest 72
72 lítrar
Þyngd 1.400 gr.
Verð 3.590,-
Tramp 8
Hollofil fylling
+ 25° C — -h 5° C
Þyngd 1.700 gr
Verð 4.890,-
Fernund
Hollofil fylling
+ 25° C — - 8° C
Þyngd 1.800 gr.
Verð 5.680,-
Igloo
Hollofil fylling
+ 25° C — 15° C
Þyngd 2.000 gr.
Verð 6.790,-
SKATABUÐIN
Snorrabraut 60 sími 12045