Þjóðviljinn - 25.03.1988, Blaðsíða 13
NÝKOMIÐ MIKIÐ
ÚRVAL AF FATNAÐI
vörur
góðu verði
: smáfólk
ungt fólk
fullorðið fólk
ítalskir vorskór
Opið
laugardag
10-16
vid Eidistorg
ii 61 1811.
FERMDUR
ADHAIFU
Þegar ég var beðinn um að
skrifa pistil í þetta fermingar-
blað komst ég á hálfgerð vand-
ræði. Mér fannst ég hreint
ekki manna heppilegastur til
þess. Að vísu hef ég æði oft
verið við fermingu. Meira að
segja setið þó nokkrar ferm-
ingarveislur. Frá einhverri
þeirra væri auðvitað hægt að
segja. En ég held að það yrði
lélegt lesefni. Og, hamingjan
góða, ekki get ég farið að
skrifa um fermingar almennt.
En hvernig væri að segja bara
frá sinni eigin fermingu? Auðvit-
að var hún ekkert merkilegri en
aðrar slíkar athafnir í sveitinni í
þá daga. En hún stendur mér þó
næst. Hana ætti ég að þekkja
best. Og ég ætti að geta það án
þess að vera of nærgöngull við
sjálfan mig eða aðra.
Presturinn, sem fermdi mig,
var sr. Guðbrandur Björnsson í
Viðvík. Hann þjónaði fjórum
kirkjum; heimakirkjunni í Við-
vík, Dómkirkjunni á Hólum,
Hofsstaðakirkju og Rípurkirkju,
en það var mín sóknarkirkja. Sr.
Guðbrandur hafði kallað mig út í
Ríp þrisvar eða fjórum sinnum
um veturinn og spurt mig út úr
biblíusögunum og kverinu. Mér
reyndust nú biblíusögurnar
auðveldar. Ég hafði lært þær
utanað spjaldanna á milli hjá
kennaranum mínum, honum
Magnúsi Bjarnasyni. Mér fannst
það ekki langrar stundar verk
enda varð hann að hafa hraðar
hendur við námið því að í barna-
skóla var ég aldrei meira en sem
svarar einu kennsluári nú og þó
líklega tæpast það, en í ýmislegt
fleira þurfti að líta en biblíusög-
urnar. Þess ber þó að geta að
Magnús kennari sagði að við
mættum sleppa smáletursköfl-
unum í biblíusögunum, þeir
skiptu ekki meginmáli, sagði
hann, auk þess sem það væri
slæmt fyrir augun að grína í smáa
letrið.
Kverið fannst mér aftur á móti
ekki beinlínis skemmtileg lesn-
ing, fremur þurrt og staglsamt.
Bót í máli að það var stutt, ekki
nema 60-70 bls., í fremur litlu
broti, svo ég hef líklega kunnað
það nokkurn veginn skammlaust.
Kvaddur til Viðvíkur
Svo kom að því að sr. Guð-
brandur kvaddi fermingarbörn
sín úr öllum fjórum sóknunum
samtímis heim í Viðvík. Þar
skyldum við uppfrædd í fjóra
daga samfleytt. Auðvitað fór ég
ríðandi, og það á eigin hesti.
Hann var grár og ég nefndi hann
Sleipni. Það er nokkuð löng leið
milli Eyhildarholts og Viðvíkur ^
svo ekki þótti rétt að ég færi fram
og til baka samdægurs. Því var
mér komið fyrir til gistingar á y
SAMANTHA MICHELLE
Glæsilegt sófasett sem allir geta eignast.
Fáanlegt í áklæði eða ekta leöri.
Svefnsófinn sem leysir allan vanda. Frábær
fermingargjöf.
HÚSGAGNAIÐJAN
HVOLSVELLI
SófasGtt. Verö frá kr. 78.400 ^ustubveo.*«>kvols.b.u »»
Söluaðilar: Ingvar og synir, Grensásvegi 3 og 3K, Suðurlandsbraut 32