Þjóðviljinn - 31.03.1988, Side 2
Fjórtán komma fímm
prósent raunávöxtun
á Kjörbók
Raunávöxtun Kjörbókar fyrstu 3 mánuöi þessa árs jafngildir hvorki meira
né minna en 14,5% ársávöxtun.
Auðvitað kemur frábær ávöxtun hvorki höfundum né reyndum
Kjörbókarlesendum á óvart, þvíþeir vita að á Kjörbókinni erallt tekið með
í reikninginn. Þeir eru líka ófáir Kjörbókareigendur sem horfa björtum
augum til 1. maí, þvíþá verður 16 mánaða vaxtaþrepið reiknað út í fyrsta
sinn. Hjá þeim verður þessi ávöxtun 15,9% og 24 mánaða þrepið gefur
16,5% ávöxtun.
Grunnvextir á Kjörbók frá 1. apríl eru 26%, 27,4% afturvirkir vextir eftir 16
mánuði og 28% eftir 24 mánuði. Og verðtryggingarákvæðið tryggir
hámarksávöxtun hvað svo sem verðbólgan gerir.
Já það er engin tilviljun að Kjörbókareigendur eru margir.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Lífleg sýning
hjá SOGU
Leikklúbburinn SAGA á Akureyri.
Grænjaxlareftir Pétur Gunnarsson.
Leikstjóri: Arnheiður
Ingimundardóttir.
Lýsing: Skúli Gautason og Magnús
Sigurólason.
Sýningarstjóri: Rebekka Þráinsdóttir.
Frumsýning: Fimmtudagur 17. mars
1988.
Leikklúbburinn SAGA á Akur-
eyri var stofnaður árið 1976
og hefur starfað af miklum
krafti allar götur síðan. Klúbb-
urinn hefur fært upp hátt í tut-
tugu leikverk og er fyrir löngu
orðinn fastur liður í menning-
arstarfsemi bæjarins.
Forráðafólk SÖGU, sem flest
er æskufólk á framhaldsskóla-
aldri, hefur verið duglegt og
áhugasamt um samstarf við
áhugaleikfélög á hinum Norður-
löndunum og tekið þátt í samsýn-
ingum þar og auk þess farið í
leikför til Danmerkur og víðar.
í kynningarpistli í leikskrá um
starfsemi klúbbsins fær bæjar-
stjórn Akureyrar heldur kaldar
kveðjur þar sem skýrt er frá því
að vegna niðurskurðar á framlagi
bæjarins geti klúbburinn ekki
tekið þátt í samnorrænu verkefni
FENRIS ‘89. Er hörmulegt til
þess að vita og vonandi að ráða-
menn bæjarins finni einhverja
leið til þess að styrkja klúbbinn í
„þessu einstaka norræna sam-
starfi og einhverju mesta menn-
ingarframtaki íslenskrar æsku“
eins og segir í leikskrá.
Sýning Leikklúbbsins SÖGU á
Grænjöxlum eftir Pétur Gunn-
arsson var bráðskemmtileg og lif-
andi. Texti Péturs er hnyttinn og
flettir miskunnarlaust ofan af
skinhelgi fullorðna fólksins auk
þess sem þjóðfélagsádeilan
stendur í fullu gildi þótt rúmur
áratugur sé síðan verkið var skrif-
að.
A frumsýningunni mátti
reyndar vart á milli sjá hverjir
skemmtu sér betur leikarar eða
áhorfendur enda er leikgleðin og
æskufjörið m.a. það sem gerir
þessa sýningu svo heillandi. En
leikgleðin ein er auðvitað ekki
nóg - hana þarf að virkja og aga
og það hefur leikstjóranum, Arn-
heiði Ingimundardóttur, tekist
með ágætum.
Aðalhlutverkið, Kára, ung-
linginn sem verkið snýst um, lék
Friðþjófur Sigurðsson. Friðþjóf-
ur skilar hlutverkinu með sóma,
framsögnin er skýr og svipbrigðin
bera þess augljósan vott að hér er
enginn viðvaningur á ferð. Dóra,
vin Kára, leikur Gunnar Gunn-
steinsson.Gunnarfer á kostum og
í meðförum hans verður Dóri
ekki síður eftirminnilegur en
Kári. Þau Rebekka Þráinsdóttir
og Þráinn Brjánsson leika for-
eldra Kára af festu og innlifun.
Svipbrigði þeirra og Kára í ferm-
ingarsenunni eru hreint óborgan
leg. Stelpurnar Grétu og Láru
leika þær Helga Hlín Hákonar-
dóttir og Ásta Júlía Theódórs-
dóttir og gera báðar hlutverkum
sínum góð skil. Aðrir sem fram
koma í sýningunni eru: Snorri
Ásmundsson, Rósa Rut Þóris-
dóttir, Hildigunnur Þráinsdóttir,
Garðar Á. Árnason, Haraldur
Davíðsson, Freyr Vilhjálmsson,
Inga Vala Jónsdóttir og Erna
Káradóttir.
Tónlistin í sýningunni er eftir
aðstandendur Spilverks þjóð-
anna og er hér flutt af hljómsveit
sem kallar sig Bláar framtcnnur.
Hana skipa Inga Vala Jónsdóttir
(söngur), Haraldur Davíðsson
(gítar, söngur) og Freyr Vil-
hjálmsson (bassi). Stóðu þau að
sínum hluta sýnsingarinnar af
smekkvísi og næmi.
Leikklúbburinn SAGA mun
sýna Grænjaxla í Dynheimum á
Ákureyri um páskana og hvetur
sá er þetta ritar alla þá sem tök
hafa á að sjá sýninguna. Hún á
fullt erindi við okkur öll - auk
þess sem fróðlegt er að kynnast
starfsemi Leikklúbbsins SÖGU
sem vonandi á langa framtíð fyrir
sér.
Óttar Einarsson
Myndlist
Sigurður M. Sólmundsson
sýnir í Hveragerði
( dag kl. 10.00 opnar Sigurður
M. Sólmundsson myndlistarsýn-
ingu í Félagsheimili Ölfusinga í
Hveragerði.
Þetta er áttunda einkasýning
Sigurðar, sem að þessu sinni sýnir
35 myndir, allar unnar 1987-
1988. Eins og endranær vinnur
Sigurður myndir sínar úr hreinu
grjóti, mosa, timbri og járni.
Einnig eru á sýningunni vel útbú-
ið grillhús og gestabækur unnar
úr tré.
Sýningin stendur til 4. apríl og
er opin daglega kl. 10.00-22.00.
LG.