Þjóðviljinn - 31.03.1988, Blaðsíða 14
KROSSGATA
Nr. 611
1 2 3 W z— 7- T~~ 2 9 T 10 i) )2
)3 II íí y )5 *>' JC? W 2 ;? ¥ 2 f ;í>"
£ 12 T~ )/ & >¥■ )sr ÍT )É w ÍT
2/ )S y 2? 22 É3 )¥- b 2'0 T~ )¥
9 & V 2¥ -g— 9 y )) 5 $5 d 9 T~ 23
3 ;9 n TZ 12 !> )¥ W~ 12
26> W )i 22 JT ¥ ¥ f ) ¥ jr s )¥
7T~ 2T“ <7 T W~ )8 T~ ¥ 'f- JT~ )¥ T~ )¥
2? )S b ;9 TT~ 1 V y )2
2r ¥ IX *> V r? (p (? )S r~ )2 IZ
ryl V ¥ W~ T )? )) V W~ )(r JT~
n )S io w~ W ái w )2 f )¥ 21 /9
1 T 12 ¥ )# )7 3/ 2^ )r
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá karlmannsnafn.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síöumúla 6,
Reykjavík merkt: „Krossgáta nr. 611“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verð-
launin verða send til vinningshafa.
2b n 9 \25 JS s )5 é (o
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lárétt eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Lausnarorð úr krossgátu 608 var Gesthúsavör. Dregið var úr réttum
lausnum og verðlaunin, Kvæðasafn Guðmundar Böðvarssonar,
komu í hlut Ásu Torfadóttur, Hringbraut 48, Reykjavík.
Ceiðsögn um landið sf. ©
KMÆJAffKLAUSTUR
~ SKAFTAFELL
Á HRINGVEGINUM 5
Verðlaunfyrirkrossgátu611 er
hljóðsnælda með leiðarlýsingu
um Skaftafellssýslur frá Kirkju-
bæjarklaustri til Skaftafells.gefin
út af Leiðsögn um landið sf.
Rímur af
Walti
Háskólakórinn flytur
DISNEYRIMUR
eftir Þórarin Eldjárn
Tónlist og stjórn: Árni Harðarson
Leikstjórn: Kári Halldór
Á þeim tíu árum sem liðin eru
síðan Þórarinn Eldjárn gaf út
Disneyrímur sínar munu þær
hafa aflað sér allvaranlegra vin-
sælda meðal bókelskra manna
sem ennþá unna einmiðlunum
(sem Þórarinn kallar svo til að-
greiningar frá fjölmiðlunum).
Það var líka skrambi skemmtileg
hugmynd að tefla elstu samhang-
andi bókmenntahefð íslendinga
fram gegn lágkúru vitundariðn-
aðarins. Rímnaformið reyndist
prýðilega fært um að gera Disney
og félaga hans í vitundariðnaðin-
um dálítið hallærislega, líkasta
búralegum, kænum en ögn vit-
grönnum bændakurfum. Þórar-
inn fer hinar hefðbundnu leiðir
rímnaskálda, tekur sögu af fræg-
um manni og færir hana í rímaðan
búning, hefur hverja rímu á man-
söng, skiptir um bragarhætti til
að auka fjölbreytni, en brúkar
nýtískulegt orðfæri sem fer all-
kostulega saman við formið
gamla. Úr þessu öllu verður
skemmtileg blanda.
Hér til forna hefði engum
blandast hugur um hvernig flytja
skyldi Disneyrímur í heyranda
hljóði. Ekki hefði þurft annað til
en eitt stykki kvæðamann. Nú
finnast slíkir ekki lengur nema
örfá sérvitur gamalmenni og
þætti auk þess sennilega skelfi-
lega grátbroslegt að heyra þessa
gömlu list hafða í frammi. En nú
hefur Árni Harðarson lagt út í
það ævintýri að reyna að búa
Disneyrímur til flutnings með nú-
tímalegum hætti, láta kór sinn
flytja rímurnar allar undir lögum
Leiklist
SVERRIR
HÓLMARSSON
sem minna á rímnalögin gömlu,
setja þetta allt upp á svið með
leikrænum tilburðum og sögu-
manni og láta flytja undirleiks-
laust. Þetta er býsna djarft leikið.
En hvernig tekst svo til?
Sem leikræn uppákoma er
þetta ekki sérlega vel heppnað.
Textinn er lítt dramatískur í eðli
sínu, hér Iiðast hin epíska frásögn
áfram í breiðum farvegi. Ágæt og
verulega kraftmikil frammistaða
Halldórs Björnssonar breytti
engu um þessa staðreynd, né
heldur fjölbreytilegar og út af
fyrir sig skemmtilegar uppstill-
ingar Kára Halldórs á kórnum.
Hér var bara verið að reyna að
skapa leiklist úr óleikrænum
texta og það er ekki hægt.
Það þýðir hins vegar ekki að
þetta hafi verið með öllu mis-
heppnað og leiðinlegt. Síður en
svo. Einföld lög Árna létu vel í
eyrum í hljómfögrum flutningi
kórsins, Halldór Björnsson fór
listavel með sinn texta og umfram
allt komst allur textinn vel til
skila og sannaði að hann stóð
undir einni kvöldskemmtan. En
ef Árni ætlar að halda áfram á
þessari skemmtilegu braut sem
hann byrjaði að ganga með ágæt-
um Sóleyjarkvæðaflutningi verð-
ur hann að gæta að því að Sól-
eyjarkvæði er í eðli sínu drama-
tískt kvæði á þann hátt sem
Disneyrímur eru ekki.
Sverrir Hólmarsson
FJOLMIÐLAPISTILL
Auglýsingar sem misstu maiks
í blöðunum hefur mátt líta að
undanförnu flennistórar auglýs-
ingar frá Stöð 2 þar sem lesendur
eru beðnir að kynna sér og bera
saman páskadagskrá stöðvar
Jóns Óttars annars vegar og
stöðvarinnar okkar allra hins
vegar. Skilja má á auglýsingunni
að forráðamenn Stöðvar 2 séu
handvissir um að allir muni
sannfærast um gæði þess efnis
sem stöðin býður upp á og að sá
helmingur fjölskyldna á svæði
stöðvarinnar sem enn á eftir að
kaupa sér afruglara rjúki til og
bæti úr vanrækslunni.
Sjálfur á ég ekki afruglara og
þrátt fyrir stífa kröfugerð og
harðar samningaviðræður hefur
mér ekki tekist að fá forráða-
menn Þjóðviljans til að kaupa
þetta nauðsynlega atvinnutæki
handa fjölmiðlagagnrýnanda sín-
um. Samt lagði ég það á mig að
rýna í dagskrár beggja sjónvarps-
stöðvanna og bera saman. Og ég
verð að hryggja þá Jón Óttar og
félaga með því að auglýsingarnar
þeirra höfðu ekki tilætluð áhrif á
þennan tiltekna lesanda. Ég mun
því á næsta samningafundi draga
kröfu mína um afruglara til baka
og knýja heldur á um einhver
önnur réttlætismál.
Eftir að hafa kynnt mér dag-
skrá Stöðvar 2 var ég orðinn
hjartanlega sammála Markúsi
Erni að lestri loknum. Hann
sagði eitthvað á þá leið að Stöð 2
væri vissulega vel útfærð og há-
þróuð vídeóleiga með heimsend-
ingarþjónustu. Og það er hún svo
sannarlega ef marka má páska-
dagskrána.
Yfir helgidagana fimm, þe. frá
skírdegi fram á 2. í páskum, sýnir
Stöð 2 í 89 klukkustundir og 10
mínútur, þe. tæplega 18 stundir á
sólarhring. Af þessum 89 klukk-
ustundum fara 48 - tveir sólar-
hringar - í að sýna okkur (þe.
þeim sem eiga afruglara) 26
bandarískar bíómyndir (þjóðerni
myndanna var ekki tilgreint í
þeirri dagskrá sem ég hafði undir
höndum, svo vera má að ein-
hverjar breskar eða ástralskar
fljóti með). Þetta er ríflega helm-
ingur. Ef lagt er saman barnaefn-
ið á morgnana, bíómyndirnar,
framhaldsþættirnir og poppið þá
eru þessir fjórir efnisflokkar um
80% af páskaefni stöðvarinnar.
Fræðsluefni er sýnt í rúmar þrjár
stundir og klassísk tónlist í tæpar
þrjár.
Sýningartími Sjónvarpsins er
innan við helmingur þess tíma
sem Stöð 2 er í gangi. Stöðin okk-
ar sýnir aðeins í rúmar 40 stundir
eða 8 tíma á dag þessa fimm
helgidaga. Þar af fara 9 klukku-
stundir í að sýna okkur kvik-
myndir, tæpir 8 tímar fara í tónli-
stina, svo til eingöngu klassík, og
tæpir 7 tímar í ýmisskonar fróð-
leik.
En tölurnar segja harla lítið um
gæði dagskrárinnar. Það er því
ekki úr vegi að líta örlítið nánar á
það sem er á boðstólum. Ef við
byrjum á Stöð 2 þá eru vissulega
nokkrar ágætar kvikmyndir á
dagskrá, nýlegar myndir á borð
við Jörð í Áfríku, Zelig eftir Wo-
ody Allen og Birdy sem sýnd var í
Stjörnubíó fyrir ekki mjög löngu.
En allar þessar myndir má fá á
myndbandaleigunum. Þrjár er-
lendar fræðslumyndir eru sýndar,
ein um helga menn, önnur um
myndlist og sú þriðja um hönnun.
Tveir viðtalsþættir eru við bisk-
upinn og forsetann og loks er
mynd sem stöðin hefur látið gera
um ferðamannastaði fslendinga í
útlöndum. Þetta er öll innlenda
framleiðslan ef frá er talið 19:19
og einhver hluti barnaefnisins.
Sjónvarpið sýnir ekki síður
merkar myndir: Playtime eftir
Tati, Sölku Völku hina sænsk/
íslensku og Skytturnar hans
Friðriks Þórs og eru þær allar ó-
fáanlegar á leigunum. Einnig er
sýnd bresk leikhúsuppfærsla á
Sem yður þóknast eftir Shake-
speare. Tvær óperur eru sýndar:
Töfraflautan eftir Mozart í upp-
færslu Ingmar Bergmans og Na-
bucco eftir Verdi frá Scala.
Innlenda framleiðslan er mikil
og fjölbreytt: ballett, myndir um
Krísuvík og björgunarafrek við
Látrabjarg fyrir 40 árum og óp-
erusöngur svo eitthvað sé nefnt.
Mestum tíðindum sætir þó
tvennt: flutningur Hallgrímspass-
íu Atla Heimis og heimildarmynd
í tveimur hlutum um þánn mann
sem haft hefur meiri áhrif á um-
hverfi okkar en nokkur annar,
Guðjón Samúelsson húsa-
meistara.
Þá er ég semsé búinn að fara að
ráðum Jóns Óttars og félaga og
niðurstaðan er sú að afruglarinn
bíður um sinn, í það minnsta fram
yfir páska. Ég vil hafa andlega
fóðrið fjölbreyttara en það sem
þeir skaffa.
SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Páskablað