Þjóðviljinn - 06.04.1988, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 06.04.1988, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 6. apríl 1988 77. tölublað 53. órgangur VerÖlag Attfatt meiri verðbólga Ávísun ákeðjuverkandigengisfellingu. Stjórn efnahagsmála komin úr böndunum Pjóðhagsstofnun áætlar að verðbólgan hér á landi verði 25% á þessu ári eða rúmlega 8 sinnum meiri en í OECD-löndunum og er það hærra hlutfall en var á verðbólguárunum 1979-1985. og nýju verðbólguþróunar," manna vegna óhóflegra kaup- „Það er Ijóst að óhóflegar er- segir Ólafur Ragnar Grímsson og hækkana þeim til handa, enda lendar lántökur, ríkisfjármálin bætirviðaðekkisé,einsogmenn tali atvinnurekendur og ríkisvald og skortur á fjárfestingastjórn vildu gera hér áður fyrr, unnt að nú um að gerðir hafi verið eru meginorsakir þessarar miklu skrifa þetta á reikning launa- „skynsamlegir" kjarasamningar. Sjá bls. 2 Framhaldsskólakennarar Páskabréf til Jóns Baldvins Meinti Jón Baldvin Hannibals- son eitthvað með því sem hann sagði um kennara á alþingi 1985? Hafa skoðanir hans breyst við það að hann er orðinn fjármála- ráðherra? Bjarni Ólafsson framhalds- skólakennari sendir Jóni Baldvin opið páskabréf og segir m.a eftir- farandi um málflutning hans á al- þingi 1985 þegar þá var rætt um Íaunamál kennara: „Hjartnæmar sögur um frá- bæra kennara, sem einkamark- aðurinn var að kaupa út úr skól- unum, voru sagðar til þess eins að þingmaðurinn Jón Baldvin fengi •tækifæri til að baða sig í fjöl- miðlabirtunni og áskoranir ti! ríkisvaldsins að þekkja nú sinn vitjunartíma voru látnar flakka í trausti þess að þær þyrftu aldrei að kosta neitt. Þingpallar voru fullir af áheyrendum og sjón- varpsvélar suðuðu." Sjá bls. 5 Gunnar Sigurjónsson öryrki er búinn að borga sína bílatryggingu uppá nær 50 þús. en hann hefur í framfærslueyri tæpar 30 þús. kr. á mánuði. - Bíllinn er mér ómissandi hjálpartæki svo ég varð að borga mínar tryggingar strax þótt ég geti varla klofið þetta, segir Gunnar. Mynd-E.ÖI. Öryrkjar Tvenn mánaðarlaun í tryggingagjöld Stórhækkun á iðgjöldum bif- reiðatrygginga hefur ekki síst komið ilía við marga öryrkja sem er nauðsynlegt að hafa bíl til að komast ferða sinna og hafa ein- göngu elli- og örorkustyrk til framfæris. Fjölmörg dæmi eru um að öryrkjar greiði tvenn mán- aðarlaun sín í tryggingariðgjöld. Theodór Jónsson formaður Sjálfsbjargar, segir þessar greiðslur fjölmörgum öryrkjum mjög erfiðar og Sjálfsbjargarfé- lög hafa farið fram á hækkun á elli- og örorkubóta vegna þessar- ar hækkunar á tryggingagjöldum. Sjá bls. 2 Suðurnes Heimenn ogna vegfarendum Telur herinn sig hafa lög- sögu áþjóðveginum út í Hafnir? Tveir Danir fœrðir á lögreglustöðfyrir náttúruskoðun Danir, sem fyrir skemmstu áttu leið um veginn út í Hafnir, voru gripnir höndum af vopnuð- um herlögreglumönnum á Kefla- víkurflugvelli, sem færðu þá til lögreglustöðvar flugvallarlög- reglunnar, fyrir þá sök eina að mynda Reykjanesfjöllin. Þorgeir Þorsteinsson, lög- reglustjóri á Keflavíkurflugvelli, sagði í samtali við Þjóðviljann að mistök hefðu átt sér stað. Vegfar- endurnir hefðu ekkert misjafnt aðhafst og hefðu því verið í full- um rétti á veginum. Að sögn Þorgeirs er dátunum bannað að bera vopn utan her- stöðvarinnar nema að fengnu leyfi íslenskra stjórnvalda. Sjá bls. 3 Skreið Fjögur hundruð miljónir tapaðar í skýrslu skreiðarnefndar sem forsætisráðuneytið hefur nú gert opinbera kemur fram að liðlega helmingur af útistandandi kröf- um skreiðarframleiðenda í Níg- eríu er nú taldinn tapaður. Sam- tals eru þetta körfur upp á 44o miljónir króna af 86o miljóna króna heildarkröfum. Sem lausn á þessum vanda er lagt til að Seðlabankinn kaupi skuldabréf af Nígeríustjórn fyrir 4 miljónir dollara en bréf þessi, sem eru til 22ja ára, fást nú fyrirá 20% af nafnverði. Mismunurinn, 16 miljónir dollara, fari í að hjálpa skreiðarframleiðendum. Sjá bls. 3 „Ég á mér draum“ 20 ár frá morði Martins Luthers Kings Á mánudag voru liðin rétt 20 ár frá því bandaríski blökkumanna- leiðtoginn Martin Luther King var myrtur í Memfisborg. Víða í Bandaríkjunum minntust menn sorglegs aldurtila þessa friðsama en viljasterka mannvinar. Sjá bls.13.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.