Þjóðviljinn - 06.04.1988, Blaðsíða 7
Borðtennis
Tómas
tapaði
17 ára piltur stjarna
íslandsmótsins
íslandsmótið í borðtennis 1988
var haldið nú um páskana og
vakti mesta athygli að Tómas
Guðjónsson varð ekki sigurveg-
ari í meistaraflokki karla eins og
búist hafði verið við. Tómas, sem
hefur orðið íslandsmeistari alls 9
sinnum, tapaði í úrslitaleik gegn
17 ára pilti, Kjartani Briem, en
þeir eru báðir úr KR.
Kjartan lét sér ekki nægja að
vinna sigur í einliðaleik heldur
vann hann einnig í tvíliðaleik
ásamt Valdimar Hannessyni KR,
og varð að auki annar í tvenndar-
keppni með Lilju Benónýsdóttur
UMSB.
KR-ingar urðu sigursælastir á
mótinu en úrslit urðu annars
þessi:
Meistaraflokkur karla:
1. Kjartan Briem KR
2. Tómas Guðjónsson KR
3. -4. Kristján Jónasson Víkingi
Jóhannes Hauksson KR
Meistaraflokkur kvenna:
1. Ragnhildur Sigurðardóttir
UMSB
2. Elín Eva Grímsdóttir KR
3. Fjóla María Lárusdóttir
UMSB
1. flokkur karla:
1. Halldór Björnsson Víkingi
2. Haraldur Kristinsson Erninum
3. -4. Ragnar Ragnarss.
Erninum
Davíð Pálsson Erninum
íslendingar unnu annan landsleik við Japani í gærkveldi með 29 mörkum gegn 25. Hér sjáum við
landsliðsfyrirliðann Þorgils Óttar Mathiesen, sem var besti maður íslenska liðsins, í kröppum dansi. Allt um leikinn á bls. 8
1. flokkur kvenna:
1. Hjördís Þorkelsdóttir Víkingi
2. Lilja Benónýsdóttir UMSB
3. -4. Auður Þorláksdóttir KR
Hrefna Halldórsdóttir Víkingi
2. flokkur karla:
1. Hrafn Árnason KR
2. Páll Kristinsson KR
3. -4. Pétur Kristj. Stjörnunni
Benedikt Halld. Stjörnunni
Tvfliðaleikur karla:
1. Kjartan Briem KR
Valdimar Hannesson KR
2. Jóhannes Hauksson KR
Örn Fransson KR
3. -4. Kristján Jónasson Víkingi
Bjarni Bjarnason Víkingi
Ragnar Ragnarsson Erninum
Ólafur Ólafsson Erninum
Tvíliðaleikur kvenna:
1. Elísabet Ólafsdóttir KR
Elín Eva Grímsdóttir KR
2. Auður Þorláksdóttir KR
Berglind Sigurjósdóttir KR
3. Fjóla María Lárusd.
UMSB
Ragnhildur Sigurðard.
UMSB
Tvenndarkeppni:
1. Ragnhildur Sigurðard.
UMSB
Jóhannes Hauksson KR
2. Lilja Benónýsdóttir UMSB
Kjartan Briem KR
3. -4. Fjóla María Lárusd.
UMSB
Bjarni Bjarnason Víkingi
Anna Þórðardóttir KR
Kristinn Már Emilsson KR
-þóm
Handbolti
Auðvelt í Eyjum
Fyrsti landsleikur af þremur
milli íslendinga og Japana í hand-
bolta fór fram í Vestmannaeyjum
annan í páskum. Leikurinn ein-
kenndist aðallega af glötuðum
tækifærum framan af.
Islendingar fóru þó með sigur
af hólmi 25-21 eftir að staðan í
hálfleik var 11-8 íslendingum í
vil.
Mörk íslendinga: Júlíus Jónasson
5/4, Sigurður Gunnarsson 4, Atli
Hilmarsson 4, Karl Þráinsson 3,
Stefán Kristjánsson 2, Guð-
rnundur Guðmundsson 2, Þorgils
Óttar Mathiesen 2, Geir Sveins-
son 1, Bjarki Sigurðsson
Markahæstir Japana: Tamam-
ura 6, Shinichi 4, Miyasita 4.
Fótbolti
Meistaraheppni
á „mothinni“
Fyrsti stórleikurinn í Reykja-
víkurmótinu í knattspyrnu fór
fram á “mottunni“ á mánudags-
kvöld. Þá leiddu saman hesta sína
Reykjavíkurmeistararnir Valur
og Víkingar og áttu þeir síðar-
nefndu alla möguleika á að ná for-
ystu í fyrri hálfleik en allt kom
fyrir ekki.
Þvert á móti náðu Valsmenn
forystu í fyrri hálfleik með marki
Bergþórs Magnússonar. Það
reyndist svo eina mark leiksins og
sigruðu því Valsmenn 1-0.
Umsjón: Þorfinnur Ómarsson og Stefán Stefánsson
Miðvikudagur 6. aprtl 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7