Þjóðviljinn - 06.04.1988, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 06.04.1988, Blaðsíða 15
raunvísindum við Háskólann. Tillögur nefndarinnar urðu grundvöllur að stofnun Raunvís- indastofnunar og Þorbjörn var skipaður formaður bygginga- nefndar hinnar nýju stofnunar. Pegar Raunvísindastofnun var risin fluttust verkefni Eðlisfræði- stofnunar til Raunvísindastofn- unar og Porbjörn varð forstöðu- maður Eðlisfræðistofu. Þessi þróun frá nærri tækja- lausu þröngu húsnæði 1958 til nýrrar reisulegrar byggingar Raunvísindastofnunar 1966, sem fylltist á næstu árum af nýtísku- legum rannsóknatækjum, gekk svo hratt og þó undra átakalaust að við, sem unnum að rannsóknunum, skynjuðum vart þá miklu byltingu, sem gekk þarna yfir. Hins vegar duldist það okkur ekki hve mikinn þátt Þor- björn átti í þessu brautryðjenda- starfi, enda þótt hann segði ávallt sjálfur, að hann hefði aðeins ver- ið svo heppinn að lenda í frjóu samstarfi við ýmsa innan og utan skólans, sem vildu efla þar rann- sóknir í raunvísindum. Hlut Þor- björns sáum við daglega, sem unnum undir stjórn hans. Hann var ávallt vakandi fyrir nýjum möguleikum, studdi og örvaði alla þá, sem með honum unnu, og sjálfurvann hann tvöfalt verk, oft við hin erfiðustu skilyrði. Hinn góði árangur náðist m.a. af því hve fundvís hann var á einfaldar lausnir, og vegna þolinmæði hans, þrautseigju og ósérhlífni. Aldrei heyrðist hann kvarta undan aðstöðuleysi heldur snéri hann sér ótrauður að því að leysa hvern vanda, en með lausninni lagði hann jafnframt grundvöll að bættri aðstöðu. Þorbjörn lagði grundvöll að rannsóknum í eðlisfræði og jarð- eðlisfræði við Háskólann, en þessar rannsóknir urðu síðan hvatning til að efla fleiri greinar raunvísinda við Háskólann. Sá hópur er orðinn stór, sem nú nýt- ur þessa brautryðjandastarfs Þor- björns beint og óbeint. Af þess- um hópi á ég trúlega Þorbirni mest að þakka. Nærri fjórir ára- tugir eru liðnir frá því ég heim- sótti Þorbjörn og Þórdfsi í lítið hús þeirra í Sogamýrinni. Ég hafði þá nýlokið fyrrihlutaprófi í verkfræði, en síðasta námsárið hafði hugur minn hneigst æ meira að eðlisfræði og nú vildi ég leita ráða hjá Þorbirni. Eftir heim- sóknina var ég ekki í vafa. Átta árum síðar réðist ég til nýstofn- aðrar rannsóknastofu undir stjórn Þorbjörns. Það var ómetanleg reynsla að starfa þar. Þorbjörn hafði sívakandi áhuga fyrir hverju verkefni og lausn fékkst á mörgum vandamálum við að ræða þau við hann. Þá eru mér minnisstæð árleg ferðalög starfsmanna stofnunarinnar þar sem Þorbjörn, Þórdís og drengir þeirra áttu mikinn þátt í að gera férðalögin svo skemmtileg að ávallt var hlakkað til þeirra. Ég kveð Þorbjörn með djúpum söknuði og þakklæti fyrir langt samstarf og votta Þórdísi konu hans, sonum hans, móður og öðr- um aðstandendum samúð mína og hluttekningu. Páll Theodórsson ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 Gugge Hedrenius á Hótel íslandi Um síðustu mánaðamót hélt stórsveit sænska píanistans, tón- skáldsins og hljómsveitarstjórans vestur um haf í mikla tónleikaför um þver og endilöng Bandaríkin. Með aðstoð Gunnars Reynis Sveinssonar tónskálds og góðvin- ar Gugga tókst að fá hljóm- sveitina til að fljúga vestur með Flugleiðum í stað SAS og gera stuttan stans á íslandi og leika á Hótel íslandi fimmtudaginn 7. apríl. Hljómsveit Gugga er ein af helstu stórsveitum Evrópu og hefur starfað síðan 1971. Meðal þeirra er leikið hafa í hljómsveit Gugga má nefna Janne Schaffer, Pétur Östlund, Hank Crawford og Mel Lewis og svo liðið sem skipar hana í þessari miklu ferð: WillieCook, RolfEricson, Bosse Broberg og Thomas Driving, trompeta; Ulf Johansen, Dicken Hedrenius og Lennart Löggren, básúnur. Brent Rosengren, John Högman, Wage Finer og Haaka- an Levin, saxafóna. Gugge He- drenius píanó, Lasse Lundström bassa, Mans Ekman trommur og Claes Janson söngur. Willie Cook er í hópi þekktari djasstrompetleikara. Hann lék m.a. með hljómsveitum Jay McShann, Earl Hines og Dizzy Gillespie áður en hann réðist til Duke Ellingtons en með honum hljóðritaði hann marga þekkta einleikskafla. Rolf Ericson er einn af þekkt- ustu djassleikurum Svía. Hann bjó lengi í Bandaríkjunum og lék þar með Stan Kenton, Woody Herman, Buddy Rich, Quincy Jones, Gerry Mulligan og Char- les Mingus áður en hann réðist til Duke Ellington, en með honum lék hann af og til frá 1963. Hin síðari ár hefur hann verið búsett- ur í Vestur-Berlín. Brent Rosengren hefur m.a. leikið með George Russel og Palle Mikkelborg og hljóðritað þekktar hljómplötur með Horace Parlan og Doug Raney. Hann er í hópi fremstu tenórsaxófón- leikara Evrópu. Hljómsveit Gugga leikur sving af bestu sort. Auk ópusa Gugga eru verk Ellingtons og Basie ofar- lega á efnisskránni og Claes Jans- son syngur á stundum Aleksand- ers Ragtime Band. Það er ekkert að því að láta sveifluna heilla sig í eina kvöld- stund með Gugga og vera í anda í Savoydanshöllinni í Harlem á ár- unum milli stríða. Fjölmiðlanámskeið að hefjast Fjölmiðlanámskeið Tóm- stundaskólans verður haldið í annað sinn á þessu vori og hefjast fimmtudaginn 7. apríl. Námið skiptist í tvo hluta, kjarna þar sem kennd verða undirstöðuatr- iði og síðari hluta þar sem þátt- takendur skiptast í hópa eftir áhugasviðum, þ.e. útvarp, sjón- varp og blöð og tímarit. Áhersla er lögð á verklega kennslu undir stjórn fjölmiðla- fólks með mikla reynslu og fá nemendur tækifæri til að vinna verkefni hver á sínu sviði í síðari hlutanum. Námskeiðið er ætlað þeim, sem hafa hug á að vinna við eða fyrir fjölmiðla eða eru nýlið- ar og þurfa þátttakendur að hafa gott vald á íslensku. Til að ne- mendur hafi sem mest gagn af námskeiðinu er fjöldi takmark- aður við 27 eða 9 í hverjum hópi. Kennt verður þrisvar í viku, tvö kvöld og laugardaga, til 28. maí, alls 104 kennslustundir. Kennarar á námskeiðinu verða í sjónvarpshópi Sigrún Stefáns- dóttir og Sveinn Sveinsson, í út- varpshópi Stefán Jökulsson og í blaðahópi Vilborg Harðardóttir, sem jafnframt stjórnar nám- skeiðinu. Auk þeirra verður fengið starfandi fjölmiðlafólk til kennslu í einstökum atriðum hjá hópunum og nemendur fá tæki- færi til að kynnast starfsemi helstu fjölmiðla. Fjölmiðlanámskeið Tóm- stundaskólans var haldið í fyrsta sinn 1987 og komust þá færri að en vildu. í ljósi reynslunnar af því hafa verið gerðar smábreytingar, kjarninn styttur, hópkennsian lengd og meiri áhersla lögð á vinnslu verkefna. Innritun á námskeiðið fer fram hjá Tómstundaskólanum, Skóla- vörðustíg 28, þar sem einnig eru gefnar nánari upplýsingar. Opnar verðbréfamarkað Útvegsbanki íslands hf. hefur opnað verðbréfamarkað sem verður rekinn sem sjálfstæð ein- ing. Verðbréfamarkaður Útvegs- bankans er til húsa í Síðumúla 23. Á Verðbréfamarkaði Útvegs- bankans verða á boðstólum allar gerðir verðbréfa auk hinna vin- sælu Veðdeildarbréfa Útvegs- bankans. Bréf þessi eru seld með afföll- um þannig að vextir eru greiddir fyrirfram, en bréfin eru gefin út á nafnverði sem verður greitt á gjalddaga auk vísitöluhækkunar. Einnig mun Verðbréfamark- aðurinn hafa á boðstólum svo- kallaðan Fjárfestingareikning sem er fjárvörslureikningur með margvíslegri þjónustu. Sem dæmi má nefna fjárfestingastjórnun, þ.e. kaup og sölu á verðbréfum í umboði viðskiptavinar, inn- heimtuþjónusta á verðbréfum og kaupsamningum auk ráðstöfun innborgana jafnóðum og þær berast. Einnig verður eigendum Fjárf- estingareikninga boðin greiðslu- þjónusta þar sem greiddir verða reikningar þeirra og svokölluð sparnaðarþjónusta sem veitir viðskiptavinum aðstoð við söfn- un fjármuna með reglubundnum sparnaði. Hjá Verðbréfamarkaði Út- vegsbankans verður bráðlega stofnaður Verðbréfasjóður. Verðbréfasjóðurinn mun gera sparifjáreigendum kleift að festa fé sitt í mörgum gerðum verð- bréfa í einu, auk þess sem ávöx- tun er mun hærri en með hefð- bundnum verðbréfum. Forstöðumaður markaðarins er Friðrik St. Halldórsson. Sjúkraþjálfari í Grindavík búa um 2000 manns sem núna eru án sjúkraþjálfara. Sjálfstæður atvinnurekstur Höfum mjög góöa aðstöðu með fullkomnum nýj- um tækjum sem leigjast út til þeirra sem hefja vilja sjálfstæðan atvinnurekstur, gegn sann- gjörnu gjaldi. Góðir tekjumöguleikar Það tekur 40 mínútur að aka frá miðbæ Reykja- víkur til Grindavíkur. Vinna eins og hver vill Upplýsingar eru gefnar á Heilsugæslustöðinni, sími 92-68021 og hjá heilsugæslulækni, sími 92- 68766. Grindavíkurbær Verkamannafélagið Dagsbrun Aðalfundur Aðalfundur Dagsbrúnar verður haldinn miðviku- daginn 13. apríl kl. 20.30 í Átthagasal Hótels Sögu. Endurskoðaðir reikningar liggja frammi á skrif- stofu félagsins. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Kaffiveitingar Félagar fjölmennið Stjórn Dagsbrúnar Allir eiga að vera í beltum hvar sem þeir sitja í bílnum! yUMFERÐAR RÁO Framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits á Austurlandi Auglýst er til umsóknar staða framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits á Austurlandi. Jafnframt skal framkvæmdastjórinn gegna hlutverki heilbrigðis- fulltrúa á Neskaupstað, Eskifirði, Reyðarfirði, Fljótsdalshéraði og Borgarfirði eystra. Aðsetur- staður Reyðarfjörður. Umsóknarfrestur er til 1. maí 1988. Frekari upplýsingar gefur formaður svæðis- nefndar Stefán Þórarinsson í síma 97-11400. Útför Gunnars M. Magnúss rithöfundar fer fram frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 7. apríl kl. 15.00. Blóm og kransar afþökkuð, en þeir sem vilja minnast hans láti Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi, njóta þess. Fyrir hönd ættingja Magnús Gunnarsson Málfríður Óskarsdóttir Gunnsteinn Gunnarsson Agnes Engilbertsdóttir Oddný Sigurðardóttir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.