Þjóðviljinn - 06.04.1988, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 06.04.1988, Blaðsíða 2
FRETTIR Efnahagsmál Verðbólgan á fullu Ólafur Ragnar Grímsson: Verðbólga hér rúmlega 8sinnum meiri en íhelstu viðskiptalöndum. Ávísun á keðjuverkandi gengisfellingu. Ekkiunntað kenna samningum launamanna um að allt er farið úr böndunum Samkvæmt endurskoðaðri þjóðhagsspá er reiknað með að verðbólga hér á landi verði 25% á yfirstandandi ári. Reiknað er með að verðbólga í OECD- löndunum, þeim löndum sem eiga aðild að Efnahags- og framfara- stofnun Evrópu, en þau eru okkar helstu viðskiptalönd, verði á sama tíma ekki nema um 3%. Eitt af einkennum á efnahagsstjórn núverandi og síðustu ríkisstjórn- ar hefur verið sú staðreynd að verðbólgan hér hefur verið mörg- um sinni meiri en í viðskipta- löndum okkar. „Lykilatriði í yfirlýsingum um efnahagsmál hjá núverandi ríkis- Heilbrigðisnefndin telur að það hafi komið fram raunhæf áætlun um úrbætur á mjólkur- stöðinni, svo að mjólkin fullnægi ýtrustu kröfum, sagði Alfreð Schiöth, heilbrigðisfulltrúi Norð- urlands eystra í samtali við Þjóð- viljann, en í blaðinu á skírdag var grcint frá því að heilsugæslu- læknirinn á Þórshöfn hefði farið þess á leit við Hollustuvernd ríkis- ins að mjólkurstöðinni yrði lok- að, þar til aðkallandi lagfæringar hefðu farið fram á stöðinni og Þórshafnarbúar fengju boðlega stjórn Þorsteins Pálssonar og einnig hjá þeirri síðustu, ríkis- stjórn Steingríms Hermanns- sonar, var að verðbólgunni skyldi náð niður á sambærilegt stig og í helstu viðskiptalöndum okkar,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson þegar Þjóðviljinn ræddi við hann í gær um nýja verðlagsspá Þjóð- hagsstofnunar. „Slík stefna er skynsamlegt markmið og hún er forsenda þess að takast megi að halda gengi íslensku krónunnar stöðugu. Isjálfu sér er það ekki verðbólgustigið hér, sem eitt ræður öllu í þessum efnum, held- ur munurinn á verðbólgunni hér og í viðskiptalöndum okkar. Ef mjólk til drykkjar. Alfreð sagði að 29. mars, degi áður en ákveöið hafði verið að loka stöðinni, hefði komið fram áætlun til fjögurra mánaða um úrbætur á mjólkurstöðinni. Mjólkurfræðingur hefur þegar verið ráðinn til að hafa eftirlit með framleiðslunni og sýni verða send á rannsóknarstofu þá daga sem mjólk er tappað á fernur. - Að svo komnu var nefndinni ekki stætt á öðru en að veita áframhaldandi leyfi að sinni, en það er Hollustuverndarinnar að verðbólga er þar lítil en mikil hér, þá verður gengisfelling íslensku krónunnar óhjákvæmileg af- Ieiðing.“ „Samkvæmt upplýsingum, sem ég hef aflað mér hjá Þjóðhags- stofnun," sagði Ólafur Ragnar, „er Ijóst að árið 1988 verður hrikalegt ósamræmi milli stefnu- miða stjórnarinnar annars vegar og veruleikans hins vegar. Sam- kvæmt spá Þjóðhagsstofnunar og hagstofnana OECD verður verð- bólga á íslandi rúmlega 8 sinnum meiri en í helstu viðskiptalöndum okkar. Til samanburðar er fróðlegt að skoða önnur tímabil. Árin 1973 - 1979 var munurinn á verðbólgu hér og í öðrum OECD-ríkjum einungis fjórfaldur, eða um helmingi minni en nú er. Á tíma- bilinu 1979-1985, sem löngum hefur verið talið eitt mesta verð- bólguskeiðið hér, þá var munur- inn þó „ekki nema“ rúmlega sex- faldur. Árið 1986 var verðbólga hér um 9 sinnum meiri en í öðrum OECD-löndum en þá var verð- ákveða hvort þetta eftirlit dugi til bráðabirgða og veita stöðinni frekari undanþágu, sagði Alfreð. - Það má til sanns vegar færa að ástand mjólkurstöðvarinnar á Þórshöfn hafi verið hvað verst. Þessi stöð er nokkuð langt frá því að uppfylla þær kröfur sem gerð- ar eru til framleiðslu mjólkur og mjólkurafurða, sagði Halldór Runólfsson, deildardýralæknir hjá Hollustuvernd ríkisins, en hann gerði úttekt árið 1986 á ásig- komulagi allra mjólkurstöðva á landinu. bólga þar einstaklega lág. Á ný- liðnu ári var munurinn sexfaldur, enda framkallaði hann óhjá- kvæmilega gengisbreytingar. Enn meiri munur á okkur og við- skiptalöndum okkar hlýtur að skapa enn meiri óstöðugleika gagnvart genginu. Þessar tölur sýna að efnahags- stjórnin hefur algjörlega farið úr böndunum. fsland og Tyrkland eru í sérflokki í hópi verstrænna ríkja hvað snertir lélegan árangur í baráttunni við verðbólguna. Þessi mistök verða ekki, eins og menn vildu gera hér áður fyrr, skrifuð á óhóflegar kauphækkan- ir. í kjarasamningunum í des- ember 1986 og eins nú að undan- förnu eru kauphækkunartölur langt undir eðlilegum mörkum, enda er það kallað svo af atvinnu- rekendum og ríkisvaldinu að nú hafi verið gerðir „skynsamlegir" kjarasamningar. Það er ljóst að óhóflegar er- lendar lántökur, ríkisfjármálin og skortur á fjárfestingarstjórn eru meginorsakir þessarar miklu og nýju verðbólguþróunar." Halldór sagði að það væri ó- gerningur að alhæfa um ástand í mjólkurstöðvum í dag, þar sem nokkuð væri um liðið síðan út- tektin var gerð. — Það eru reyndar til stöðvar sem eru litlu betur settar en stöðin á Þórshöfn. Víðast hvar eru þessi mál þó í góðu lagi, sagði Halldór, en benti á að vissum erfiðleikum væri bundið fyrir smæstu stöðvarnar að uppfylla hin ströngu skilyrði sem gerð væru til mjólkurfram- leiðslu. -rk Kennarar Verkfallið ólögmætt Félagsdómur ógildir verkfallsboðun KÍ Boðað verkfall Kennarasam- bands íslands, sem taka átti gildi n.k. mánudag, var í gær dæmt ólöglegt í Félagsdómi. Dómurinn úrskurðaði að verk- fallið væri ólöglega boðað þar sem í allsherjaratkvæðagreiðslu kennara hefði verið kosið um hei- mild til verkfallsboðunar en ekki verkfallsboðunina sjálfa. Fulltrúaráð KÍ hefur verið boðað til fundar í dag þar sem ákveðið verður um framhald málsins en enn hefur ekki verið boðaður nýr sáttafundur með samninganefnd ríkisins. Svínapest Ekki útilokað á fleiri búum Stórt bú á Kjalarnesi í einangrun Svínapest hefur gert vart við sig á stóru svínabúi á Kjalarnesi og hafa nokkur svín þegar drcp- ist. Búið er nú í einangrun. Páll A. Pálsson yfirdýralæknir á Keld- um segir að ekki sé hægt að úti- loka að pestin hafi stungið sér niður á flciri búum en því sem sett hefur verið í einangrun en öruggt er að ekkert sýkt kjöt hefur kom- ist á markað. Veikinnar varð vart rétt fyrir páska og segir Páll að þótt ekki sé endanlega búið að staðfesta að um svínapest sé að ræða bendi allt til að svo sé. Mönnum stafar engin hætta af sjúkdómnum en hann leggst þungt á svín. Aðspurður um með hvaða hætti þessi sjúkdómur gæti hafa borist í búið, sagði Páll að um nokkrar leiðir væri að ræða en ekki hefði átt sér stað flutningur á sýktum dýrum í búið. Fólk getur borið sjúkdóminn með sér og einnig getur hann borist með ma- tvælum. Hægt er að bólusetja gegn út- breiðslu sjúkdómsins og nú er verið að kanna hve útbreiddur hann er á fyrrgreindu búi. - Það er ljóst að þetta er mikið áfall fyrir eigendur búsins, sagði Páll A. Pálsson. Svínapestar varð síðast vart hér á landi uppúr 1950 en hingað barst hún með bandaríska hern- um á stríðsárunum. -FRI Páskahelgi Tvö banaslys Tvö banaslys urðu á hálendinu um páskahclgina og margra var leitað víða á landinu. Níu ára drengur úr Kópavogi, Vilhjálmur Birgisson, fórst er jeppi sem hann var farþegi í féll ofan í gilskorning f Fitjahnjúkum í Snæfelli norð- austur af Vatnajökli. Faðir drengsins og annar maður sem voru f jeppanum slösuðust mikið og liggja nú þungt haldnir á Borg- arspítalanum. A föstudaginn langa varð banaslys upp af Grjótadal í Skagafirði er 22 ára gamall mað- ur ók snjósleða sínum fram af þverhnípi með þeim afleiðingum að hann lést samstundis. Maður- inn hét Ásgeir Bentsson, búsett- ur á Sauðárkrók. -FRI Munurinn á verðbólgu á íslandi og í helstu viðskiptalöndum (OECD-löndum): , .. Island/ ísland OECD OECD 1973-1979:.................40,5% 10,0% 4,0 1979-1985:.................50,6% 7,6% 6,7 1986:......................23,0% 2,5% 9,2 1987:......................18,5% 3,3% 5,6 1988 (spá);................25,0% 3,0% 8,3 Bifreiðatryggingagjöld Þungbært fyrir öryrkja Theodór Jónsson Sjálfsbjörg: Erfitt fyrir marga. Bifreiðar ómissandifarartæki Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, ætlar að fara fram á það við heilbrigðisráðhcrra að upp- bót á elli- og örorkustyrk vegna reksturs bifreiða vcrði hækkuð til að mæta stórhækkun á trygginga- iðgjöldum bifreiða, sem hafa komið mjög illa við marga ör- yrkja. - Þessi mál eru mikið rædd hjá okkar fólki því þessi hækkun hef- ur komið mjög illa við marga sem treysta á að hafa bíl og komast þannig ferða sinna, sagði Theo- dór Jónsson, formaður Sjálfs- bjargar, í samtali við Þjóðvilj- ann. Örorkubætur, full tekjutryg- ging og heimilisuppbót fyrir ein- stakling gera tæpar 30 þús. krón- ur í framfærslueyri á mánuði. Al- mennar tryggingagreiðslur fyrir bifreiðar eru hins vegar um 50-60 þús. krónur með kaskóábyrð, svo tvenn heil mánaðarlaun öryrkja fara í bílatryggingarnar einar. - Það er erfitt að kljúfa þessar greiðslur, því við þurfum líka að lifa, en bíllinn er mér algjör nauð- syn og því er ég búinn að gera upp mínar tryggingar, sagði Gunnar Sigurjónsson öryrki sem býr í Há- túninu, í samtali við Þjóðviljann í gær. - Bíllinn er mér allt, svo það þýðir lítið annað en að borga. -Ig- Verð að borga, bíllinn er mér allt, segir Gunnar Sigurjónsson. Mynd. E.ÓI. Mjólkurstöðin Pórshöfn Fjögurra mánaða gálgafrestur Halldór Runólfsson, Hollustuvernd ríkisins: Stöðin langt frá þvíað uppfylla settskilyrði. Alfreð Schiöth heilbrigðisfulltrúi: Mest um vert að gallarnir verði lagfœrðir. Ekki markmið ísjálfu sér að stöðinni verði lokað 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 6. apríl 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.