Þjóðviljinn - 29.04.1988, Blaðsíða 1
Föstudagur 29. apríl 1988 96. tölublað 53. örgangur.
J Miðlunartillagan
Oánægja og reiði
Geysifjölmennirfundirhjáverslunarmönnum. Tillaga sáttasemjara mœtir mikilli andstöðu, tvísýntum úrslit. Sífelltfleiri
atvinnurekendursemja um 42 þúsund króna lágmarkslaun. Atök á Keflavíkurflugvelli
Fjölmennir kynningarfundir
voru haldnir í gær hjá félögum
verslunar- og skrifstofufólks um
miðlunartillögu ríkissáttasemj-
ara og samkvæmt viðbrögðum
fundarmanna um allt land við
henni má allt eins búast við að
hún verði felld í atkvæðagreiðslu
í dag og á morgun. Niðurstöðu úr
henni er að vænta annað kvöld.
Mikill fjöldi kaupmanna og
smærri atvinnurekenda á höfuð-
borgarsvæðinu, á Akureyri og á
Selfossi hefur hlaupist undan
merkjum og samið milliliðalaust
við viðkomandi félög verslunar-
manna um 42 þúsund króna lág-
markslaun. Búast má við að enn
fleiri kaupmenn fylgi í kjölfarið í
dag.
Formaður Kaupmannasam-
takanna á Akureyri segir að
hjörðin hjá sér sé farin að riðlast
og þetta veiki samstöðu samtak-
anna gegn launþegum. Fram-
kvæmdastjóri VSI segir hinsveg-
ar að þessir samningar breyti
engu um afstöðu vinnuveitenda í
deilu þeirra við verslunarmenn.
Hörð átök voru á Keflavíkur-
flugvelli í gærmorgun þegar verk-
fallsverðir komu í veg fyrir af-
greiðslu farþega Flugleiða og
Arnarflugs. VSÍ hefur skrifað
Verslunarmannafélagi Suður-
nesja bréf þar sem félagið er gert
bótaskylt fyrir öllu því tjóni sem
félögin telja sig hafa orðið fyrir
vegna verkfallsins.
Sjá síðu 2
Miðlunartillaga ríkissáttasemjara vakti litla hrifningu meðal hinna fjölmörgu félaga VR sem hlýddu á formann félagsins kynna hana í gær.
Hiðsamavaruppiáteningnumhjáöðrumfélögumverslunarmannaút um land allt. Mynd: Sig.
Alþingi
Framsóknatiingmenn
treysta stjómiimi
Hörð gagnrýni stjórnarandstöðu í van-
traustsumrœðum. Atkvœðagreiðsla eftir
bókinni en Óli Þ. með sér-bókun
Eins og búist hafði verið við var
vantrausttillagan á alþingi í gær-
kvöldi felld með atkvæðum
stjórnarflokkanna gegn at-
kvæðum stjórnarandstöðunnar
og studdu allir þingmenn Fram-
sóknar stjórnina, Ólafur Þ. Þórð-
arson gerði þó sérstaklega grein
fyrir atkvæði sínu.
Umræðurnar um vantrausttil-
löguna einkenndust af hraðri
gagnrýni stjórnarandstöðu á
stefnu stjórnarinnar, einkum í
efnahagsmálum. En stjórnar-
sinnar vörðu gerðir sínar þótt
þeir viðurkenndu jafnframt að
margt mætti betur fara.
Steingrímur J. Sigfússon Al-
þýðubandalagi hóf umræðurnar
enda fyrsti flutningsmaður til-
lögunnar. í máli hans kom m.a.
fram að góðæri undanfarinna ára
hefði brunnið upp sem eldsneyti í
þeirri hraðkapitalísku tilraun
sem hér væri í gangi undir merkj-
um frjálshyggjunnar.
„Af fullkomnu tillitsleysi gagn-
vart lífskjörum fólks, hagsmun-
um byggðanna, og jafnvel sjálfu
efnahagslegu sjálfstæði landsins
keyra öfgaöflin í Sjálfstæðis-
flokknum dyggilega studd af
frjálshyggjuliðinu í framsókn og
alþýðuflokki hér áfram braut
frjálshyggjunnar eins og ísland
væri tilraunastofa og íslenska
þjóðin tilraunadýr.“ sagði Stein-
grímur.
Sjá síðu 3
ísrael 40 ára
Hvað fór úrskeiðis?
fsraelski rithöfundurinn Henri upp á Gazasvæðinu og vestur-
Zoller íhugar hlutskipti fsraels- bakka Jórdanár og bjóða valds-
manna og stöðu ríkis þeirra á herrunum í Jerúsalem byrginn?
fertugsafmælinu. Hvað fór úr- ---------------
skeiðis? Hví rísa Palestínumenn Sjá bls.8