Þjóðviljinn - 29.04.1988, Side 10
SJÁVARÚTVEGUR
Guðbjartur Jónsson, beitningamaður
Tíu bala menn sjaldséðir
Beitir fyrir StakkavíkÁR107sem gerir útfrá Hafnarfirði. 7-8 menn beitafyrir bátinn ogfá 650 krónur
fyrir balann. Eingöngu er beitt smokkfiski og síld sem þorskurinn er vitlaus í
Stakkavíkin ÁR 107 gerir út
frá Hafnarfirði á línu og hefur
aflað þokkalega á vertíðinni
með því að egna fyrir þann
gula í Breiðafirðinum. Áöng-
ulinn beita beiningamennirnir
í landi smokk og síld, og hefur
þorskurinn verið sólginn í
þessa gómsætu fæðu enda
lítið um æti í Breiðafirðinum,
eins og kunnugter.
Alls eru sjö 'menn um borð í
Stakkavíkinni og átta menn í
landi sem beita. Þjóðviljinn lagði
einn góðan veðurdag leið sína
suður í Hafnarfjörð í beitningar-
skúr Stakkavíkurinnar, þar sem
menn voru í óða önn við að beita.
Þar var Guðbjartur Jónsson
beitningamaður tekinn tali og
hann var fyrst spurður að því
hvað margra bala hver og einn
kláraði yfir daginn.
7-8 balar á mann
- Það er liðin sú tíð að menn
beiti tíu bala á dag eins og áður
var. Nú beita menn þetta 7-8 bala
á dag sem þykir gott. Við fáum
650 krónur fyrir hvern bala og að
auki þurfum við ávallt að vera til
taks þegar báturinn kemur inn til
að taka á móti bölunum og koma
þeim í hús og öfugt; að taka þá út
úr frystiklefanum, þar sem þeir
eru geymdir þegar búið er að
beita í þá.
Byrjum kl. átta
á morgnana
Hvencer hefst vinnudagurinn í
skúrnum?
- Hann hefst klukkan átta á
morgnana að öllu jöfnu og menn
eru búnir með skammtinn sinn
um miðjan dag. Það fer þó eftir
hraða hvers og eins og einnig fer
það eftirástandi línunnar. Stund-
um getur verið mikill flóki í bal-
anum og það tefur dálítið fyrir
þegar maður þarf að greiða úr
flækjunni og að hnýta nýja öngla
á hana ef á vantar. Ennfremur
þarf hver maður að skera sjálfur
sína beitu og allt þetta tekur að
sjálfsögðu sinn tíma.
Beitum smokk
og síld
Þið beitið eingöngu smokk og
síld. Hafið þið ekki prófað að beita
kúfiski?
- Það hefur farið heldur lítið
fyrir kúfiski hér hjá okkur, held-
ur erum við svo til eingöngu með
smokkfisk og síid fyrir þann gula
sem hefur gefist all þokkalega
hingað til. Þó hefur maður heyrt
það hjá þeim sem hafa beitt kúf-
iski að hann sé góður og gefist
vel. En á meðan þorskurinn fúls-
ar ekki við okkar beitu sjáum við
ekki ástæðu til að skipta yfir hvað
sem síðar kann að verða.
Fiskurinn sem Stakkavíkin
hefur fengið hefur verið góður
það sem af er, en þeir róa alla leið
vestur á Breiðafjörð sem mörg-
um finnst vera dágóður spotti að
sigla. Það hefur gefist vel að
renna fyrir þann gula vestur á
Jökuldýpi og þar hefur fengist
góður afli.
cn er
HITABLASARI
Bensín og gasolíuhitablásarar, 12 og 24 volt, fyrir báta, bíla og vinnuvélar. Varahlutir og viðgerðarþjónusta.
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI VIÐGERÐARÞJÓNUSTA
I. Erlingsson h/f, varahlutir, Ármúla 36 (Selmúlamegin),isími 688843. Viðgerðarverkstæði TURBÓ s/f. é
íi RAFBRU SF. Helgi Sigurjónsson Helgaiandi 1, Mosfellssveit
91-667073
Síldarvinnslan hf.
Neskaupstað - Sími 97-71500
Starfrækjum:
Frystihús
Saltfisk- og
skreidarverkun
Síldarsöltun
bræðslu og reykingu
Vélsmiðju
bflaverkstæði og
dráttarbraut.
Gerum út
eftirtalin skip:
B/V Birtingur
NK 119
B/V Barði NK 120
B/V Bjartur NK 121
M/B Börkur NK 122
M/B Beitir NK 123
Kann vel við
mig í skúrnum
Að lokum Guðbjartur. Er alltaf
jafn gaman að beita og er góður
vinnuandi meðal beitningamanna
í dag sem endranœr?
- Já, það er gaman að vinna
hérna þó svo að við fyrstu sýn sé
vinnustaðurinn ekki með þeim
þrifalegustu sem finnast hér á
landi, en það fylgir beitninga-
skúrunum ákveðinn stemmning
sem gerir þá sérstaka að mínum
dómi. Hver hún nákvæmlega er
þessi stemmning er erfitt kannski
að lýsa í stuttu máli, en hér ráða
menn nokkurn veginn sínum
vinnutíma að því tilskildu að þeir
verða að vera búnir með
skammtinn sinn áður en báturinn
kemur að landi.
Strákarnir hérna eru heldur
ekkert að skafa utan af hlutunum
þegar þeim liggur eitthvað á
hjarta og einnig, eins og flestir
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN