Þjóðviljinn - 12.06.1988, Qupperneq 2
r’
I rósa-
garðinum
BÖLVUN
STÉTTAÞJÓÐ-
FÉLAGSINS
Alkóhólistar úr lágstéttum verða
utangarðsmenn, alkóhólistarúr
millistéttum eiga á hættu að
missa atvinnuna, en yfirstéttar-
drykkjumenn halda drykkju sinni
ótruflaðiráfram.
DV
MÁ TREYSTA ÞVÍ?
Lofað3% gengisfellingu.
Þjóðviljinn
HENTU MÖMMU
AF LESTINNI
Danny hefur alltaf átt einstaklega
gott samband við móður sína
sem komin er á níræðisaldur, og
þess vegna segist hann geta
leikið í mynd sem fjallar um móð-
urmorö.
Tíminn
SÁDAN ER
KAPITALISMEN
M A G A M Á L
Hálftkílóáhundraðkall. Sæmilegbúbótþað, þarsemdrýgjamákjötogfiskumallanhelmingmeðdoufuinu. Eöa bara malla það eins og það
kemur fyrir af skepnunni. Olga Olgeirsdóttir mundar varninginn fyrir Ijósmyndarann. Mynd: E.Ol.
Doufu til höfuðs
matarskattinum
Kínverska eggjahvítusprengjan sem helstminnir á ábrystirfcestnú
iíka hérá lanái. Meinholltog hundóáýrt
Við höfum reynt margarfjáröflun-
arleiðir, en það er hvergi friður.
Við reynum þó að standa okkur í
samkeppninni.
Morgunblaðið
VAXTARBRODDUR
FRÆÐIKENN-
INGARINNAR
Flóðhestar allra landa sameinist!
Þjóðviljinn
ÚR ÁLÖGUM
Þegarengilsaxneski poppham-
urinn hrynur af mönnum andar-
tak, þáeru þetta bara góðirog
gegnirlslendingar.
Morgunblaðið
OG EKKERT
MÚÐUR
í læknisfræði skilgreinum við
hugtök eftir ákveðnum reglum.
Malaría er til dæmis malaría, hvar
sem húner.
Morgunblaðið
HINIR DULDU
TÖFRAR
ATVINNUSTJÓRN-
MÁLAMANNA
Er málið allt orðið flókið og snúið,
endamunaði minnstu að
sænska íhaldið og kommarnir
næðu höndum saman að fella
sænsku ríkisstjórnina, en forsæt-
isráðherrann bjargaði í horn með
því að reka dómsmálaráðher-
rann.
Tíminn
Doufu, eins konarsoja-
baunahlaup sem upprunnið
er í Kínaveldi og mata al-
gengast þar um slóðir, er ein-
hver mesta eggjahvítu-
sprengjasem sögurfaraaf.
Þaðan hafa þeir hitann úr
mætti segja; á þessum slóð-
um er mjólkurmatur afar fás-
éður öðrum en kálfum og
smábörnum eins og kunnugt
er, og ef ekki væri fyrir doufuið
er hætt við að kostur Kínverja
væri í meira lagi snauður af
eggjahvítuefnum.
Þetta minnir einna helst á
ábrystir, en er þó talsvert stífara.
Doufuið er gætt þeim eiginleika
að það fer vel með öllum öðrum
mat og því kjörin viðbót í kjöt- og
fiskrétti, súpur og salöt. Éitt og
sér er það heldur bragðdauft en
þó mætavel ætt með vænum
skammti af góðri sojasósu. Það
fer svo eftir smekk hvaðan menn
kjósa hana, en Japanir, Kínverj-
ar og Indónesar hafa löngum þótt
í fremstu röð í sojasósugerð.
Doufu er nú fáanlegt í Reykja-
vík, til að mynda hjá Hag-
kaupum. Þeirra útgáfa kemur frá
Hollandi sýnist manni, og kallast
Tofu eftir gömlu, kínversku
hljóðkerfi, en á íslensku segir
maður Dófú. „Doufu“ er aftur
kórrétt samkvæmt kínverskri
samtímaréttritun, og því er sú út-
gáfa orðsins í heiðri höfð í þess-
um pistli.
Hollenska pakkningin er hand-
hæg og á henni eru þartilgerðar
notkunardagsetningar og því
sjáifsagt fyrir allt nýjungagjarnt,
hagsýnt og hollustumeðvitað
matargerðarfólk að prófa. Þetta
með hagsýnina þarfnast kannski
skýringar en hún er sú að hálft
kíló af þessum ágæta mat kostar
ekki nema 99 krónur í þeirri
verslun sem með hann höndlar og
var nefnd hérna áðan. Doufu
fer vel með fiski, og uppskriftin
sem hér fer á eftir er mjög
auðveld og í rauninni er nóg að
vera læs til að malla sér og sínum
ágætan rétt. Fisktegundin sem
notuð er skiptir ekki öllu máli, en
þó skal mælt með einhverjum
stinnum fiski - gjarnan skötusel
eða lúðu - sem stendur af sér
eldunarskarkið í heilu líki. Ýsu
má notast við, en hún vill detta
soldið í sundur.
Fiskurinn er skorinn í bita, tvo
sentimetra á kant eða svo, en það
er ekki naujið. Einni matskeið af
sojasósunni er bætt út í. Blandið
saman með fingrunum og látið
marínerast svolitla stund.
Þremur matskeiðum af olíunni
er hellt á pönnu og í henni eru
fiskbitarnir steiktir þar til þeir
verða gullnir á litinn. Þá eru þeir
teknir af pönnunni og geymdir,
en þeir eru nú tilbúnir fyrir lok-
amallið.
Takið nú allt annað til; afgan-
gurinn af olíunni er hitaður á
pönnu og púrra, hvítlaukur og
engifer steikt í fáeinar sekúndur.
Fisk- og doufubitunum er nú bætt
út í ásamt salti, sykri, sjerríi, af-
ganginum af sojasósunni, chillis-
ósu, ediki og vatni.
Suðan látin koma upp og síðan
malla herlegheitin við vægan hita
í tíu mínútur. Borið fram eins og
fara gerir, gjarnan með hrís-
grjónum, en áður er steinseljunni
stráð yfir réttinn.
Það er ekki nokkurt mál að
elda þennan doufufisk, en eitt er
þó rétt að hafa í huga, og gildir
það reyndar um kínverska matar-
gerð yfirhöfuð; byrjið endilega á
því að taka til og mæla allt sem við
á að éta. Sykur, salt, soja, sjerrí
og sú blanda öllsömul á að vera
tilbúin í skál áður en byrjað er að
steikja fiskinn. Það er of seint að
vera að gaufa við að mæla þegar
fisk- og doufubitarnir snarka á
pönnunni.
HS
Eitthvað þessu lík á útkoman að verða, en eins og sjá má er bitastærð-
in ekkert sáluhjálparatriði. Verði ykkur að góðu!
Þetta þarf til:
Hálft kíló af fiski
3 matskeiðar sojasósa
olía til steikingar (1/4 bolli)
1 bolli púrrulaukur, fremur smátt saxað
2-3 þunnar sneiðar af engiferrót, smátt saxað
1 hvítlauksrif, pressað
1 teskeiö salt
2 matskeiðar þurrt sjerrí
1 teskeið sykur
1 matskeið chillisósa
2 matskeiðar vínedik
hálfur bolli vatn
söxuð steinselja
doufu, 250 grömm eða svo. Brytjað í teninga, sirka tvo sentimetra á
kant.
2 SfeA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. júnf 1988