Þjóðviljinn - 12.06.1988, Qupperneq 8
Polgar-syslur
á sigurbraut
Helgi Ólafsson skrifar frá Egilsstöðum
Við fyrstu sýn virðast myndirnar vera eins, en vittu hvað gerist ef þú
snýrð blaðinu á haus. Munnur og augu á annarri myndinni hafa verið
klippt út og snúið við, og hið brosleita andlit er orðið að skrímsli. Það
var enskur sálfræðingur, Peter Thompson að nafni, sem datt niður á
þessa brellu. Einhverra hluta vegna lenti mynd af Margréti Thatcher
undir skærunum hjá honum við þetta stúss, og því gengur „uppgötv-
unin“ undir nafninu Thatchervillan. Hluti af skýringunni er talinn vera
sá að formskynjunin hjá fólki ræðst að verulegu leyti af því hvað virðist
vera efst. Efst á tilklipptu myndinni er brosandi munnur, og því finnst
manni svipurinn vingjarnlegur.
HS/lllustreret videnskab
8 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. júní 1988
gjörum undantekningartilvikum,
þótt margir telji að hún eigi raun-
hæfa möguleika á heimsmeistara-
tign kvenna ef hún gæfi sig í slíka
keppni.
Það vakti mikla athygli þegar
FIDE - Alþjóðlega skáksam-
bandið - ákvað að hækka allar
skákkonur á einu bretti um
hundrað ELO-stig, með þeirri
óvæntu undantekningu að Susza
naut þeirrar hækkunar ekki.
Engu að síður er hún ekki langt á
eftir stigahæstu skákkonu heims,
heimsmeistaranum Maju Tsíbur-
danítsje, sem aftur á móti nýtur
stigahækkunarinnar.
Judith Polgar hefur unnið bæði
Sævar Bjarnason og Hannes
Hlífar Stefánsson. Hún vakti
mikla athygli á hraðskákmóti að
afloknu síðasta Reykjavíkur-
skákmóti og lagði þar margan
kappann að velli, meðal annarra
Sovétmennina Polugajevskí og
Gurevítsj. í Ijósi þess að Hannes
Hlífar er heimsmeistari sveina er
sigur Judith yfir honum góður
vitnisburður um styrk hennar.
Karl Þorsteins hefur teflt best
íslendinganna. Hannes Hlífar
Stefánsson og Björgvin Jónsson
geta náð áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli á þessu móti, en tafl-
mennska þeirra hefur valdið
nokkrum vonbrigðum. Mótið
uppfyllir ekki settar kröfur um
stórmeistaraáfanga.
Undirritaður hefur teflt vægast
sagt illa í þremur fyrstu umferð-
unum, en það stendur til bóta.
,Skák mín úr fyrstu umferðinni
fylgir hér á eftir.
Hvítt: Susza Polgar
Svart: Helgi Ólafsson
1. d4 - Rf6
2. c4 - g6
3. f3 - d5
4. cxd5 - Rxd5
5. e4 - Rb6
6. Rc3 - Bg7
7. Be3 - 0-0
8. f4 - Rc6
(Annar möguleiki er 8... - f5
eða có).
9. d5 - Rb8
10. a4 - c6
11. a5 - R6d7
12. RO - cxd5
13. exd5 - Rf6
14. Bc4 - Re8
15.0-0 - Rd6
(Mun sterkara var 15... - Bg4,
og svartur má vel við taflið una).
16. Be2 - Rd7
17. Db3 - Rf5
18. Bf2 - Bxc3
(Þessi uppskipti eru undarleg,
en sennilega besti kosturinn engu
að síður).
19. bxc3 - Rf6
20. c4 - Re4??
(Hrikaleg yfirsjón. Eftir 2Ö... -
Dd6. 21.Re5 - Re4 er hvíta stað-
an ef til vill örlítið betri, en ekki
mikið meira).
21. c5!
(Strategískt séð er taflinu nú
lokið. Mér yfirsást þessi einfaldi
leikur).
21... - Dc7
22. Db4 - Rxf2
23. Kxf2! - Hd8
24. Hfdl - Bd7
25. Hacl - Be8
26. d6! - exd6
27. g4!
(Nauðsynlegur leikur. Ekki
27. cxb6 - Db8 og svartur sleppur
með skrekkinn).
27.. . - Rh6
28. cxd6 - Rxg4
29. Kg3 - Dd7
30. Hc7 - Da4
(Engu betra var 30... - De6.
31. He7 og svo framvegis, eða 31.
... - Df5. 32.Rh4 og vinnur).
31. Dxa4 - Bxa4
32. Kxg4 - Bxdl
33. Bxdl - Hxd6
34. Bb3
(Þrýstingur hvíts á peðið á f7
ræður úrslitum).
34.. . - Hf8
35. Re5 - Ha6
36. Rxf7 - Hxf7
37. Hxf7 - Kh8
38. Hxb7 - Hxa5
39. Be6, og svartur gafst upp.
Polgar-systureru íaðalhlut-
verkum á alþjóðlega skákmótinu
á Egilsstöðum þegartefldar hafa
verið þrjár umferðir. Sú elsta,
Susza Polgar, og sú yngsta, Ju-
dith, sem aðeins er ellefu ára
gömul og hlýtur að teljast undra-
barn, hafa hlotið 2,5 vinninga úr
þremur skákum og eru í efsta
sæti ásamt Karli Þorsteins.
Árangur Suszu kemur ekki á
óvart. Hún hefur margsannað
styrk sinn á sterkum mótum með-
al karlmanna, en hún teflir ekki
við kynsystur sínar nema í al-
TT / 1 1 *
Hvi ekki
að taka lífið létt?
Edduhótel er ávallt skammt undan.
Farðu Edduleiðina í sumar og þér mun líða vel.
-----------EDDUKJÖR 1988-------------------------
Frá 15.-30. júní og 8.-30 ágúst býður Hótel Edda þér að gista nóttina fyrir
aðeins 863.- krónur á mann í tveggja manna herbergi m/handlaug.
Tilboð þetta gildir fyrir minnst fjórar nætur, sem hægt er að gista allar á
einu hóteli eða eina nótt á hverjum stað.
Gistingu má einungis panta með tveggja daga fyrirvara eða skemmri.
Leitaðu nánari upplýsinga hjá Ferðaskrifstofu ríkisins
í síma: 25855 eða á Edduhótelunum.
Forsala hefst 16. maí.
\