Þjóðviljinn - 12.06.1988, Síða 14
KROSSGATAN
NR. 621
BRIDGE
J— w 3— v- k> S? f 9 10 S? //
7T-1 /7 * 6 4- )t /S )0 17 QS H / ■> >2 i7
ií /6' Qp a 7 )0 s? n 1 h ,3 77 2? 'Xo
)0 S? // /9 /9 s? S 3 20 ■21 13 )S 2i /3 $2
W r ri íf Zi 20 T )3 9 s? il 7- 20
9? v- 23 19 r / l3 2) /c 77 <$> U L r
XH- 7f X) + X) /4 X? )b 9? /2 )# 6 )
S? )X )& Xo )(y )7 n T )2 27 /7 2/ r ílo 7
29 )<i W )X /7 )9 t> 73 V )9 )i 4- ) 2? H-
T T °< k> )2 /V 30 /3 )9 fT )) 72 T
V W n H- /7 W )k 27 <o S? /7 X/ T~
s zí -■V* 20 13 >7- r ) "6 /0 2C
2t> 7- r fO íp W~ 2 /2 21 £2 )<p
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá karlmannsnafn. Sendið
þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík
merkt: „Krossgáta nr. 621 “. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til
vinningshafa.
72 ib 20 21 i ^ h o / -o j /3 Í(p
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lárétt eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru þvi eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Lausnarorðið á krossgátu 618 var HÓLMSTEINN. Dregið var úr réttum
lausnum, og upp kom nafn Elíasar Valgeirssonar, Sólheimum 25, Reykjavík.
Fyrir vikið fær hann Leiðsögn um söguslóðir Njálu, á þremur hljóðsnældum
ásamt Njálssögu sjálfri í litlu broti. Útgefandi er Svart á hvítu, en Valgeir fær
verðlaunin í pósti innan tíðar.
Verðlaun fyrir krossgátu 621
verður' skáldsagan Refska eftir
Kristján J. Gunnarsson, fyrrum
fræðslustjóra í Reykjavík. Menn-
ingarsjóður gaf bókina út.
Norðurlanda-
mótið 1988
Landsliðin okkar í Opnum
flokki og kvennaflokki eru á
lokastigi undirbúnings fyrir
Norðurlandamótið, sem haldið
verður á Hótel Loftleiðum dag-
ana 26. juní til 2. júlí.
Um þessa helgi verður í Sigtúni
æfing allra liðanna þriggja (einn-
ig yngra liðsins, sem keppir í
Búlgaríu í ágúst), þar sem liðin
munu taka þátt í æfingamóti
ásamt tveimur öðrum liðum.
Undirbúningur fyrir mótshald-
ið hér heima að öðru leyti er vel á
veg kominn. Áhugafólk um
bridge hlýtur að fagna þeim hval-
reka sem Norðurlandamótið er.
Meðal keppenda eru Evrópu-
meistarar Svía og bronsverð-
launahafar, Norðmenn, frá síð-
asta Evrópumóti í Brighton.
Okkar lið hafnaði þar í 4.-5. sæti
og Danir litlu neðar.
Sveinsson/Magnús Sverrisson
með 130 stig.
Gefin eru stig fyrir 4 efstu sætin
í hverjum riðli á hverju kvöldi
(bronsstig/meistarastig).
Til athugunar er fyrir félögin
innan BSI að fá menn einsog
Hjalta Elíasson í heimsókn á
spilakvöldum næsta keppnis-
tímabil, eða í helgarheimsókn.
Hjalti gæti staðið fyrir náms-
ÓLAFUR
LÁRUSSON
Einum leik er lokið í Sanitas-
Bikarkeppni Bridgesambandsins
í 1. umferð. Sveit Delta Reykja-
vík sigraði sveit Ármanns J. Lár-
ussonar Kópavogi nokkuð örugg-
lega, eftir jafna byrjun. Sveit
Delta mætir því sveit Valtýs Jón-
assonar Siglufirði í 2. umferð.
Tímamörk í keppninni eru; 1.
umferð skal vera lokið sunnudag-
inn 26. júní og 2. umferð sunnu-
daginn 24. júlí.
Oski sveitir eftir afnotum af
Sigtúni, til spilamennsku, eru
fyrirliðar beðnir um að hafa sam-
band við framkvæmdastjóra.
keiðahaldi, leiðbeiningarnám-
skeiði eða hreinlega kennslu í
grundvallaratriðum bridgeíþrótt-
arinnar. Með Hjalta gætu verið í
för vanir keppnisstjórar, sem
settu upp stjórnunarnámskeið
fyrir félögin utan Reykjavíkur.
Fleiri en eitt félag gætu slegið sér
saman um framkvæmdina, því
víst er að ekki skortir áhugann.
Húsfyllir var í Sumarbridge sl.
þriðjudag. Spilað var í fjórum
stórum riðlum, alls um 60 pör,
auk þess sem bikarleikur var í
gangi.
Enn á ný eru spilarar minntir á
að mæta tímanlega til skráningar,
ef þeir hafa hug á þátttöku. Það
þýðir lítið að mæta rétt fyrir kl.
19.30 og reka svo upp stór augu,
þegar allir riðlar eru farnir af
stað. Húsið opnar kl. 17.30 (heitt
á könnunni) og hefst spila-
mennska í hverjum riðli um leið
og hann fyllist.
Eftir 10 spilakvöld í Sumar-
bridge var Jakob Kristinsson enn
með forystuna, 138 stig, en að
honum sóttu Anton R. Gunnars-
son 133 stig og Guðlaugur
Til athugunar er hjá Bridge-
sambandi Islands að þýða Al-
þjóðalög um Bridge yfir á ís-
lensku, nýja útgáfu til dagsins í
dag. Síðast vann þetta verk Jakob
R. Möller af mikilli fórnfýsi fyrir
spilara hér innanlands, 1976. Víst
er að verkið verður ekki minna
nú, með þeim viðbótum sem orð-
ið hafa frá síðustu útgáfu. Hvort
Jakob tekur að sér verkefnið á ný
er ekki ljóst, en heppilegri maður
hér heima er vandfundinn.
Áfram Jakob þessa lands...
Bridgesambandið óskaði eftir
umsóknum nýlega, í 60 ára af-
mælismót Stúdentaklúbbsins,
sem spilað verður í Kaupmanna-
höfn í september. Umsóknar-
frestur rennur út 15. júlí. Tvö pör
verða send til mótsins.
Einnig má búast við að BSÍ fái
formlegt boð frá Cavendish-
klúbbnum í New York á næsta
ári, þar sem okkur verður boðið
að senda 2 pör til árlegrar keppni,
Calcutta-mótsins svokallaða.
FJOLMIÐLAPISTILL
Helgarpóslurinn ■ in memoriam?
Ég verð að viðurkenna að ég
hef orðið æ langleitari eftir því
sem meira hefur verið sagt frá
slagsmálunum sem nú virðast
vera að ganga af Helgarpóstinum
dauðum. Svo virðist sem erjur og
átök milli tveggja hópa fjármál-
aspekúlanta - sem sumir hverjir
hafa ansi vafasamt orð á sér - hafi
kippt rekstrargrundvellinum
undan blaði sem ekki síst hefur
vakið athygli fyrir að afhjúpa
ýmis fjármálahneyksli. Óneitan-
lega heldur kindarlegt.
Að því er mér skilst hafa
deilurnar staðið í 14 mánuði en
þegar spurt er um hvað þær hafi
snúist verður fátt um svör. Pen-
inga, segir einn. Völd, segir ann-
ar. Þetta er persónulegt, segir sá
þriðji. Væntanlega hefur eitt-
hvað af öilu þessu komið við sögu
en að deilunum skyldi vera leyft
að ganga svo langt að leggja blað-
ið að velli er mér óskiljanlegt.
Þótt halli hafi verið á rekstrinum
um skeið og nokkur skuldabaggi
hlaðist upp þá er eins og það hafi
nú gerst áður í íslenskri blaðaút-
gáfu án þess að blöð hafi dáið af.
Mér skilst að nýi meirihlutinn í
stjórn Goðgár hf. ásaki fyrrum
meirihlutamenn um að hafa blóð-
mjólkað blaðið í því skyni að
sleppa út úr rekstrinum slysalaust
og án þess að þurfa að standa
undir ábyrgð á lánum sem þeir
höfðu skrifað upp á. Hafi þeir
gengið svo langt að þegar nýr
meirihluti tók við hafi kassinn
verið galtómur, ekki króna úti-
standandi og auk þess fallinn víx-
ill hangandi yfir blaðinu. Blasti
það við að viðkomandi banki gæti
gengið inn á skrifstofur blaðsins
hvenær sem væri og hirt öll
atvinnutæki blaðamanna - sem
voru svo til einu eignir blaðsins.
Við þessar aðstæður er harla
erfitt að reka blað. En það sem
þó reið sennilega baggamuninn
var að starfsfólk blaðsins var búið
að fá nóg. Hjá því var ekki snefill
eftir af trausti í garð eigenda
blaðsins, hvort sem þeir tilheyrðu
gömlum eða nýjum stjórnar-
meirihluta. Og þegar það traust
er farið er sjálfhætt.
Starfsmenn HP hafa kosið
fimm manna nefnd úr sínum
röðum til að kanna möguleika á
að þeir haldi hópinn og hefji
ÞRÖSTUR
HARALDSSON
hugsanlega útgáfu á nýju blaði.
Þeir hafa mas. gert ráðstafanir til
að tryggja sér nafnið Helgarpóst-
urinn. Oskandi væri að þeim tæk-
ist að koma nýju blaði á laggirnar
en ég hef hins vegar orðið þess
var að fáir virðast trúaðir á að það
takist. Er í því sambandi bent á
misheppnaðar tilraunir NT-
manna til að stofna blað eftir að
þeim var úthýst úr Síðumúlanum
ogTíminn endurreistur. Vonandi
er það bara svartagallsraus.
Eg er nefnilega þeirrar skoð-
unar að Helgarpósturinn hafi á
níu ára ferli sínum rækilega og
ítrekað réttlætt tilveru sína í ís-
lensku samfélagi. Vissulega hef-
ur hann átt sínar góðu og slæmu
stundir en oft hefur honum tekist
að fletta ofan af býsna vafasömu
framferði alls konar ráðamanna.
Honum var frá upphafi ætlað að
verða eins konar samviska þjóð-
arinnar með alvarlegum for-
merkjum, þe. að veita ráða-
mönnum aðhald og fylgjast með
atferli þeirra fyrir hönd almenn-
ings.
Við því má búast að blað sem
setur sér slíkt markmið spenni
bogann of hátt eða stígi feilspor
af og til. En í heildina tekið hefur
HP verið trúr sínum tilgangi alla
tíð og það er ekki lengra en tveir
mánuðir eða svo síðan blaðið
vakti athygli Reykvíkinga á því
að þeir hefðu forspurðir átt þátt í
að gefa skólastjóra einum og
íhaldsgæðingi glæsibíl.
Auk þess að stinga stjórn-
mála-, embættis- og athafna-
menn þorni hélt blaðið líka uppi
líflegri og skemmtilegri umfjöll-
un um menningarmál sem söknu-
ður verður að ef leggst niður.
Lengst af voru úrvalsblaðamenn
starfandi við Helgarpóstinn og
ruddu íslenskri blaðamennsku
braut á ýmsum sviðum, ég nefni
sem dæmi yfirheyrslurnar og per-
sónulegu „mannlífsviðtölin"
(sem síðan hafa reyndar gengið
sér til húðar, aðallega vegna
smæðar íslensks samfélags). Þótt
HP leggi upp laupana - sem von-
andi verður ekki - mun áhrifa
blaðsins gæta lengi í íslenskum
fjölmiðlum.
Þess vegna óska ég starfs-
mönnum þess góðs gengis við
endurreisnarstarfið. Þjóðin þarf
á Helgarpóstinum að halda.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. júní 1988