Þjóðviljinn - 23.06.1988, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 23.06.1988, Blaðsíða 3
I átta ár hefur Vigdís Finnbogadóttir gegnt embætti forseta íslands með glæsibrag. Kjör hennar til þessa embættis árið 1980 vakti heimsathygli og á örskömmum tima varð hún óumdeildur fulltrúi þjóðarinnar. Boðskapur hennar hefur verið skýr og ótvíræð hvatning til að efla menningu hugar og handa og standa vörð um tungu, land og sögu. Með fágaðri landkynningu hefur hún aflað þjóðinni aukinnar virðingar og hefur hvað eftir annað verið beðin að gerast talsmaður allra norrænna manna íframandi heimsálfum. I forsetakjöri 25. júní eiga íslendingar þess ánægjulegan kost að velja Vigdísi Finnbogadóttur til starfa áfram í embætti forseta íslands. MÆTUM ÖLL Á KJÖRSTAÐ Tryggjum glæsilega kosningu - Hvert atkvæði er hvatning STUÐNINGSMENN YIGDÍSAR FINNBOGADÓTTUR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.