Þjóðviljinn - 01.07.1988, Síða 7

Þjóðviljinn - 01.07.1988, Síða 7
FERÐABLAÐ Hvar má veiða í ánni? Hvað veiðist? í hvaða magni? Hvaða stærð má búast við? Hvenær er best að veiða í ánni? Hvað kostar veiðiieyfið? Veiðiflakkarinn svarar þessum spurningum, en ætli þau hafi miklaráhyggjur af því? Mynd: Ari. Ferðaþjónusta bœnda FLAKKARINN nýjung í ferðaþjónustu Gistiflakkarinn og Veiðiflakkarinn, heilsteyptferðakerfi sem allir getanýttsér Eitt það nýjasta í ferðaþjón- ustu hér á íslandi ísumarer fyrirkomulag sem Ferðaþjón- usta bænda hefur komið sam- an og kallast „Flakkarinn". Það skiptist í tvo aðskilda, og þó ekki aðskilda, hluta sem kallast Gistiflakkarinn og Veiðiflakkarinn. Gistiflakkarinn er nokkurs- konar „Bed and Breakfast" kerfi og gildir á öllum þeim bæjum sem teljast selja sína þjónustu undir merkjum Ferðaþjónustu bænda. Hægt er að kaupa miða og gilda þeir þá sem greiðsla fyrir uppbúið rúm og morgunmat á hvaða bæ, hvar sem er á landinu, sem hefur hlotið viðurkenningu Ferðaþjón- ustunnar. Veiðiflakkarinn er hinsvegar þannig uppbyggður að maður kaupir miða og framvísar honum á hverjum þeim stað og við hvert það vatn eða hverja þá á sem maður ætlar sér að veiða í. Verð- ið fyrir veiðileyfið er svo rokk- andi milli 2 og 13 miða en hver miði kostar nú 240 krónur. Þegar miðarnir eru keyptir fær maður pésa sem heitir „Veiðiflakkar- inn“ og í honum er að finna tæm- andi upplýsingar um hvar í ánni/ vatninu leyfilegt er að veiða, hvað veiðist, í hvaða magni hugs- anlega, hvaða stærð hægt er að búast við, á hvaða tíma árs best er að veiða í viðkomandi á/vatni, hvaða verð er á veiðileyfinu, hvaða þjónusta er á bænum sem selur leyfið og margt, margt fleira. Margrét Jóhannsdóttir starfs- maður Ferðaþjónustunnar sagði er blaðamaður Þjóðviljans leit inn á skrifstofu hennar á Hótel Sögu að sér litist svo á að þær nýju léiðir sem með flakkarafyrir- komulaginu opnuðust ættu að geta nýst öllum ferðamönnum. Jafnvel, og kannski ekki síst, þeim sem færu út í náttúruna í nokkra daga, vikur eða bara í helgarferðir. Pá væri hægt að fá veiðiflakkaramiða og kannski einnig gistiflakkaramiða og aka útí náttúruna án þess að hafa djúpstæðar áhyggjur af gistingu á óvissum stöðum eða hótelum. -tt Félagsheimilið ARNES Tilvalinn áningarstaður á leið í Pjórsárdal og inn á hálendið Tökum á móti hópum af öllum stærðum í mat og kaffi. Verið velkomin Sími 99-6044 Aætlun Hríseyjarferjunnar Sumaráætlun 15. maí - 30. september Frá Hrísey Frá Árskógssandi kl. 9.00 kl. 9.30 kl. 13.00 kl. 13.30 kl. 18.00 kl. 18.30 kl. 22.00 kl. 22.30 Aukaferð fimmtudaga - sunnudaga Frá Hrísey Frá Árskógssandi kl. 16.00 kl. 16.00 Auglýsið í Þjóðviljanum ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.