Þjóðviljinn - 13.08.1988, Síða 11
IÞROTTIR
Fótbolti
Enn tapar Þróttur
FH og Fylkir endanlega búin að stinga önnur lið af. Selfoss og
Tindastóll unnu sigra
FH-Víðir.............3-2 (0-1)
Já, Víðir hafði yfir í leikhléi 0-1
og var það Bjöm Ingimundarson
sem skoraði mark þeirra. Víðir
varð nánast að vinna þennan leik
til að eiga möguleika á 1. deildar-
sæti og því allt lagt í sölumar. í
síðari hálfleik jafnaði Pálmi Jóns-
son fyrir FH-inga en Heimir
Fótbolti
Pollamótá
Skaganum
26 lið frá 13 félögum taka þátt í
Hi-C mótinu á Akranesi um helg-
ina. Er þetta í 4. skipti sem mótið
er haldið og fer vegur þess sífellt
vaxandi. Keppt verður í A- og B-
liðum í 6. aldursflokki og verða
keppendur um 300.
Mótið hefst kl. 13.00 á föstu-
dag og stendur til 15.00 á sunnu-
dag. Væri því ekki úr vegi fyrir
knattspyrnuáhugamenn á höfuð-
borgarsvæðinu að bregða sér í
Bogguna um helgina og fylgjast
með stórskemmtilegri keppni
áhugasamra stráka.
-þóm
Karlsson kom Víði yfir á nýjan
leik. Ólafur Jóhannesson skoraði
síðan fyrir FH og á lokamínútun-
um tryggði Kristján Gíslason FH-
ingum sigurinn og em þeir því
enn lang efstir í deildinni.
Fylkir-Þróttur.........1-0 (0-0)
Fylkir fylgir FH-ingum sem
skugginn sem fyrr og verða liðin
áreiðanlega í 1. deild að ári.
Þróttarar berjast við fall í 3. deild
og em með mjög slæma stöðu
eftir þetta tap. Ekkert mark var
skorað í fyrri hálfleik en þá var
nokkurt jafnræði með liðunum.
Fylkir tók síðan öll völd á eigin
velli í síðari hálfleik en uppskar
þó aðeins eitt mark. Jón Bjarni
Guðmundsson skoraði það þegar
um 20 mínútur voru til leiksloka
og eftir það var sigurinn aldrei í
hættu.
Tindastóll-ÍBV.......2-0 (1-0)
Vestmannaeyingar fóm fýlu-
ferð norður á Sauðárkrók og
hirtu heimamenn þrjú stig í
viðureigninni. Guðbrandur
Guðbrandsson skoraði fyrra
markið á 10. mínútu en Eyjólfur
Sverrisson það síðara þegar um 4
mínútur vom til leiksloka.
Selfoss-UBK..........1-0
Breiðablik hafði ekki heldur
erindi sem erfiði í sinni för til Sel-
foss. Heimir Bergsson skoraði
eina mark leiksins og þurfa Blik-
artiir að taka sig á eigi þeir ekki að
falla í 3. deild.
-þóm
3. deild
Stjarnan upp
Stjarnan f Garðabæ er nánast
örugg upp f 2. deild eftir tap
helsta keppinautarins, Grinda-
vfkur, fyrir Reyni SandgerSi, 2-1.
Valþór skoraði fyrst fyrir Reyni
en Páll Björnsson jafnaði fyrir
leikhlé. í síðari hálfleik bætti Jón-
as Jónasson öðru marki við enda
þótt Reynismenn væru aðeins tfu
á vellinum. Grindavfkingar virð-
ast nú hafa misst af lestinni en
þeir misnotuðu vítaspyrnu f
leiknum. -þóm
Fram vann ÍBÍ
Framstúlkur unnu loks sigur f
1. deildinni er þær bóru sigurorð
af ísflrðingum 2-0 í gærkvöldi.
Brynhildur Þórarinsdóttir og
Lára Eymundsdóttir skoruðu
mörkin i þessum langþráða sigri.
Golf
Landsliðið kunngjört
Norðurlandamótið í golfl verð-
ur haldið hér á landi í ár, á
Hólmsvellli við Leiru 20.-21. ág-
úst. Landsliðseinvaldar íslend-
inga, Jóhann R. Benediktsson og
Krístín Pálsdóttir, hafa valið
keppendur íslendinga á mótinu
sem eru:
Karlar:
Hannes Eyvindsson, GR
Hilmar Björgvinsson, GS
Sigurður Sigurðsson, GS
Sveinn Sigurbergsson, GK
Tryggvi Traustason, GK
Úlfar Jónsson, GK
Konur:
Ásgerður Sverrisdóttir, GR
Karen Sævarsdóttir, GS
Ragnhildur Sigurðardóttir, GR
Steinunn Sæmundsdóttir, GR
Pá hafa íslendingar sem móts-
haldarar rétt á aukakeppendum í
einstaklingskeppninni og bætast
þá þau Björn Knútsson, Gunnar
S. Sigurðsson, Sigurjón Agnars-
son og Alda Sigurðardóttir í hóp-
inn. Það verður spennandi að sjá
hvernig landsliðinu okkar vegnar
að þessu sinni því ofantaldir kylf-
ingar eru hver öðrum sterkari.
Úlfar Jónsson náði t.a.m. mjög
góðum árangri á sterku móti í
Sviss á dögunum og ekki má
gleyma Islandsmeisturunum,
Sigurði Sigurðssyni og Steinunni
Sæmundsdóttur.
-þóm
England
Venables boðar breytingar
Steve Hodge seldur til Nottingham Forest
Terry Venables er maður
brcytinganna, svo mikið er víst.
Hann hefur f gegnum tíðina sætt
gagnrýni fyrir að kaupa leikmenn
Frjálsar
Hver að
verða
síðastur
Nú er aðeins um hálfur mánuð-
ur í Reykjavíkurmaraþon ‘88, en
þetta er flmmta árið í röð sem
hlaupið fer fram. Skráningar-
frestur er að renna út, því eftir
15. ágúst tvöfaldast þátttöku-
gjaldið.
Að vanda geta hlauparar valið
um þrjár vegalengdir, 7 km, 21
km og 42 km og því geta allii
fengið eitthvað við sitt hæfi.
Skráning fer fram hjá Ferðaskrif-
stofu Urvals, sími 28522.
-þóm
dýrum dómum en hann selur
einnig fjölda leikmanna. Venab-
les er nú framkvæmdastjóri hjá
Tottenham og nýjustu fregnir
herma að Steve Hodge hafi verið
seldur frá félaginu en Brian
Clough, stjóri hjá Nottingham
Forest, snaraði 575 þúsund pund-
um á borðið hjá Venebles fyrir
kappann.
„Það tuða allir um að ég eyði
allt of miklum peningum, en ég
fæ ekki betur séð en við endur-
heimtum féð með því að selja,“
sagði Venables eftir þessa sölu.
Hann tók við af David Pleat sl.
nóvember og hefur gert margar
breytingar á liðinu síðan. Hann
seldi Clive Allen til Bordeaux,
Belgíumanninn Nico Claesen til
Antwerpen og vamarmanninn
Neil Ruddock til Millwall, auk
þess að selja Hodge nú. Hann
keypti líka Paul Gascoigne frá
Newcastle og Paul Stewart frá
Manchester City fyrir mikið fé
svo ekki veitir af peningunum.
Steve Hodge kostaði Totten-
ham 650 þúsund pund þegar hann
kom frá Aston Villa í desember
1986. Hann fann sig aldrei veru-
lega hjá Lundúnaliðinu og missti
m.a. sæti sitt í enska landsliðinu.
Hodge hóf einmitt feril sinn hjá
Nottingham Forest á sínum tíma.
-þóm
Borðtennis
Námskeið
í Garðabæ
Stjarnan stendur fyrir Borð-
tennisskóla í íþróttahúsinu Ás-
garði I vikuna 15.-21. ágúst. Verð
á námskeiðið er 2000 krónur.
Námskeiðunum er skipt í tvo
hópa, byrjendur og yngri en 12
ára annars vegar og fyrir lengra
komna hins vegar. Fyrrnefndi
hópurinn verður kl. 10-12.30 og
þjálfari Albrecht Ehmann en sá
síðamefndi kl. 17.30-20.00 með
Stefán Konráðsson sem þjálfara.
Allar nánari upplýsingar fást í
símum 656866 og 46409.
-þóm
DAGVIST BARIMA
Dagvist barna í Reykjavík óskar að ráða
starfsfólk á dagheimili, leikskóla og skóla-
dagheimili í flestum hverfum bæjarins.
Um er að ræða eftirtalin störf:
* Almenn uppeldisstörf.
* Störf við þjálfun fatlaðra barna.
* Aðstoðarstörf á deildum.
^ Matreiðslu- og eldhússtörf.
Möguleikar eru á vistun barna starfs-
fólks í dagvist.
Upplýsingar gefa forstöðumenn dagvistarheim-
ila Dagvist barna og umsjónarfóstrur
Húsvörður
óskast í fullt starf fyrir 72 íbúða sambýlishús.
Aðeins umgengnisgott og reglusamt fólk kemur
til greina.
Húsvörður annast minni háttar viðhald og hefur
umsjón með umgengni og ræstingu.
Góð íbúð fylgir starfinu.
Nánari upplýsingar gefur Birgir Ottósson hús-
næðisfulltrúi í Félagsmálastofnun Reykjavíkur-
borgar, Síðumúla 34, sími 685911.
Umsóknir er greini aldur og fyrri störf, sendist
Starfsmannahaldi Reykjavíkurborgar, Pósthús-
stræti 9, á eyðublöðum sem þar fást fyrir 20.
ágúst n.k.
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANÐAKOTI
Ritari óskast á bókasafn frá 1. september 1988
Ensku- og vélritunarkunnátta áskilin.
Upplýsingar gefa bókaverðir í síma 19600/264
frá kl. 8-16.
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir júlímánuð er 15. ágúst.
Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna
ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
Laugardagur 13. ágúst 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11