Þjóðviljinn - 07.09.1988, Síða 3

Þjóðviljinn - 07.09.1988, Síða 3
FRETTIR Miðstjórn ASÍ Ræðum ekki launalækkun Forseti ASÍ: Grundvallaratriði að rœða lœkkun vaxta og verðlags. Ríkisstjórninferfram á 12 þúsund miljónir til að greiða niðurl300 miljóna halla Miðstjórn ASÍ ákvað í gær að ganga ekki tii frekari við- ræðna við ríkisstjórnina á þeim forsendum sem stjórnin hefur unnið eftir. Skilyrði fyrir áfram- haldandi viðræðum er af hálfu miðstjórnar, að ekki verði rætt um lækkun launa. Áframhald- andi viðræður eigi að beinast að því að lækka vexti og verðlag og tryggja afkomu útflutnings- greina. Miðstjórnin ítrekar kröfu sína um að hækkun bóta elli- og örorkulífeyris verði ekki frestað. Ákveðið var að boða til almenns formannafundar á mánudaginn. í gögnum frá ASÍ kemur fram að ríkisstjórnin áætli halla fryst- ingarinnar í landinu vera um 1300 miljónir. Launagreiðslur á árinu séu áætlaðar 138 miljarðar króna. Verði laun lækkuð um 9% verði 12 þúsund miljónir færðar frá launafólki yfir til atvinnurek- strar í landinu. Ásmundur Stef- ánsson forseti ASÍ sagði í gær að þetta væri í engu samræmi við þann vanda sem við væri að glíma. Fram hefði komið að 10% hátekjuskattþrep gæfi ríkissjóði um 2700 miljónir í tekjur sem væri nær tvöfaldur halli frysting- arinnar. Ásmundur sagði áframhald viðræðna við ríkisstjórnina alger- lega ráðast af vilja ríkisstjórnar- innar. „Framhaldið ræðst af því hvort ríkisstjórnin telur það einu lausn efnahagsvandans að lækka laun í landinu eða hvort hún er reiðubúin að skoða aðra þætti,“ sagði Ásmundur. Spurningin væri hvort ríkisstjórnin væri til- búin að skoða vaxtamálin og verðlagsmálin út frá öðru sjónar- horni en því hvernig hægt væri að lækka verðlag sem afleiðingu launalækkunar. Ásmundur sagði ráðherrana að eigin sögn ekki ganga til við- ræðna á forsendum forstjóra- skýrslunnar, á fyrsta fundi ASÍ með ríkisstjórninni. Annað hefði hins vegar komið í ljós á mánu- dag og ríkisstjórnin þyrfti að breyta forsendum ef viðræður ættu að halda áfram. Hann sagð- ist hafa vonað að hætt hefði verið við frestun hækkunar elli- og ör- orkubóta en nú væri það ekki víst lengur. Ásmundur sagðist ekki vilja ætia ríkisstjórninni það að fara einhliða leið 9% launalækk- unar. „Ég vil einfaldlega ekki ætla ríkisstjórninni slíka heimsku og þess vegna finnst mér fráleitt að rökræða hvað gerðist ef hún hegðaði sér þannig,“ sagði Ás- mundur. -hmp VMSÍ Tekur undir með miðstjóm FormaðurJökuls: Ánægður með samþykkt miðstjórnar ASÍ Á fundi framkvæmdastjórnar Verkamannasambandsins í gær var samþykkt tillaga frá Birni Grétari Sveinssyni, formanni Jökuls á Höfn íHornafirði, þar sem tekið er undir samþykkt mið- stjórnar ASÍ um að ekki verði gengið til frekari viðræðna við rflrisstjórnina ef þær eigi að snú- ast um lækkun launa. Fram- kvæmdastjórnin minnir á sam- þykktir sem gerðar hafa verið á vettvangi VMSÍ. En í þeim er meðal annars sagt að kjaraskerð- ingum verði mætt af fullri hörku. í samtali við Þjóðviljann sagð- ist Björn Grétar vera ánægður með samþykkt miðstjórnar ASÍ, greinilegt væri að önnur sjónar- mið hefðu orðið ofan á á þessum miðstjórnarfundi en þeim fyrri. Björn fagnaði einnig væntan- legum formannafundi á mánudag og sagðist mæta til hans með það að ieiðarljósi að herða á þeirri áherslu sem fram kæmi í sam- þykkt miðstjórnar ASÍ. -hmp Blaðamenn Mótmæla kjaraskerðingu Stjórn Blaðamannafélags ís- lands mótmælir harðlega þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að fresta umsaminni 2,5% launa- hækkun sem átti að taka gildi þann 1. september. í annað sinn á örfáum mánuðum ráðist stjórn- völd á gildandi kjarasamninga og enn frekari kjaraskerðing sé til umræðu á stjórnarheimilinu. í ályktun stjórnar Blaða- mannfélagsins, sem var sam- þykkt einróma, segir að laun fé- laga BÍ og annarra launamanna séu ekki orsök þeirrar hagstjórn- arkreppu sem stjómvöld glími við. Áukin umsvif fjölmiðla, fjárfrekar fjárfestingar og stór- aukin blaðaútgáfa síðustu vikur og misseri sýni þvert á móti það góðæri sem útgefendur og aðrir fjölmiðlar búi við. Allt tal um lækkun launa sé því út í hött. -hmp í Víglundur Þorsteinsson einn af meðlimum forstjóranefndarinnar og Ásmundur Stefánsson forseti ASl sem hafnað hefur hugmyndum forstjóranna. ASÍ Aðeins einn sat hjá Forseti ASÍstyrkir stöðu sína. Fær ígegn samþykkt um viðrœðuslit. Ekki unnt að taka upp niðurfœrsluþráðinn aftur Fundur miðstjórnar ASÍ í gær stóð fram undir klukkan tvö. Það var nokkuð lengra en menn höfðu búist við því að þá átti að hefjast fundur hjá Verkamanna- sambandinu. Þetta var túlkað á þann veg að umræður hefðu orð- ið meiri á miðstjórnarfundinum en fyrirfram hafði verið reiknað með. Á blaðamannafundi að lokn- um miðstjómarfundi kom fram að ekki hefðu allir miðstjórnar- menn greitt atkvæði með ályktun um skilyrði fyrir viðræðum við ríkisstjórnina en ekki var þar gerð nánari grein fyrir hjásetum. Samkvæmt heimildum Þjóðvilj- ans mun Guðmundur J. Guð- mundsson einn hafa setið hjá við atkvæðagreiðsluna en allir aðrir miðstjómarmenn greitt atkvæði með ályktuninni. Miðstjórnarmaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði að líklega hefðu margir miðstjórnar- menn í rauninni ekki viljað stoppa viðræður við ríkisstjórn- ina um niðurfærsluna svoköll- uðu. Umræðan hefði farið mjög víða og mótast mjög af því að menn vom ekki tilbúnir með aðr- ar tillögur. En þegar kom að at- kvæðagreiðslu, gat enginn verið á móti tillögu Ásmundar. „Hafi Ásmundur orðið undir á fyrri miðstjórnarfundinum," sagði þessi heimildarmaður blaðsins, „þá varð hann ofan á núna.“ Spurningalistinn sem hann sendi ríkisstjórninni hafi verið snjallræði og í reynd sett ráðherrana upp að vegg. Ríkis- stjórnin hafi ekki verið tilbúin að ræða annað en launalækkun, nú yrði hún að taka upp nýjan þráð. „Þeir, sem í hjarta sér vom ekki hrifnir af að slíta viðræðum, geta ekki farið í neinar æfingar með svona afdráttarlausa samþykkt á bakinu.“ ÓP Hátekjuskattur 2,7 miljarðar króna Auknar tekjur ríkissjóðs með nýju skattþrepi. 35 þúsundframteljendur með tekjur yfir 100 þús- und á mánuði Rflrissjóður gæti náð í 2.700 miljónir króna á ári með því að taka upp 10% viðbótarskattþ- rep á allar tekjur yfír 100 þúsund krónur á mánuði. Þetta kemur fram í svari sem rflrisstjórain lagði í fyrradag fram við fyrir- spurn frá Ásmundi Stefánssyni forseta ASÍ. Þegar tekið var upp stað- greiðslukerfi skatta var skattþ- repum fækkað í eitt. Eftir að tekj- ur eru komnar upp fyrir skatt- leysismörk er greitt sama hlutfall í skatt. Skiptir þá engu hvort við- komandi er með 50 þúsund eða 150 þúsund krónur á mánuði. Ýmsir hafa orðið til að gagnrýna þessar breytingar. í svari ríkisstjórnarinnar kem- ur fram að samkvæmt upplýsing- um úr skattframtölum má ætla að 35 þúsund af 180 þúsund fram- teljendum séu með tekjur yfir 100 þúsund krónum á mánuði að meðaltali á árinu 1988. Þar er sett fram sú skoðun að vegna sveiflna í tekjum milli mánaða væri heppi- legast að innheimta hátekjuskatt eftir á, þ.e. ári eftir að teknanna er aflaö, og yrði þá tekið tillit til meðaltekna skattársins. ÓP Matarskatturinn Um 16-18% minni neysla Hrafn Bachmann: Óvinsælasta ráðstöfun sem framkvœmd hefur verið. Bitnarmestá láglaunafólki. íöllum tilfellum erskatturinn hærrien smásöluálagningin Eg er ekki í nokkrum vafa um að frá því matarskatturinn var settur á um síðustu áramót hafa neytendur dregið við sig í matarinnkaupum um allt að 16- 18%. Þessi skattur er sú óvinsæ- lasta ráðstöfun sem gerð hefur verið í manna minnum hérlendis, án þess að nokkuð hafi verið gert til aðstoðar láglaunafólkinu sem hann bitnar einna harðast á, sagði Hrafn Bachmann kaup- maður í Kjötmiðstöðinni við Þjóðviljann. Hin erfiða staða hjá matvöru- búðum hefur ekki farið framhjá neinum að undanförnu hin erfiða staða hjá matvörubúðum og má í því sambandi minna á gjaldþrot Kostakaupa í Hafnarfirði, auk ýmissa samdráttaraðgerða hjá Sláturfélagi Suðurlands sem hef- ur neyðst til að loka fjölmörgum matvöruverslunum sínum. Ástæðan er fyrst og fremst geigvænlegur fjármagnskostnað- ur sem fáir rísa undir, auk sam- keppninnar um kúnann sem leiðir margan kaupmanninn út á ystu nöf. Að sögn Hrafns Bachmanns á matarskatturinn stóran þátt í því hvemig komið er fyrir fyrir ma- tvöraversluninni í landinu. Skatt- urinn sé í öllum tilfellum hærri en smásöluálagningin en hann er 25% og leggst á öll matvæli án undantekninga og á mikla sök á því háa verði á matvælum sem hér er. Auk þess þurfa verslanir að greiða hann til hins opinbera 7 dögum áður en krítarkortin era gerð upp. Hjá Kjötmiðstöðinni einni saman nema viðskipti með krítarkort um 40 miljónum króna á mánuði fyrir utan þá viðskipta- vini sem eru í reikningi. „Algeng matvöraverslun er með þetta 8-9-þúsund vöraflokka á boðstólum á meðan sambæri- legar verslanir í okkar nágranna- löndum erui ekki með nema um 4-5 þúsund vöraflokka. Ofan á þetta bætist síðan hið séríslenska fyrirbæri sem heildsalar era. Þeir eru á 6. hundrað hér en þyrftu ekki að vera nema um 50,“ sagði Hrafn Backmann. -grh Miðvikudagur 7. september 1988 þJÓÐVILJINN — SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.