Þjóðviljinn - 07.09.1988, Page 5
FRETTIR
Monica Kristensen
Ekkert mátti
fara úrskeiðis
Vísindalegur ávinningur, fremur en hetjuskapur, hvati að
leiðangrinum ífótspor Amundsens á Suðurpólinn
Amánudaginn hélt norski
jöklafræðingurinn Monica
Kristensen fyrirlestur í Norræna
húsinu um leiðangur sinn á
Suðurheimskautið fyrir tæpum
tveimur árum. Leiðangurinn var
merkilegur fyrir margar sakir.
Þetta var í fyrsta skipti sem farið
var í fótspor Amundsens á Suður-
pólinn árið 1911 og vakti það ekki
síður athygli að ung kona skyldi
takast á hendur stjórn heim-
skautaleiðangurs.
í samtali við Þjóðviljann sagði
Monica að ákvörðunin um fara í
leiðangur á Suðurpólinn hefði
þróast í framhaldi af áhuga henn-
ar og Neil Mclntyre á að rann-
saka Ross íshelluna á Suður-
skautslandinu. Þau luku dokt-
orsprófi í jöklafræðum samtímis
frá Cambridge háskóla og í
leiðangrinum söfnuðu þau merk-
um gögnum, sem enn er verið að
vinna úr.
Auk Monicu og Neil völdust til
fararinnar 2 danskir hermenn
sem hlotið höfðu þjálfun í stjórn-
un hundasleða á Grænlandi, að
ógleymdum sleðahundunum 22.
- Hundarnir voru valdir sér-
staklega eftir andlegum og líkam-
legum styrk og þjálfuðum við þá
sjálf heima í Noregi í rúm 2 ár,
sagði Monica. Er spurt var hvers
vegna þau hefðu ekki notað fljót-
legri ferðamáta en hundasleða og
skíði, svaraði Monica því til að
snjósleðar væru hættulegri farar-
tæki og sífellt að bila, auk þess
þyrfti óhemjufé til að dreifa elds-
neytisbirgðastöðvum meðfram
allri leiðinni.
- Við þurftum samt sem áður
að láta dreifa birgðum á 5 staði á
leiðinni, aðallega hundamat sem
móðir mín útbjó heima í Noregi.
Samtals sauð hún saman fitu,
síld, beinamjöl og vítamín í
11.000 dósir.
Undirbúningur leiðangursins
tók 5 ár, því eins og Monica sagði
má ekkert fara úrskeiðis á
Ieiðinni. - Ef maður tapar tjaldi
eða gasið á prímusana lekur, er
maður búinn að vera á Suður-
heimskautinu, því þar er enga
björg að fá. Ef frá eru taldar mör-
gæsir og nokkrir aðrir fuglar við
ströndina, eru stærstu dýrin smá
kóngulær.
Áætlun leiðangursins var mjög
stíf, því þau hugðust fara frá
Hvalavík á Suðurpólinn og til
baka á 75 dögum. Leiðin á pólinn
er um 2000 kílómetrar og sagði
Monica að þau hefðu farið allt
upp í 60 km á dag er færi var best.
Suma daga dró hins vegar nýfal-
linn snjór úr yfirferðinni og í 5
Monica Kristensen sagðist ekki hafa brosað mikið í leiðangrinum á
Suðurpólinn, enda stórhættulegt fyrir tennurnar í 40 stiga frosti. Hún
hefur nú gefið út bók um leiðangurinn og kom til landsins til að kynna
íslenska þýðingu hennar.
daga voru þau veðurteppt í snjó-
byl. Er hásléttunni var náð og að-
eins 6 daga ferð á sjálfan Suður-
pólinn ákváðu þau að fara ekki
íengra vegna naums tíma.
- Það er mjög erfitt að ákveða
að gera eitthvað sem maður vill
ekki, en ég varð að hugsa um
áhöfnina á skipinu sem átti að
sækja okkur og hefði getað lokast
inni yfir veturinn ef áætlun hefði
ekki staðist. Auk þess hefði fjöldi
fólks e.t.v. hætt lífi sínu við að
leita að okkur, hefðum við ekki
komið á réttum tíma, sagði Mon-
ica.
Fyrir ferðina heyrðust efa-
semdaraddir um að kona héldi út
að stjórna leiðangri við eins erfið-
ar aðstæður og eru á Suður-
heimskautinu. Að hvaða leyti
skyldi vera erfiðara fyrir konu að
leggja á sig slíka ferð? - Það er
kannski aðeins erfiðara fyrir þær
að geta ekki lyft jafn miklu og
líklega eiga þær erfiðara með að
vera svona hryllilega skítugar í
langan tíma. •
Ríkisstjóm í andarslitrum
Flest bendir til stjórnarslita og að þingkosningar verði í nœsta mánuði.
Sterk staða Framsóknar og Sjálfstæðisflokks en hrun hjáAlþýðu-
flokki. Uppgjör í efnahagsmálum í kjörklefanum
- Ef þessi ríkisstjórn hefur ein-
hvem tímann staðið tæpt þá tæpu
15 mánuði sem hún hefur lifað,
þá er það núna. Ég á allt eins von
á að þetta springi næstu daga og
það verði kosið áður en þing
kemur saman í haust, sagði for-
ystumaður í einum stjómar-
flokknum í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
Mikill taugatitringur er í
stjórnarherbúðunum þessa dag-
ana og yfirlýsingar bæði Þorsteins
Pálssonar forsætisráðherra og
Steingríms Hermannssonar utan-
ríkisráðherra um að stjórnin hafi
tvær vikur til að skila sínum efna-
hagstillögum, eru ekki túlkaðar á
annan veg innan ríkisstjórnarinn-
ar en að endalokin á þessari
óvinsælustu ríkisstjórnar síðustu
áratuga séu óðum að nálgast.
,Að fara á taugum“
Alþýðuflokksmenn eru afar
óttaslegnir og bera upphlaup og
fálmkenndar yfirlýsingar forystu-
manna flokksins síðustu daga
þess gleggst merki. Jónarnir
leggja ofurkapp á að stjómin gefi
sér tíma til að skoða vandlega alla
valkosti í efnahagsmálum og eru
tilbúnir að kasta niðurfærslunni
sem var þeirra aðalmál í síðustu
viku fyrir róða, ef hægt sé að
halda stjórninni saman með öðr-
um ráðum.
- Menn verða að sýna þolin-
mæði, þeir mega ekki fara á
taugum. Við verðum að ætla okk-
ur tíma til að hafa samráð og leita
saman nýrra leiða. Ekki hengja
sig í dagsetningar og bregða
þannig snöm um hálsinn á sér,
sagði Eiður Guðnason þing-
flokksformaður Alþýðuflokksins
á kappræðufundi Rásar 2 á Hótel
Borg á fimmtudag.
Kratar með
allt á hœlunum
Það er von að Alþýðuflokks-
mönnum sé órótt. Skoðanakann-
anir gefa til kynna að fylgi flokks-
ins er komið niður í um 8% eða í
sömu stöðu og fylgi Alþýðu-
bandalagsins, en á sama tíma
auka bæði Framsóknarflokkur og
Sjálfstæðisflokkur við sig fylgi.
Ríkisstjórnin sjálf hefur hins veg-
ar aldrei verið óvinsælli og nýtur
aðeins stuðnings um 40% kjós-
enda samkvæmt nýrri könnun
DV. Óvinsældir stjórnarinnar
bitna því fyrst og fremst á Al-
þýðuflokknum.
Skýringin á því liggur á margan
hátt í augum uppi. Jóni Baldvin
hefur ekki tekist að skera upp
spillingu kerfisins og koma á rétt-
látara þjóðfélagi eins og hann
boðaði fyrir kosningar. Horn-
steinar Jóns Baldvins eru matar-
skattur, ójöfnuður, stórfelldur
halli ríkisfjármála og nú síðast ó-
teljandi tillögur um kjaraskerð-
ingu. Jón Sigurðsson hefur þótt
litlítill og virkað frekar sem emb-
ættismaður en pólitíkus og Jó-
hanna Sigurðardóttir situr uppi
með enn verri stöðu í húsnæðis-
málum en þegar hún tók við þrot-
abúi Alexanders Stefánssonar.
Beðið um
endurnýjað umboð
Málefnastaða Alþýðuflokksins
er ekki glæsileg og þeir vilja fyrir
enga muni slíta stjórnarsamstarf-
inu núna og lenda í kosningabar-
áttu. Framsóknar- og Sjálfstæðis-
menn óttast hins vegar ekki kosn-
ingar. Skoðanakannanir sýna
ekki aðeins að þrátt fyrir óvin-
sældir ríkisstjórnarinnar auki
þessir tveir flokkar fylgi sitt,
heldur hafa þeir nú saman meiri-
hlutafylgi á Alþingi.
Það er því ekki lengur þörf fyrir
Alþýðuflokkinn sem varadekk í
stjórninni. Forystumenn Fram-
sóknar og Sjálfstæðisflokks sjá
því möguleika á að slá tvær flugur
í einu höggi. Styrkja stöðu sína í
þingkosningum þegar í næsta
mánuði og fá endurnýjað umboð
frá þjóðinni til að grípa til rót-
tækra aðgera í efnahagsmálum.
Tíminn að
renna út
Spuming er hver slítur og
hvernig verður stjórnarsamstarf-
inu slitið? Steingrímur og Þor-
steinn hafa þegar brugðið heng-
ingarólinni utan um stjórnina.
Úrslitin verða að ráðast fyrir
þarnæstu helgi. Tíminn sem
stjórnarherrarnir hafa sett sjálf-
um sér er að renna út.
Alþýðusambandið hafnaði í
gær öllu samstarfi og samráði við
ríkisstjórnina um launalækkun.
Niðurfærsluleiðin er þar með úr
sögunni eftir yfirlýsingar Þor-
steins Pálsson um fullt samráð við
verkalýðshreyfinguna ef fara ætti
þá leið. Gengisfelling hefur áður
verið afskrifuð og aðrir kostir eru
ekki í sjónmáli sem samkomulag
gæti tekist um milli stjómarflokk-
anna á næstu dögum. Trúlegast
er að forsætisráðherra muni sjálf-
ur slíta stjórnarsamstarfinu, vísa
efnahagskreppu stjórnarinnar til
þjóðarinnar með því að boða til
kosninga í október.
FRETTASKYRING
7
Lúðvík Geirsson skrifar
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5