Þjóðviljinn - 07.09.1988, Síða 6
þJÓÐVILJINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
Ávöxtunariærdómar
og slettirekuskapur
Ávöxtun sf. hefur lagt upp laupana, og óttast er aö við
það tapi bláeygir fjármagnseigendur tugum miljóna.
Uppgjöf Ávöxtunar er á ýmsan hátt lærdómsrík, bæði
að því sem snýr að aðstæðum eigendanna, afskiptum
ríkisvaldsins, viðbrögðum kolleganna og almennri fjár-
geymslu og fjárávöxtun.
Avöxtunardæmið er til dæmis að því leyti lærdómsríkt
fyrir venjulegt fólk sem þarf að geyma peninga að fyrir-
tækið bauð tiltölulega mjög mikinn gróða af því að fela fé í
sínar hendur, en þegar félagið nú stendur ekki við sitt
gerir lögmálið sem viðskiptamenn Ávöxtunar gengust
undir ekki ráð fyrir neinni sérstakri samúð með þolendun-
um. Ávöxtunarmöguleikarnir voru í þessu tilviki liður í
happdrætti sem skólabækurnar í viðskiptafræðideild
kenna: mikil áhætta - mikill hugsanlegur gróði, örugg
hirsla - lítill hugsanlegur gróði.
Það er aftur sérkennilegt að þetta skólabókarlögmál
hefur ekki fengið að virka annarstaðar í öllu vaxtafrelsinu
hérsíðari árin. Þvert á móti hafa ráðamenn -viðskiptajöfr-
ar og stjórnmálamenn- tekið ákvörðun um hávexti á nær
áhættulausum innlánum sem ættu samkvæmt eðli máls
að hafa lágmarksvexti, -vexti nánast í kurteisisskyni.
Þessi leikur hefur verið valinn á lokuðum heimamarkaði
sem er nógu lítill til þess að hægt hefur verið að keyra í
himinhæðir vexti á útlánum. Gróðinn af hrikalegum mun á
inn- og útlánum hefur að lokum lent hjá allra stærstu
fjármagnseigendunum, helst þeim sem eiga stærstu
fjármagnsfyrirtækin.
Viðbrögð forsvarsmanna í systurfyrirtækjum Ávöxtun-
ar eru einnig lærdómsrík. Þeir berja sér á brjóst og þakka
guði sínum fyrir að vera ekki einsog Ármann tollheimtu-
maður, og er þó munurinn sá helstur að Grámann í Fjár,
bróðir hans í Kaup og frændi þeirra í Verð eru betur
tengdir inní valdakerfið á sviði fjármála og stjórnmála og
hafa því ekki, enn að minnsta kosti, lent jafn illa útúr
klandrinu í atvinnulífinu.
Hugsanlegt fjármálamisferli Ávöxtunarmanna er í
rannsókn og rangt að fella neina dóma þarum. Hins-
vegar eru afskipti viðskiptaráðherra af málinu ekki enn
farin í opinbera rannsókn og þessvegna full ástæða til að
viðra þau í opinberri umræðu. Einsog kunnugt er benti
Ólafur Ragnar Grímsson fyrir hönd efnahagsnefndar Al-
þýðubandalagsins á alvarlegar brotalamir á fjármagns-
markaðnum fyrir tæpum þremur vikum og krafðist þess
að viðskiptaráðherra gripi inní. Ráðherrann sagðist þá
hafa skipað nokkrar nefndir til að athuga málin, -hann
ætlaði að ná samstöðu um tillögur að reglum um þetta
áður enn nokkuð yrði aðhafst, -þetta gengi sinn eðlilega
gang milli ráðgefenda, þingflokka og ráðherra og yrði
vonandi til umfjöllunarfljótlega eftir að þing kæmi saman.
Jón Sigurðsson sá sumsé enga ástæðu til athafna.
Hagsmunir fjármagnseigenda ýttu ekki við honum, og
hann virtist hvorki sjá hættu fyrir atvinnulíf tengt fjárm-
agnsmarkaðnum né neinar líkur á óróleika í fjármálalífinu.
Nú er hinsvegar komið í Ijós að undirmenn viðskipta-
ráðherrans í bankaeftirlitinu vissu af ástandinu í Ávöxtun
löngu áður en Ólafur Ragnar benti á vandann. Og Þórður
Ólafsson forstöðumaður bankaeftirlitsins segir beinlínis í
samtali við Þjóðviljann í gær að „heimildir til að grípa til
aðgerða eða úrræða" hafi verið „af skornum skammti".
Viðskiptaráðherrann sagði í sjónvarpinu í fyrrakvöld að
ábending efnahagsnefndar Alþýðubandalagsins og
Ólafs Ragnars hefði verið „slettirekuskapur". Sem merkir
„óviðeigandi afskiptasemi“ samkvæmt orðabók Menn-
ingarsjóðs.
En sem kunnugt er af vaxtamálum telur viðskiptaráð-
herra mestalla stjórnun efnahagsmála óviðeigandi, ef
ekki hreina ókurteisi. Hin ósýnilega hönd á að stjórna fyrir
ráðherrann.
En meðan ráðherrann telur hlutverk sitt að verja rétt
handarinnar ósýnilegu verður hann að gangast undir
ábyrgð af verkum sömu handar. Nú síðast í Avöxtun.
-m
KLIPPT OG SKORIÐ
Launalækkun
Á fundum ráðherra með for-
ystumönnum í ASÍ hefur ríkis-
stjórnin ekki getað lagt fram
neinar aðrar hugmyndir til
lausnar efnahagsvandanum en
þær að skera niður laun. Eftir að
búið var með bráðabirgðalögum
að afnema 2,5% samnings-
bundna launahækkun átti enn að
höggva í sama knérunn. Nú var
hampað tillögum forstjóranefnd-
arinnar, sem á hátíðastundum er
kölluð bjargráðanefndin, um 9%
beina launlækkun.
Þessa leið kalla ráðherramir
niðurfærslu og samtímis umræð-
um um beina lækkun launa er tal-
að óljóst um að verðlag muni
lækka þannig að afkoma
launþega versni ekki. Það er
eftirtektarvert að ráðherramir
em ekki að tala um beinar að-
gerðir til að lækka verðlag. Þótt
þeim flökri ekki við að setja
bráðabirgðalög, sem segja fyrir
um þróun vinnulauna, treysta
þeir sér engan veginn til að beita
svipuðum aðferðum við að ná
niður verðlagi, að setja t.d. vexti
niður „með handafli". Á því sviði
eiga markaðsöflin ein að fá að
ráða.
Óréttlæti
Það skrýtna er að ráðherrarnir
eru ekki enn búnir að afskrifa
niðurfærsluleiðina þótt Þjóð-
hagsstofnun hafi sýnt fram á að
hún sé ákaflega óréttlát, m.a.
vegna þess að hún bitnar ekki
jafnt á öllum. Það er ekki sjálf-
gefið að lögbundin launalækkun
nái til allra launþega. Þjóðhags-
stofnun metur það svo að lög-
bundin niðurfærsla launa myndi
ekki ná nema til 40-45%
launþega með vissu. Hjá meiri en
helmingi launþega réðist það að
miklu leyti af markaðsaðstæðum
hvort launin Iækkuðu samkvæmt
lagaboði og hjá allt að fimmtungi
launþega er talið víst að launin
héldust óbreytt.
Vinnuskjal frá Þjóðhagsstofn-
• un, sem sýndi að upphafsaðgerð
niðurfærslunnar, þ.e. lækkun
launa, yki óréttlætið í þjóðfé-
laginu, lá frammi á fundi ráð-
herra með forsvarsmönnum ASÍ
í fyrradag. Mat stofnunarinnar
var að lækkun launa um 9%
leiddi til 2-3% lækkunar vöru-
verðs og að sú lækkun kæmi ekki
fram fyrr en að 2-3 mánuðum
liðnum. Varla var unnt að fá fram
afdráttarlausari dóm um að það
leiddi til umtalsverðrar kjara-
skerðingar að lögbinda launa-
lækkanir en láta markaðinum
eftir að færa niður vöruverð. Nið-
urstaðan er kjaraskerðing sem
lenti með fullum þunga á tæpum
helmingi landsmanna en stór
hluti hins helmingsins slyppi.
Engu að síður var niðurfærslan
það eina sem ráðherrarnir höfðu
til málanna að leggja.
Ásmundi svarað
Og það voru ýmsar aðrar fróð-
legar upplýsingar lagðar fram á
þessum fundi. Ásmundur Stef-
ánsson forseti ASÍ hafði óskað
eftir svörum við ákveðnum
spurningum fyrir þennan fund.
Og svörin, sem ríkisstjómin hafði
látið embættsimenn sína vinna,
voru mörg hver á þá leið að þau
hefðu átt að koma í veg fyrir allar
frekari hugleiðingar ráðherranna
um forstjóraleiðina.
Þar kom m.a. fram að stórlega
mætti bæta afkomu frystihúsanna
ef vextir yrðu lækkaðir. Þá er
ekki verið að tala um
nafnvaxtalækkun sem fylgir
minnkandi verðbólgu en heldur
þó vaxtastiginu alltaf jafnhátt yfir
verðbólgustiginu. Breyting á
nafnvöxtum hefur, segir í svörum
við spurningum Ásmundar,
„fyrst og fremst áhrif á greiðslu-
stöðu fyrirtækja en ekki rekstrar-
afkomu.“ Þarna var rætt um
raun vaxtalækkun.
f svörunum kom einnig fram
að ríkissjóður gæti aukið tekjur
sfnar um 2.700 miljónir króna á
ári með því að taka upp 10% við-
bótarskattþrep á allar tekjur yfir
100 þúsund á mánuði. Sá öáig-
snúni jöfnuður Jóns Baldvins, að
allir greiði sama skatthlutfall,
kostar sitt.
Þá kom og fram að skattstofn,
sem ríkisstjórnin hefur ekki fyrir
nokkurn mun viljað nýta sér,
nemur a.m.k. 3.500 miljónum
króna á ári og án efa er þar vægt
reiknað. Hér er átt við vaxtatekj-
ur umfram verðbætur, þ.e. raun-
vaxtatekjur. Stóreignamenn hafa
rakað saman vaxtatekjum, og
þurfa ekki að greiða af þeim
skatt, á meðan skattlögð er hver
króna sem launamaðurinn vinnur
sér inn eftir að skattleysismörk-
um er náð.
Vísað til vegar
Þannig var í svörum ríkis-
stjómarinnar til forseta ASÍ tald-
ar upp fjölmargar leiðir sem fara
má til að bæta afkomu atvinnu-
veganna og nota til að stoppa í
gatið í fjárlögum ríkisins. Ráð-
herrarnir sátu með ábendingar
um aðrar leiðir en þær að ganga
að launamönnum og lækka kaup
þeirra „með handafli“. En þeir
sáu ekkert annað en forstjóra-
leiðina og vildu enn fá að vita
hvernig mönnum litist á að lög-
binda kauplækkun upp á 9%.
Forsvarsmenn ASI höfðu sagst
vilja hlusta á hvað ráðherrarnir
hefðu fram að færa. Á fundinum í
fyrradag kom það skýrt fram:
Launalækkun til viðbótar afnámi
samningsbundinna hækkana. í
gær kom svo miðstjóm og for-
menn landssambanda ASÍ saman
til að ræða stöðuna. Átti að fara í
frekari viðræður við ráðherra,
viðræður sem eingöngu snerust
um launalækkun?
Niðurstaðan var skýr: algjört
skilyrði fyrir frekari viðræðum er
að þær snúist ekki um lækkun
launa.
Ný staða
Þeir, sem tamt er að hugsa um
stöðu manna og völd, telja að
forseti ASÍ hafi styrkt mjög stöðu
sína en að þeir verkalýðsforkólf-
ar sem fylgja stjórnarflokkunum
að málum hafi að sama skapi orð-
ið að láta undan síga.
Margir telja að forseti ASÍ hafi
orðið undir á þeim miðstjórnar-
fundi sem lét það eiga sig að mót-
mæla Iögbanni á samningsbundn-
ar launahækkanir 1. september
og lýsti í þess stað yfir vilja til að
ræða við ríkisstjórnina. Telja þeir
að afstaða hans hafi þá verið mun
harðari. Nú er aftur álitið að
stuðningsmenn stjórnarinnar
innan ASÍ hafi orðið að láta í
minni pokann. Þeir hafi ekki talið
sér vera stætt á að heimta áfram-
haldandi viðræður við ráðherra
sem ekkert vildu ræða annað en
launalækkun. ÓP
Þjóðviljinn
Síðumúla 6-108 Reykjavík
Sími 681333
Kvöldsími 681348
Útgaf andl: Útgáf ufélag Þjóðviljans.
Rltstjórar: Ámi Bergmann, MðrðurÁmason, OttarProppé.
Fréttastjórl:Lúðv(kGeirsson.
Bla&amenn: Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pétursson,
HjörleifurSveinbjörnsson, KristóferSvavarsson.Magnfnður
Júlíusdóttir, Magnús H. Gíslason, Lilja Gunnarsdóttir, OlafurGfslason,
Páll Hannesson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, SævarGuðbjðmsson, Þor-
finnur Ómarsson (Iþr.).
Handrlta-og prófartcalestur: Elias Mar, Hildur Finnsdóttir.
Ljósmyndarar:EinarÖlason,JimSmart.
Útlltstelknarar: KrisKán KrisKánsson, Kristbergur O. Pétursson
Framkvœmdastjórl :HallurPállJónsson.
Skrlf stofustjóri: Jóhanna Leópoldsdóttir.
Skrlfstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristln Pétursdóttir.
Auglýsingast|óri: Olga Clausen.
Auglýslngar: Guðmunda Kristinsdóttir, Unnur
Ágústsdóttir, Sigurrós Kristinsdóttir.
Sfmavarsla: Sigriður Kristjánsdóttir, Þorgerður Sigurðardóttir.
Bflstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Útbrelðslu-og afgrelðslustjórl: Bjöm Ingi Rafnsson.
Afgrelðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
Innheimtumenn: Katrfn Bárðardóttir, Ólafur Bjömsson.
Útkeyrsla, afgrel&sla, rltstjórn:
Sf&umúla 6, Reyk|avlk, slmar: 681333 & 681663.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrotogsetnlng: Prentsmiðja Þjóðviljanshf.
Prentun: Blaöaprent hf.
Verfi f lausasölu: 70 kr.
Nýtt helgarblað: 100 kr.
ÁskrlftarverA á mánuði: 800 kr.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvlkudagur 7. september 1988