Þjóðviljinn - 07.09.1988, Side 11
IÞROTTIR
Ingvar Guðmundsson er við öllu búinn ef boltinn skyldi skjótast í hann. A bak við hann er svo Siqurjón Kristiánsson sem var óheppinn að
skora ekki í leiknum. Mynd: E. Ól.
Evrópukeppnin
Sanngjam Valssigur
Furstadœmisliðið Monaco átti ekkertsvar við snjöllum leik Vals
Valsmenn unnu glæsilegan sigur á Frakklandsmeisturum Monaco í
fyrri leik liðanna í Evrópukeppni meistaraliða í gærkvöld. Lið Monaco
kom á óvart með sviplausum leik sínum en Valsmenn voru betri þegar á
leikinn leið og uppskáru að lokum eins marks sigur, 1-0, sem var í
minnsta lagi miðað við marktækifæri liðanna. Atli Eðvaldsson skoraði
eina mark leiksins og var hann jafnframt yfirburðamaður á vellinum.
Annars lék Valsliðið mjög skynsamlega í leiknum, tók enga áhættu og í
síðari hálfleik áttu gestirnir ekkert svar við lcik þeirra.
1. deild kvenna
Rúmlega sjö
mörk að
meðaltali
Valsstúlkur
langefstar
Fjórtándu og síðustu umferð 1.
deildar kvenna lauk um síðustu
helgi og voru hvorki fleiri né færri
en 29 mörk skoruð í fjórum
leikjum. Það gerir rúmlega sjö
mörk í hverjum leik og greinilegt
var að liðin tóku sina síðustu leiki
misalvarlega.
Valur-Fram........10-0(5-0)
Eins og við höfum þegar greint
frá luku Valsstúlkur mótinu með
sannfærandi sigri á Fram, og með
tveimur mörkum skaust Bryndís
Valsdóttir upp fyrir Jónu Krist-
jánsdóttur á lista markaskorara
með 12 mörk.
ÍA-KR.............6-1 (3-0)
Akurnesingar hreinlega yfir-
spiluðu afspymulélega KR-inga á
sunnudaginn. Halldóra Gylfa-
dóttir skoraði 3 mörk fyrir heima-
menn, Jónína Víglundsdóttir 2 og
Sigurlín 1, en Helena Ólafsdóttir
gerði mark KR-inga. Með þessu
tapi glopruðu KR-ingar öðru sæt-
inu úr höndum sér, en áttu e.t.v.
ekki betra skilið eftir mjög mis-
jafnt gengi í sumar. Lið Akraness
hefur aftur á móti farið vaxandi
með hverjum leik í sumar og á
þetta unga lið framtíðina fyrir
sér.
ÍBÍ-Stjarnan......0-4 (0-2)
Stjaman tók við öðru sætinu af
KR með góðum sigri á ísfirðing-
um sem falla í aðra deild. Ragna
Lóa Stefánsdóttir (2), Laufey
Sigurðardóttir og Anna Sigurðar-
dóttir skomðu mörkin í leiknum.
ÍBK-KA............2-6 (1-1)
Eftir góða baráttu í fyrri hálf-
leik gekk hvorki né rak hjá
Keflvíkingum í þeim síðari, allar
flóðgáttir opnuðust og KA-
stúlkur skomðu hvert markið af
öðm. Leikurinn var ekki ýkja
mikilvægur fyrir liöin og ein-
kenndist hann af dálitlu kæru-
leysi, en mörkin létu ekki á sér
standa. Mörkin skomðu: Eydís
Marinósdóttir 3, íris Thorleifs 2
og Inga Birna 1 fyrir norðan-
menn, en Anna María
Sveinsdóttir og Kristín Blöndal
skorðu fyrir heimasætur.
Valur Lokastaða .14 12 2 0 49-3 38
Stjarnan 14 8 3 3 35-13 27
KR . 14 8 3 3 31-21 27
(A . 14 7 4 3 34-11 25
KA .14 7 1 6 34-24 22
ÍBK . 14 4 2 8 17-33 14
(Bí ... 14 1 1 12 6-53 4
Fram ... 14 1 0 13 6-53 3
Atli Eðvaldsson
Ég er mjög ánægður með
þennan sigur en við hefðum engu
að síður getað gert miklu betur.
Þetta er sama sagan og gegn Sov-
étmönnum, við nýtum ekki séns-
ana. Við spiluðum þennan leik
mjög vel og það kom á óvart hvað
þetta var auðvelt. Hvað seinni
leikinn varðar þá skulu þeir svo
sannarlega fá að hafa fyrir því að
vinna okkur og það er allt opið í
þeim leik.
Guðni Bergsson
Að sjálfsögðu er ég ánægður
með leikinn, við stefndum að
sigri og okkur tókst að klára það
dæmi. Þetta er að vísu ekki mikið
Daufur fyrri háifleikur
Leikurinn var frekar daufur í
fyrri hálfleik en þá léku Vals-
menn á móti norðan stinnings-
kalda þannig að nokkuð var á
brattann að sækja fyrir þá. Mon-
aco náði þó ekki að skapa sér
nein umtalsverð marktækifæri;
fyrir aftan sterka Valsvörn var
Guðmundur Baldursson mjög
öraggur í markinu. Frakkarnir
vom mun meira með boltann og
gætti stundum nokkurrar tauga-
veiklunar hjá Valsmönnum þeg-
ar þeir náðu boltanum.
Besta marktækifæri hálf-
ieiksins var á síðustu mínútunni
þegar Valur Valsson fékk bolt-
veganesti fyrir seinni leikinn en
það er einfaldlega vegna þess að
við náðum ekki að nýta færin
okkar. Það kom mér mjög á óvart
hvað þeir sýndu lítinn lit í
leiknum, það var enginn broddur
í þessu hjá þeim og það má segja
að sterkt Valslið hafi gengið frá
þessu liði.
Þorgrímur Þráinsson
Með þessum sigri eigum við
raunhæfa möguleika á að hanga á
núlli í seinni leiknum og komast
áfram í keppninni, en sá leikur
verður svona fjómm sinnum erf-
iðari. Þá munu þeir að sjálfsögðu
leika meiri sóknarleik en þeir eru
sérstaklega gott heimalið. Þeir
vora slakari en við bjuggumst við
ann á lofti vinstra megin í vítateig
Monaco. Hann skaut viðstöðu-
laust framhjá markinu en hefði
jafnvel átt að reyna að taka bolt-
ann niður.
Valsmenn taka völdin
Áhorfendur voru ekki sáttir
við gang mála í fyrri hálfleik enda
bar þá mjög fátt til tíðinda. Þetta
átti eftir að breytast, Valsmenn
vom miklu ákveðnari í síðari
hálfleik og léku af mun meiri yfir-
vegun. Strax á 50. mínútu skaut
Sævar Jónsson rétt framhjá eftir
hornspyrnu en sex mínútum síðar
náðu Valsmenn forystunni.
Guðni Bergsson byggði skemmti-
og geta áreiðanlega miklu meira,
en þetta er sigur fyrir íslenska
knattspymu. Það má segja að við
spiluðum þennan leik af mikilli
skynsemi og ég var hálfhissa á að
áhorfendur vom nokkuð óþolin-
móðir í fyrri hálfleik en þá lékum
við á móti vindinum.
Sigurjón Kristjánsson
Markið dugði okkur til sigurs í
leiknum líkt og í bikarkeppninni
en óvíst er hvort það er nóg. Þetta
var mjög erfiður leikur fyrir mig
þar sem ég þurfti að hlaupa mjög
mikið en það er ekki sambærilegt
að leika þennan leik og venjulega
leiki hér heima. Það var sem þeir
brotnuðu niður eftir að ekkert
hafði gengið hjá þeim í upphafi.
lega upp sóknarlotu með einu af
sínum frægu hlaupum upp miðju
vallarins. Hann sendi boltann á
Val Valsson á vinstri kanti, sem
gaf góða sendingu á Atla Eð-
valdsson og honum urðu ekki á
nein mistök og skoraði ömgglega
framhjá Ettori í marki Monaco.
Eftir þetta höfðu Valsmenn
tögl og hagldir á vellinum og gáf-
ust aðkomumennimir hreinlega
upp. Sigurjón Kristjánsson fékk
tvö ágæt færi á að skora en mis-
tókst og Atli átti góðan skalla
eftir hornspymu seint í leiknum
sem Ettori varði. Á lokamínút-
unum var sem leikmenn Monaco
væru farnir að tefja frekar en að
reyna að jafna metin og höfðu
greinilega játað sig sigraða.
Liðsheildin skóp sigur
Þrátt fyrir daufan fyrri hálfleik
var sigur Valsmanna fyllilega
sanngjarn. Þeir unnu þennan leik
fyrst og fremst á liðsheildinni og
Ég er ekkert smeykur við seinni
leikinn, maður verður að halda
sjálfstraustinu, og hlakka bara til
að fara til Monaco.
Glenn Hoddle
Við lékum þennan leik mjög
illa og sluppum með aðeins eins
marks tap. Venjulega er
mönnum refsað með þriggja
marka tapi þegar þeir leika eins
og við lékum hér í kvöld, en Vals-
menn léku af mikilli skynsemi í
leiknum og vom óheppnir að
vinna ekki stærri sigur. Valsliðið
vinnur á sterkri liðsheild, en engu
að síður ættum við að hafa þá í
síðari leiknum á okkar heima-
velli.
stóðu fáir upp úr í liðinu. Guð-
mundur Baldursson var sem áður
sagði öryggið uppmálað í mark-
inu og þá var vörn þeirra mjög
sterk með Guðna Bergsson sem
besta mann en Þorgrímur Þráins-
son og Sævar Jónsson skiluðu
vamarhlutverki sínu einnig vel.
Á miðjunni var Ingvar Guð-
mundsson sterkur og Guðmund-
ur Baldursson og Valur Valsson
ágætir á köntunum. Magni
Blöndal Pétursson og Hilmar Sig-
hvatsson stóðu vel í Frökkunum
en glötuðu boltanum of mikið frá
sér. Atli var síðan besti maður
vallarins og lék gjarnan úti um
allan völl. Hann hélt boltanum
mjög vel þegar hann fékk hann
og skilaði honum jafnframt yfir-
vegað frá sér. Fremstur var Sigur-
jón Kristjánsson og átti nokkuð
erfitt með sterka varnarmenn
Monaco en skapaði engu að síður
mikla hættu.
Lið Monaco kom á óvart með
slökum leik. Fyrstu mínúturnar
leit út fyrir franskan sigur en þeir
kunnu mótlætinu illa og sluppu
fyrir horn í síðari hálfleik. Liðið
er sérstaklega sterkt á heimavelli
sínum en þó er ekki útilokað að
það verði slegið út úr keppni
strax í fyrstu umferð. Það yrði svo
sannarlega móðgun við franska
knattspyrnu en að sama skapi
mikil lyftistöng fyrir okkur Is-
lendinga. -þúm
Fótbolti
Barcelona
í kvöld
Eitt frægasta knattspyrnulið
heims, Barcelona, leikur við
Fram í kvöld kl. 18.15. Framarar
hafa fulla ástæðu til að vera bjart-
sýnir ef þeir leika eins og þeir eru
vanir enda þótt móthejarnir séu
engir aukvissar í faginu. Fjöl-
mennum á völlinn og sjáum ann-
an íslenskan sigur!
-þóm
Miðvikudagur 7. september 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Sagt eftir leik
Óheppnir að vinna ekki stæna