Þjóðviljinn - 07.09.1988, Qupperneq 16
pblSPURNINGINmb
Hvað gerir kóngur?
(Spurt í Hvassaleitis-
skóla)
Tinna Margrét
Rögnvaldsdóttir,
8 ára:
ÞAAÐ veit ég ekki.
Heimir Gunniaugsson,
10 ára:
Kóngurinn? Hann ræður öllu.
PJÓÐVIUINN
Mlðvikudagur 7. september 1988 198. tðlublað 53. árganour
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Ólafur V Noregskonungur fór í sína aöra heimsókn að Mógilsá á Kjalarnesi í gær, en Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins var upphaflega
komiö á fót fyrir norskt gjafafé. Mynd: E.ÓI.
Konungsheimssókn
Gott skógræktarsamstarf
Þrándur Rögnvaldsson,
10 ára:
Hann lætur þjóna sér og ræður
líka yfir einhverju. Hann er til að
stjórna.
Arnar Guðjónsson,
10 ára:
Kóngurinn stjórnar, en hann
ræður samt ekki yfir eins miklu og
í gamla daga.
Magnea Árnadóttir,
10 ára:
Það er svo margt sem hann gerir,
og hann ræður líka soldið.
Ólafur Vskoðar ávöxt gjafar Norðmannafrá 1961 að Mógilsá á Kjalarnesi
Veðrið skartaði sjnu fegursta í
gærmorgun er Ólafur V Nor-
egskonungur heimsótti Rann-
sóknarstöð Skógræktar ríkisins
að Mólgilsá á Kjalarnesi, í fylgd
gestgjafa síns frú Vigdísar Finn-
bogadóttur forseta ísland.
Er Ólafur V var hér á ferð fyrir
27 árum færði hann íslendingum
að gjöf eina miljón norskra króna
frá norsku þjóðinni og skyldi
henni varið til að efla skógræíct á
íslandi. Meginþorra gjafarinnar
var varið til að koma á fót
rannsóknastöðinni að Mógilsá,
því talið var að slík miðstöð
rannsókna myndi framar öllu
tryggja farsæla framtíð skógrækt-
armála á íslandi.
Frá því að Haraldur ríkisarfi
Noregs vígði rannsóknastöðina í
ágúst 1967, hefur vaxið upp
myndarlegur skógarlundur að
Mógilsá og eru þar nú stundaðar
margþættar rannsóknir á þeim
trjátegundum, sem vænlegastar
eru til skógræktar á íslandi.
Meðal þeirra sem tóku á móti
Ólafi Noregskonungi og fvlgdar-
liði í gær voru Jón Helgason land-
búnaðarráðherra og Sigurður
Blöndal skógræktarstjóri. í
ávarpi sínu rakti Sigurður þá
löngu og einstæðu samvinnu, sem
hefur verið milli þjóðanna á sviði
skógræktarmála og líkti henni við
þróunaraðstoð af hálfu Norð-
manna.
Allt frá árinu 1949 hafa verið
skipulagðar ferðir milli land-
anna, þar sem hópur fólks hefur
unnið við að gróðursetja tré í
landi gestgjafans. Yfir 800 ís-
lendingar hafa þannig plantað
skógi í 12 norskum fylkjum og
álíka margir Norðmenn lagt hönd
á plóginn við að græða upp ís-
land. I máli Sigurðar kom einnig
fram að fyrsti íslendingurinn lauk
námi í skógræktarfræðum í Nor-
egi árið 1937 og alls hafa 16 ís-
lendingar numið þau fræði í Nor-
egi, á sama tíma og aðeins 6 hafa
sótt nám á því sviði til einhverra
annarra landa.
mj
rúm 20 ár hafa verið stundaðar margþættar rannsóknir á trjágróðri á
Mógilsá og þar er búið að rækta upp nokkra skógarlundi.
Hvað ætlar stjórnin þá að gera?
Allt í klessu í frystingunni,
landbúnaðurinn á hausnum,
kreppir að fjármagnsfyrirtækjun-
um, óvinsældir I skoðana-
könnun, ægilegur halli...