Þjóðviljinn - 19.10.1988, Page 8
ERLENDAR FRÉTTIR
Bandaríska kosningabaráttan
Dukakis hrapar í áliti
Bush talinn sigurviss í 18 ríkjurn
Heldur báglega horfír nú fyrir
Michael Dukakis, ríkisstjóra í
Massachusetts og frambjóðanda
demókrata til forsetaembættis, í
kosningabaráttunni um það emb-
ætti, líklega það valdamesta í
heimi. Hann þótti ekki standa sig
ýkja vel í sjónvarpseinvíginu við
George Bush, varaforseta og
frambjóðanda repúblíkana, í vik-
unni sem leið og síðan hrynur
fylgið af honum, ef marka má
niðurstöður skoðanakannana.
Niðurstöður síðustu skoðana-
könnunar voru birtar á mánu-
dagskvöld og samkvæmt þeim
nýtur Bush nú hylli 55 af hundr-
aði kjósenda, en Dukakis hefur
aðeins 38 af hundraði með sér.
Fyrir mánuði bentu niðurstöður
skoðanakönnunar til þess að
Bush hefði fylgi 44 af hundraði
kjósenda en Dukakis 41 af
hundraði.
Bush virðist hafa mikinn meiri-
hluta kjósenda með sér í 18 ríkj-
um og sæmilega sigurmöguleika í
15 í viðbót. Dukakis hefur greini-
lega yfirburði í aðeins sex ríkjum
og sæmilega sigurmöguleika í
þremur í viðbót. Vinni Bush í
öllum 33 ríkjunum, þar sem hon-
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
AB Hafnarfirði
Aðalfundur ABH
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Hafnar-
firði verður haldinn, miðvikudaginn 19. október
kl. 20.30 í Skálanum, Strandgötu 41.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf.
Olafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra
mætir á fundinn og ræðir um Nýja ríkisstjórn og
nýja stjórnarstefnu.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin
ABfí
Borgarmálaráðsfundur
Fundur í borgarmálaráði ABR í dag, 19. október, kl. 16.00 að Hverfisgötu
105. Ath: Breyttan fundartíma.
Alþýðubandalagið I Keflavík og Njarðvík
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Keflavík og Njarðvík verður haldinn
laugardaginn 22. október kl. 15 í Iðnmeistarafélagshúsinu, Tjarnargötu 7.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) önnur mál.
Fólagar og stuðningsmenn eru hvattir til að mæta.
AB Ólafsvík
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsfélagins íÓlafsvíkverðurhaldinn sunnu-
daginn 23. okt. í Mettubúð og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Almennar umræður.
Stjórnin
AB Akranesi
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins á Akranesi verður haldinn laugar-
daginn 22. október kl. 14.00 í Rein.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Önnur mál.
Stjórnin
Alþýðubandalagið fíeykjavík
Félagsfundur ABR
Ný ríkisstjórn - baráttan framundan
Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra og formaður Alþýðubanda-
lagsins hefur framsögu og svarar fyrirspurnum á almennum félags-
fundi ABR fimmtudaginn 20. október kl. 20.30 að Hverfisgötu 105.
Félagar fjölmennið
Stjórnin
Ólafur Ragnar
Ég þakka auðsýnda samúð vegna andláts móður minnar
Sigríðar Ebenezerdóttur
21. september 1988 á Akranesi.
Haraidur Jóhannsson
um nú vegnar betur samkvæmt
niðurstöðum könnunarinnar, fær
hann 303 kjörmenn kosna. Þar
með væri honum sigurinn vís, því
að það dugar að fá 270 kjörmenn
til að fá sig kjörinn forseta. Ríkin
níu, sem hallast að Dukakis, gefa
ekki af sér nema 105 kjörmenn.
Bandarísku forsetakosning-
arnar eru sem sé óbeinar. Sá
frambjóðandi sem fær meirihluta
atkvæða í einhverju ríki fær alla
kjörmenn þess. í átta ríkjum
virðast frambjóðendurnir mjög
jafnir, samkvæmt könnunarnið-
urstöðunum, og eru þar á meðal
vesturríkin Kalifornía, Oregon
og Washington. í þessum átta
ríkjum eru kjörnir 130 kjörmenn,
sem hugsanlega gætu ráðið úr-
siitum, og er nú talið að kosning-
abaráttan muni héðan af verða
hvað áköfust um hylli kjósenda
þar. Reuter/-dþ.
Bush í ræðustól með þjóðfánann að baki - er honum sigurinn
þegar vís?
ísrael
Palestínumönnum
hraðfjölgar
Ráðast úrslitin ísvefnherbergjunum?
loksins gifta sig. Síðan eignast ef þær hafa þá ekki skilið áður.“
þær í hæsta lagi eitt barn eða tvö, Reuter/-dþ.
Líbanon
Alger upplausn
framundan?
Talsmaður ísraelskrar rann-
sóknastofnunar, óháðrar
stjórnarvöldum, skýrði svo frá í
gær að stofnunin hefði komist að
þeirri niðurstöðu, að arabar í
Vesturbakkahéruðunum og á
Gazaspildunni væru að minnsta
kosti 200.000 fleiri en ísraelsk
stjórnarvöld hafa hingað til talið.
Þau hafa áætlað tölu araba á þess-
um svæðum um hálfa aðra milj-
ón, en ekkert gagngert manntal
hefur farið fram á svæðunum frá
því að ísrael vann þau af Jórdan-
íu og Egyptalandi í sexdagast-
ríðinu 1967.
Samkvæmt niðurstöðum
rannsókna téðrar stofnunar hefur
aröbum á svæðum þessum fjölg-
að um 75% frá lokum þess stríðs,
eða á rúmlega 20 árum. Voru
þeir, samkvæmt sömu heimild,
rúmíega 970.000 í stríðslok, en
eru nú um 1.7 miljónir. Háttsettir
menn í stjómsýslu ísraels á her-
numdu svæðunum telja að þessar
tölur séu réttar. Auk arabanna
búa nú tæplega 70.000 Gyðingar
á svæðum þessum.
Ætla má að þessi mikla fjölgun
sé ein af undirrótum óeirðanna á
hemumdu svæðunum undan-
farna tíu mánuði. Samfélög, þar
sem tiltölulega mikill hluti íbú-
anna em ungir menn og ung-
lingar með miður glæsilegar
framtíðarhorfur, em yfirleitt tal-
in í eldfimara lagi. ísraelar hafa
fyrir sitt leyti miklar áhyggjur af
mikilli fjöigun araba, bæði á her-
teknu svæðunum og í ísrael
sjálfu, því að ísraelum sjálfum
fjölgar lítið. Palestínu-Arabi
nokkur sagði fyrir skömmu við
erlendan fréttamann: „Úrslit
baráttunnar milli okkar og ísra-
ela ráðast að líkindum í svefnher-
bergjunum. Okkar konur eiga
mörg börn hver, en þær ísraelsku
eyða bestu ámm ævinnar til að
mennta sig og njóta lífsins, eins
og þær kalla það, áður en þær
Sjaldan hefur horft ófriðvæn-
legar en nú í því hrjáða landi
Líbanon, sem hefur verið undir-
lagt af borgarastrfðum, hrylli-
legri óöld og hernaðaríhlutunum
erlendis frá í s.l. 13 ár. Eftir að
kjörtímabili Amins Gemayel fors-
eta lauk 22. sept., mistókst
kristnum mönnum og múslímum
að koma sér saman um myndun
nýrrar stjórnar og varð niður-
staðan sú, að hvorir um sig mynd-
uðu stjórn.
Styðja Sýrlendingar stjórn
múslíma, en írakar þá kristnu.
Þessi klofningur hefur og komið í
Tilkynnt var í Stokkhólmi í dag
að Frakkinn Maurice Allais hefði
fengið hagfræðiverðlaun Nóbels
þetta árið. Prófessor Assar Lind-
beck, formaður veitinganefndar
Konunglegu sænsku vísindaaka-
demíunnar, sagði við það tæki-
færi að ekki væri ofmælt að kalla
Allais föður nútíma hagvísinda
veg fyrir kjör nýs forseta. í gær
bættist það ofan á að Líbanons-
þingi mistókst að kjósa sér þing-
forseta, þar eð þingmenn hinna
kristnu létu ekki sjá sig. Er þing-
ið, hingað til eini sameiginlegi
vettvangur hinna stríðandi aðila,
þá lamað, enda sagði elsti þing-
maðurinn, sjítaleiðtoginn Kazem
al-KhaliI sem er 84 ára, að nú
væri Líbanon dautt. Margir eru á
sama máli, óttast vaxandi skál-
möld á ný og að Líbanon leysist
nú endanlega upp í nokkur eða
mörg dvergríki hinna ýmsu trú-
flokka þar. Reuter/-dþ.
með Frökkum. „Hann er risi í
heimi hagfræðilegrar skil-
greiningar," sagði Lindbeck. Al-
lais, sem er 77 ár að aldri, er
þekktastur fyrir rannsóknir á
stórum einokunarfyrirtækjum í
ríkiseign. Peningurinn sem hann
fær nemur um 19 miljónum ísl.
króna. Reuter/-dþ.
Frakki fékk
nóbelsverðlaun
í hagfræði
8 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 19. október 1988