Þjóðviljinn - 27.10.1988, Qupperneq 1
Fimmtudagur 27. október 1988 234. tölublað 53. órgangur
Hvalveiðar
Viðhorfsbreyting á alþingi
SteingrímurHermannsson: Ákvörðunþarfað liggjafyririnnan skamms tíma. MargrétFrímannsdóttir: Afstaða
þingmanna hefur breyst. Friðrik Sophusson: Ummœliforsœtisráðherra hafa spilltfyrir. Snarpar umrœður
Margt bendir til þess að við-
horf þingmanna til hinna
svokölluðu vísindaveiða á hvai
séu að breytast. Vísindaáætlunin
hefur verið látin meira og minna
óáreitt af þinginu en atburðir síð-
ustu daga virðast ætla að breyta
því. Á þingmönnum er að heyra
að það þýði ekki að halda fyrri
stefnu til streitu. Snarpar um-
ræður urðu í gær á þingi um hval-
amálið og má búast við að þær
haldi áfram í vikunni. Steingrím-
ur Hermannsson forsætisráð-
herra sagði í gær að ríkisstjórnin
hefði ekki tekið endanlega
ákvörðun í málinu. Ákvörðun
yrði byggð á tillögum sjávarút-
vegsráðherra og hana yrði að
taka innan skamms tíma.
„Ég finn í viðræðum við þing-
menn að afstaða þeirra hefur
breyst frá því sem áður var,“
sagði Margrét Frímannsdóttir
þingflokksformaður Alþýðu-
bandalagsins. Hún sagði erfitt að
kyngja því að viðhorfsbreyting
yrði á efnahagslegum forsendum
en ekki vegna þess að vísinda-
veiðarnar hefðu ekki skilað því
sem búist var við, sem væri nægj-
anleg ástæða til að hætta veiðum
strax. Margrét sagðist eiga von á
því að þingið leiddi sjávarútvegs-
ráðherra á rétta braut í málinu.
Margrét telur ummæli sjávar-
útvegsráðherra um vísindamenn í
háskólanum, í tilefni útskriftar-
ræðu háskólarektors, vera ósann-
gjörn. Vísindamenn háskólans
hefðu aldrei mælt á móti hvala-
rannsóknum, heldur sagt að vís-
indaveiðarnar bættu engu við þau
gögn sem fyrir lægju.
Friðrik Sophusson varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins sagði
að sér sýndist vera mikill vilji
fyrir því innan þingsins að fjallað
verði um málið þannig að þing-
mönnum og fulltrúum þingflokk-
anna í utanríkisnefnd gæfist kost-
ur á að ræða það út frá nýjustu
skýrslum, og að afstaða verði
tekin út frá því. Yfirlýsingar ein-
stakra ráðherra, sérstaklega for-
sætisráðherrans hefðu spillt fyrir
málinu og aukið á óvissuna og
gert ákvarðanir erfiðar. Þetta
mál hefði klofið þjóðina hingað
til, en miklu skipti að ráðamenn
héldu þannig á málinu að út á við
gætu menn verið vissir um ein-
drægni stjórnvalda. Einstakar
hótanir viðskiptaaðila íslendinga
ætti að taka alvarlega.
Svipaður tónn var í öðrum
þingmönnum sem Þjóðviljinn
ræddi við. Páll Pétursson þing-
flokksformaður Framsóknar-
flokks átti þó síður von á stefnu-
breytingu en það gæti vel hugsast
að menn finndu aðrar leiðir til að
ljúka vísindaáætluninni en að
drepa hvali. Málið væri í stöðugri
endurskoðun. Jóhann Einvarðs-
son Framsóknarflokki sagðist
halda að þingmenn vildu fara ró-
lega í málið og taka yfirvegaða
ákvörðun, jafnvel þó stefnunni
yrði síðan breytt. -hmp
Sjá síðu 2 og leiðara
um Þorgeir Hávarsson
á vísintíaveiðum síðu 4
Sovétríkin
Föngum heitið
frelsi
Að sögn Helmuts Kohl, sam-
bandskanslara Vestur-Þýska-
lands, hafa sovéskir ráðamenn
heitið honum því að allir pólitísk-
ir fangar í Sovétríkjunum skuli
verða látnir lausir fyrir næstu ára-
mót. Þetta eru mikil og gleðileg
tíðindi og bera ljósan vott um þær
breytingar í mannúðar- og
frjálsræðisanda, sem orðið hafa
og eru að verða á sovéska samfé-
laginu undir hinni nýju forustu.
Giskað er á að um 250-300 sam-
viskufangar séu nú í Sovétríkjun-
um. Einnig stendur til að breyta
lagagreinum, sem notaðar hafa
verið gegn pólitískum andófs-
mönnum, eða afnema þær.
Sjá síðu 9
*
Ferðaskrifstofa Islands
Kaupin í rannsókn
Samgönguráðuneytið rannsakar hvort starfsmenn Ferðaskrifstofu
ríkisins hafi farið í kringum lögin um sölu Ferðaskrifstofunnar með
samningum við Eimskip
Hörður Sigurgestsson, for-
stjóri Eimskip, sagði í samtali við
Þjóðviljann í gær, að það hefði
verið rætt, áður en starfsmenn
Ferðaskrifstofu ríkisins ákváðu
að kaupa meirihluta hlutabréfa í
fyrirtækinu og stofna Ferðaskrif-
stofu íslands, að Eimskip myndi
styðja við bakið á starfsmönnum.
Hann sagði einnig að það hefði
verið rætt að Eimskip keyptu
þriðjung af hlutabréftinum af
starfsmönnum.
í nefndaráliti samgöngunefnd-
ar Alþingis frá sl. vori kemur
fram að nefndin líti svo á að frum-
varpið um að selja starfsfólki
66% hlutafjárins í fyrirtækinu
miði að því að meiri hlutinn í hinu
nýja hlutafélagi flytjist til starfs-
manna. „Heimildarákvæði frum-
varpsins verði því að eins beitt að
samkomulag náist við starfsmenn
um kaup á hlutafénu.“
Forsenda þess að Ferða-
skrifstofunni var breytt í hlutafé-
lag var því að starfsmenn eignuð-
ust meirihluta í fyrirtækinu.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans er samgönguráðuneytið
nú að kanna hvort starfsmenn og
Eimskip hafi gert með sér sam-
komulag með það fyrir augum að
Eimskip kæmi inn sem eignar-
aðili, jafnvel áður en starfsmenn
voru orðnir formlegir eigendur.
Hvort kaup starfsmanna hafi því í
raun bara verið til málamynda og
því andstæð anda laganna.
Sjá síðu 3