Þjóðviljinn - 06.12.1988, Qupperneq 3
FRETTIR
Verkalýðshreyfingin
Fundað fyrir samningsrétti
BSRB, ASÍ, BHMr, SÍBogKÍásameiginlegumfundiálaugardagí Háskólabíói.
Ögmundur Jónasson: „Afnám samningsréttar mannréttindabrot. Augljóstað launafólk á að
borgafyrir bruðl og vaxtaokurfrjálshyggjunnar. Sýnum andstöðu meðþvíað mœta “
011 helstu samtök launafólks,
BSRB, ASÍ, BHMr, SÍB og
KÍ munu halda sameiginlegan
fund í Háskólabíói næstkomandi
laugardag og mun efni fundarins
verða baráttan fyrir endur-
heimtingu samningsréttarins.
Þeir forystumenn sem Þjóðviljinn
ræddi við lögðu áherslu á mikil-
vægi þess að launafólk mætti vel á
fundinn svo það sýndi í verki,
andstöðu sína við afnám samn-
ingsréttarins og þær fyrirsjáan-
legu kjaraskerðingar sem fram-
undan væru.
Ögmundur Jónasson, formað-
ur BSRB sagði að þessi fundar-
boðun sýndi að samtök launa-
manna væru tilbúin að snúa
bökum saman til varnar
mannréttindum í landinu.
„Samningsréttur er mannréttindi
og þegar sá réttur er tekinn af
fólki er framið mannréttinda-
brot. Þetta viljum við gera
stjórnvöldum ljóst. Ýmsar yfir-
lýsingar úr þeim herbúðum síð-
ustu daga sýna svo ekki verður
um villst að nú er þörf á að standa
vörð um heimilin. Frjálshyggjan,
með sínu bruðli og vaxtaokri er á
góðri leið með að leggja allt í rúst
í landinu og nú virðast menn í
alvöru vera farnir að tala um að
láta launafólk borga brúsann.
Þetta gengur vitaskuld ekki og ég
er sannfærður um að launafólk
vill sýna andstöðu sína. Það getur
það gert í verki með því að mæta á
fundinn á laugardaginn,“ sagði
Ögmundur.
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ sagði að tilefni þessa fundar
væri það að forystumönnum
þessara samtaka þætti ástæða til
að gefa almenningi tækifæri til að
koma viðhorfi til samningsréttar-
ins á framfæri. „Við erum rétt
komin af þingi ASÍ og skammt er
liðið frá þingi BSRB og önnur
þau samtök sem þarna verða hafa
verið að gera ályktanir í þessum
málum, þannig að það er eðlilegt
að samtök sem þessi fylki sér
saman um aðgerð sem þessa,“
sagði Ásmundur. Ásmundur
sagði að mestu máli skipti að
stjórnvöld fyndu fyrir þeim þrýst-
ingi frá almenningi sem gæti t.d.
skapast með fundi sem þessum og
því skipti miklu máli að fólk
mætti á þennan fund og sýndi
þannig samstöðu sína og and-
stöðu sína gegn samningsréttar-
sviptingunni.
Áðspurður um kæru ASÍ til
ILO, Álþjóðavinnumálastofnun-
arinnar út af afnámi samnings-
réttarins sagði Ásmundur að
greinargerð hefði ekki borist frá
íslensku ríkisstjórninni fyrir fund
þeirrar nefndar sem fjallaði um
Hafnarfjörður
Banaslys
í
höfninni
Ungur piltur drukknaði, er bíll
fór út af Norðurgarðinum í Hafn-
arfirði aðfararnótt sl. sunnudags.
Slysið var um hálffjögur leytið
um nóttina en mikil hálka var á
hafnarbakkanum. 6 ungmenni
voru í bílnum og björguðu fimm
þeirra sér á land og gerðu lög-
reglu viðvart. Kafarar frá björg-
unarsveitinni Fiskakletti fundu
félaga þeirra í bflnum. Hann hét
Kjartan Gunnar Kjartansson 19
ára nemi úr Reykjavík. -Ig.
málið í nóvember. Því hefði ekki
verið forsenda til að taka málið
þá efnislega fyrir og það yrði því
ekki gert fyrr en á næsta fundi
sömu nefndar sem haldinn yrði í
febrúar eða mars. „Við væntum
þess að við fáum það staðfest að
lögin brjóti í bága við þær alþjóð-
legu samþykktir sem ísland hefur
gerst aðili að í vinnuréttarmálum
og staðfest fyrir sitt leyti,“ sagði
Asmundur Stefánsson. phh
Sigríður Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, Árni Gunnarsson formaður
stjórnar hennar og Hanna Pálsdóttir sem situr í stjórn hennar kynntu í gær fjársöfnun stofnunarinnar sem fer
fram í desember og ber yfirskriftina „Brauð handa hungruðum heimi“. Mynd Jim Smart.
Hjálparstofnun kirkjunnar
Ekkert hjálparstarf
án söfnunar
Árni Gunnarsson: Allt útlitfyrir minnaframlag til þróunarhjálpar á
nœsta ári. Sigríður Guðmundsdóttir: Alltokkarhjálparstarf byggirá
framlagi íslensku þjóðarinnar í desember
Ef fer sem horfir, munum við á
næsta ári veita minna fé í þró-
unaraðstoð en við höfum gert í
langan tíma. Ætlunin er sam-
kvæmt fjárlagafrumvapinu sem
nú liggur fyrir Alþingi að veita
0,06% af vergri þjóðarfram-
leiðslu í þróunaraðstoð. í ár var
veitt 0,07%, en til þess að geta
borið okkur saman við nágranna-
þjóðirnar þarf að tífalda þessa
tölu, sagði Árni Gunnarsson for-
maður stjórnar Hjálparstofnun-
ar kirkjunnar um leið og hann
kynnti söfnunarátak sem stofnun-
in gengst fyrir í desember.
Nú þegar hafa verið sendir
gíróseðlar og söfnunarbaukar á
hvert heimili í landinu, og er það
von forráðamanna Hjálparstofn-
unarinnar að þeim verið vel
tekið. Einnig verða útikerti til
sölu, og mun ágóðinn renna
óskiptur í hjálparstarfið.
- Á því ári sem nú er að líða,
hefur stofnunin haft mörg járn í
eldinum, þó aðallega í Afríku og
Asíu. Sem dæmi má nefna að nú
er verið að ljúka við byggingu
barnaheimilis fyrir munaðarlaus
börn í Eþíópíu, sagði Sigríður
Guðmundsdóttir framkvæmdar-
stjóri Hjálparstofnunarinnar og
bætti við að þeim bærust stöðugt
beiðnir um aðstoð. Síðast í dag,
sagði hún, kom beiðni frá Suður-
Súdan, en þar ríkir nú ein sú ver-
sta hungursneyð sem um getur.
Hjálparstofnunin hefur nærri
eingöngu rekið sitt hjálparstarf
fyrir þá peninga sem safnast í des-
ember ár hvert. í fyrra söfnuðust
um 17 miljónir kr. í ár gera for-
ráðmenn söfnunarinnar sér vonir
um að safna allt að 24 miljónum
kr.
Þó aðallega sé veitt fé til bág-
stadds fólks í löndum þriðja
heimsins, styður Hjálparstofnun-
in einnig við bakið á ýmissi starf-
semi hér á landi. Þannig veitir
hún Kvennathvarfinu 500 þúsund
kr. styrk, í þeim þrengingum sem
það hefur staðið í að undanförnu.
-sg
Alþingi
Halldór
boðar
kjararýrnun
Halldór Ásgrímsson:
Fiskvinnslufyrirtækin
þola ekki kauphœkkanir.
Mörg fyrirtœki geta ekki
haldið áfram eftir áramót
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra sagði í utandag-
skrárumræðuni á Alþingi í gær,
að staða sjávarútvegsins væri
þannig að hann gæti ekki staðið
við skuldbindingar sínar í fram-
tíðinni. Horfast þyrfti í augu við
það að þjóðin hefði orðið fyrir
kjararýrnun, sem þyrfti að jafna
út yfir alla og lækka þyrfti laun.
Ljóst væri að fjöldi fyrirtækja
fengi ekki fyrirgreiðslu hjá At-
vinnutryggingarsjóði og leysa
þyrfti þeirra mál ineð nauðung-
arsamningum eða gjaldþrotum.
Ekki yrði komist hjá mikilli upp-
stokkun hjá fyrirtækjum í sjávar-
útvegi og frumkvæðið ætti að
koma frá fyrirtækjunum sjálfum.
En það væri eðlilegt að Atvinnu-
tryggingasjóður kæmi þar inn í.
Stjórnarandstöðuflokkarnir
stóðu sameiginlega að utandag-
skrárumræðum um stöðuna í
sjávarútvegi í gær. Það er fátítt að
flokkarnir sameinist um að biðja
um utandagskrárumræðu, venju-
lega eru það einstakir þingmenn
eða þingflokkar sem það gera.
Þorsteinn Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins hóf um-
ræðuna og sagði ekki lengur hægt
að una við bráðabirgðalausnir,
og bað sjávarútvegsráðherra að
gera grein fyrir nauðsynlegum
aðgerðum til lausnar vanda sjáv-
arútvegsins.
Halldór sagði ljóst að mörg
fiskvinnslufyrirtæki gætu ekki
hafið starfsemi sína aftur eftir
áramótin. Rekstur hefði þegar
stöðvast hjá nokkrum þeirra,
ekki bara vegna rekstrarstöð-
unnar, heldur líka vegna hráefn-
isskorts. Hann sagði að koma
þyrfti í veg fyrir gengisfellingu og
minnka þyrfti yfirvinnu og lækka
laun. Eiginfjárstaða fyrirtækja
hefði verið rýrð, með háum vöxt-
um og fjármagnskostnaði og með
of mikilli neyslu innanlands.
-hmp
/
Afengismálið
Þorvaldur ver áfengiskaupin
Þorvaldur Garðar Kristjánsson: Guðrún Helgadóttir að ófrægja mig
semfyrrverandiforseta. Fjármálaráðherra kemurþetta ekki við. Guð-
rún Helgadóttir: Handhafar réttlausir sem einstaklingar
Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son fyrrverandi forseti sam-
einaðs Álþingis og þingmaður
Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörð-
um, kvaddi sér hljóðs utan dag-
skrár á þingi í gær, og sagði Guð-
rúnu Helgadóttur forseta samein-
aðs Alþingis hafa gefið glað-
beittar yfirlýsingar í áfengismál-
inu. Guðrún hefði gefið til kynna
að handhafar forsetavalds hefðu
ekki umræddan vínkauparétt,
sem væri rangt og órökstutt af
hennar hálfu. Þorvaldur spurði
hvers vegna Guðrún væri að ó-
frægja forvera sinn í forsetastóli
með þessum hætti.
Guðrún Helgadóttir gerði at-
hugasemdir við ræðu Þorvaldar,
sem hún sagði byggða á misskiln-
ingi. Hún sagðist hafa verið spurð
af fjölmiðlum um reglur í þessum
málum og svarað þeim spurning-
um. Forseti sameinaðs þings
hefði sem einstaklingur ekki rétt
til að kaupa áfengi á sérkjörum,
samkvæmt samþykkt ríkisstjórn-
ar frá 1971 hefði þetta verið tekið
af forseta. Handhafar forseta-
valds hljóti allir eða enginn að
koma fram fyrir hönd forseta lýð-
veldisins. Sagðist Guðrún ekki
muna eftir því að þeir hefðu gert
það, þar sem áfengi hefði verið
haft um hönd.
Það kom fram í ræðu Þorvaldar
Garðars að hann lítur á kaup á
áfengi á sérkjörum sem hluta af
risnu embættis fofseta sameinaðs
þings. Forseti þurfi oft að taka á
móti gestum á heimili sínu. Hann
sagði Ólaf Ragnar Grímsson hafa
staðið fyrir fjölmiðlafári með á-
fengismálinu. Fjármálaráðherra
hefði ekkert að gera með hand-
hafa forsetavalds og áfengiskaup
þeirra. Afskipti hans væru brot á
stjórnskipunarlögum. Gaf Þor-
valdur í skyn að Ólafur væri að
beita eftirlitshlutverki Ríkis-
endurskoðunar í pólitískum til-
gangi.
Þetta sagði Ólafur Ragnar vera
misskilning hjá þingmanninum.
Ef þingmenn vildu að upplýsing-
ar af þessu tagi kæmu alfarið
beint frá Ríkisendurskoðun gæti
hann beitt sér fyrir því. En ef
þingmenn vildu að svona upplýs-
ingar væru alls ekki birtar styddi
hann það ekki. Ólafur sagði að
eftir yfirlýsingar Magnúsar Thor-
oddsen um að áfengiskaup hans
væru þau sömu og hjá hand-
höfum forsetavalds í fortíðinni,
hefði honum þótt rétt að verða
við óskum fjölmiðla um að upp-
lýsa hvernig þau kaup hefðu ver-
ið.
Ólafur Þ. Þórðarson Fram-
sóknarflokki þakkaði Ríkisendu-
rskoðun fyrir hennar afskipti af
málinu og fjármálaráðherra fyrir
hans afskipti. Hann þakkaði
Guðrúnu einnig fyrir hógværa
yfirlýsinga forsetaembættisins til
fjölmiðla. En hann harmaði að
fyrrverandi forseti sameinaðs
þings hefði ekki farið rétt með
tölur um sín áfengiskaup. -hmp
Þriðjudagur 6. desember 1988, ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3