Þjóðviljinn - 06.12.1988, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 06.12.1988, Blaðsíða 13
ERLENDAR FRÉTTIR Palestína Stúlka skotin fia7R Nú árið er liðið og Israelsmenn eru við sama heygarðshornið. „Þjóð sœtir refsingu“ „Þjóö sætir refsingu." Sigurviss palestínskur kvenfangi undir ísraelskum gaddavír. Israelskir hermenn skutu unga námsmey til bana í gær. Hún haf'ði skömmu áður tekið þátt í mótmælaaðgerðum í hópi félaga í Shatí-flóttamannabúðunum á Gazasvæðinu. Tveir aðrir Palest- ínumenn voru særðir skotsárum. Ekki er öll sagan sögð því að auki var ungur snáði, 8 ára gamall, limlestur af ísraelskum her- manni. Dátinn skaut hann gúmmíkúlu í bakið af stuttu færi. Sá hefur væntanlega átt „hendur sínar að verja“. Ismah Abu Ibada var aðeins 12 ára gömul. Að sögn sjónarvotta var hún í slagtogi með fleiri snót- um á líku reki sem grýtt höfðu hermenn við skóla Sameinuðu þjóðanna í Shatí-búðunum. Þeg- ar hún átti örfá spor óstigin að heimili sínu skaut hermaður hana í hnakkann. Herstjórnin rak íbúa Shatí innfyrir dyr húsa sinna þegar víg- ið spurðist og bannaði þeim út- göngu. Blaðamenn voru þegar í stað reknir í braut. Svo miklu var talið skipta að losna við heimspressuna að dátar mölvuðu rúður í leigubíl sem ók starfs- mönnum CBS sjónvarpsstöðvar- innar bandarísku inná svæðið. í fyrradag gáfu palestínsk mannréttindasamtök út skýrslu um gerræði og ofbeldisverk ísra- elshers á herteknu svæðunum umliðið ár. Uppreisn Palestínu- manna, „intifada", hófst sem kunnugt er þann 9. desember í fyrra. Er farið hörðum orðum um herraþjóðina í skýrslu þessari og heitið á samfélag þjóðanna að leggja málstað Palestínuinanna lið. Titill skýrslunnar er „Þjóð sæt- ir refsingu". Höfundar nefna sig „Al-Haq“ eða Lög í þágu mann- anna. Þeir staðhæfa að fallnir Palestínumenn séu á fimmta hundrað (Reuterstalan er 329). 20 þúsund menn hafi meiðst eða örkumlast. 145 heimili lögð í rúst í trássi við ákvæði laga. Lokaorðin eru þessi: „Hörku- leg viðbrögð Israelshers við upp- reisn Palestínumanna eru ekki í neinu samræmi við alþjóðareglur og brjóta í bága við allt skikkan- legt siðferði...þeir ganga lengra en áður hefur verið gert í ofbeld- isverkum og yfirgangi.“ Reutersmenn báru skýrslu þessa undir formælenda ísraels- hers, Moshe Fogel. Hann kvaðst ekki hafa lesið liana en viður- kenndi að dæmi væru þess að her- menn hefðu farið offari og unnið ill verk. Þeim hefði verið refsað einsog lög kvæðu á um. „Þjóð sætir refsingu" er byggð á upplýsingum frá sjúkrahúsum á herteknu svæðunum, Gaza og vestan Jórdanar, frásögnum starfsmanna Sameinuðu þjóð- anna og orðum sjónarvotta og fórnarlamba sem lögðu nöfn sín skriflega við vitnisburðina. Reuter/-ks. Vestur-Þýskaland Græningjar söðla um Frakkland Fúlltrúar á landsráðstefnu kollvarpa stjórn staðfastra manna og hefja sveigjanlega menn til metorða Ongþveiti í París Parísarbúar máttu enn sæta því í gær að komast ekki spönn frá rassi nema í einkabifreiðum ellegar með herflutningabílum. Almenningsfarartæki gengu ekki, hvorki strætisvagnar né neðanjarðarlestir, vegna verk- falls viðgerðarmanna. Það var sama hvar stigið var niður fæti um miðbik borgarinnar, hvar- vetna ríktu glundroði og ringul- reið. Hægrimenn hyggjast færa sér óstandið í nyt, einsog stjórnar- andstæðinga er háttur, og leggja í dag fram tillögu um vantraust á minnihlutastjórn sósíalistans Michels Rocards. Þótt menn búist ekki við öðru en því að forsætisráðherrann standist atlögu þessa þá er það skammgóður vermir þar eð vegið er að honum úr fleiri áttum. Verkalýðssinnar í Sósíalista- flokknum saka hann um fjand- skap í garð stéttafélaga og komm- únistar hóta öllu illu. Hundruð þúsunda Parísarbúa ferðast nær eingöngu með neð- anjarðarlestum (metró) dags daglega. Þeir eiga ekki sjö dag- ana sæla um þessar mundir þótt Rocard hafi lagt þá líkn með þraut að kveðja hermenn til fólksflutninga. Úm þúsund her- flutningabílar eru notaðir til þessa. Reuter/-ks. að er alkunna að í samtökum vesturþýskra Græningja ber mikið á tveim öndverðum fylk- ingum manna sem greinir á um stjórnlist eða leiðir að settu marki: grænum heimi sem byggð- ur er þenkjandi mönnum sem gæta hófs í skiptum sínum við móður náttúru. Vill annar flokk- urinn að leitað sé málamiðlana við jafnaðarmenn en hinn vill ekki hcyra minnst á slíka höfuð- villu. Önnur fylkinga þessara er gjarnan nefnd „realos“ og er skipuð sveigjanlegum og hóf- sömum raunsæismönnum. Hin kallast „fundis“ og þar eru menn staðfastir. Ýmsir herma að „fundis“ haldi sér dauðahaldi í einhverja „harða línu“. Græn- ingjar héldu landsþing sitt á dög- unum og fór sem margan uggði að „realos" og „fundis“ myndu ekki sitja á sárs höfði. Fram að föstudegi í fyrri viku höfðu hinir staðföstu „fundis“ tögl og hagldir í 11 manna forust- usveit samtakanna. En þá urðu mikil umskipti. Erkifjendurnir lögðu fram tillögu um vantraust á oddvitana og var hún samþykkt var með 214 atkvæðum gegn 186. Staðfastir Græningjar brugð- ust ókvæða við og undu illa mál- alyktum. Þeir létu ekki svo lítið að taka þátt í fundarhöldum á laugardaginn og var skertur þing- heimur orðinn uggandi. Enda lá við að hinir föllnu „fundis“ segðu skilið við samtökin og stofnuðu ný. En í fyrradag mættu þeir að nýju til þingstarfa, kváðust hafa lagst undir feld og hugsað sitt ráð. Niðurstaðan hefði orðið sú að staðfastir menn myndu starfa áfram innan vébanda Græningja- hreyfingarinnar, ekki að því að setja niður deilurnar, nei, nei, Kremlverjar skýrðu frá því í gær að mikill fjöldi verka- manna hefði verið rekinn frá störfum í lýðveldunum Armeníu og Azerbajdzhan fyrir þær sakir einar að vera af „öðru þjóðerni“. Kröfðust þeir þess að þegar í stað yrði gripið í taumana og endir bundinn á þessa ósvinnu. Harðorð yfirlýsing jressa efnis var lesin upp í sovésku sjónvarpi í gær og undirrituð af þeim Míkha- íl Gorbatsjov forseta og Nikolaj Ryzhkov forsætisráðherra. Hóta þeir hverjum þeim sem gerist sekur um „fjöldauppsagnir vegna þjóðernis" lögsókn og hegningu og brottvísan úr flokknum í of- análag. Tvímenningarnir fullyrða að ýmsir flokksforkólfa og embætt- ismanna í lýðveldunum tveim hafi tekið þátt í „þessu grófa broti á stjórnskipunarlögunum.“ í sjónvarpinu var greint frá því að yfirvöld í Jerevan, höfuðborg Armeníu, héfðu létt útgöngu- heldur skyldi róið að því öllum árum að ná fram hefndum. Lýstu „fundis" því yfir í heyranda hljóði að þeir hygðust gera samblástur gegn nýju forustusveitinni á næsta þingi, í mars á vori kom- banni af íbúum. Engu að síður væru hermenn hvarvetna á varð- bergi við mikilvæga bletti í mið- borginni. Fyrr í gær sagðist embættis- manni í Azerbajdzhan svo frá að hermenn hefðu þurft að beita valdi til þess að leysa upp fjölda- fund á aðaltorgi Bakú, höfuð- borgar lýðveldisins, í fyrradag. anda. Það getur trauðla talist goðgá að samsinna fjölvísum fréttaskýr- endum Reuters sem spá frekari væringum og róstum í herbúðum Græningja. Reuter/-ks. Stóð hann á því fastar en fótun- um að enginn hefði látið lífið þótt slegið hefði í brýnu og menn orð- ið sárir. Þrátt fyrir þessi orð hans og yfirlýsingar í útvarpi um hið sama söfnuðust menn saman urn miðbik Bakú í gær og veifuðu svörtum fánum líktog þeir syrgðu fallna félaga. Reuter/-ks. Sovétríkin Viðvömn að ofan Armenar og Azerar reka Armena og Azera unnvörpum úr vinnu Gorbatsjov og Ryzhkov á grafhýsi Leníns. Hóta öllu illu gerist menn sekir um valdníðslu af þjóðrembingi. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.