Þjóðviljinn - 06.12.1988, Blaðsíða 4
LIRARIK
RAFMAGNSVEmjR RlKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftirtilboðum í eftir-
farandi:
RARIK 88013 Innlend stálsmíði.
Opnunardagur: Þriðjudagur 20. desember 1988
kl. 14:00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyriropn-
unartíma og verða þau opnuð á sama stað að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns-
veitnaríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, frá
og með þriðjudegi 6. desember 1988 og kosta kr.
300,00 hvert eintak.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi118
105 Reykjavík
NÁMSGAGNASTOFNUN
Námsgagnastofnun
auglýsir eftir umsóknum
um starfslaun á árinu 1989
Verkefni höfunda geta verið af ýmsu tagi, s.s.
handrit að náms- og kennslugögnum í einhverri
grein, efni til sérkennslu, handrit að myndbandi,
þýðingar, tölvuforrit, lestrarefni o.fl. sem tengist
grunnskólum eða framhaldsskólum. Þá kemur til
greina að veita starfslaun til rannsókna sem
beinast að notkun námsefnis í grunnskólum og
mati á námsefni.
Með umsókn um starfslaun skal fylgja greinar-
góð lýsing á því efni sem áætlað er að vinna.
Fleiri en einn geta unnið að sama verki. Með
hliðsjón af umsókn verður ákvarðað um fjölda
starfsmánaða til hvers einstaks verks, allt að 6
mánuðum.
Ekki er gert ráð fyrir að viðkomandi gegni öðru
meginstarfi meðan hann nýtur starfslauna.
Starfslaun verða greidd samkvæmt launaflokki
BHMR1 148, 4. þrepi. Starfslaun eru greidd án
orlofsgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.
Námsgagnastofnun hefur einkarétt á útgáfu
efnis er þannig verður til í allt að þrjú ár eftir að
handriti hefur verið skílað. Ákveði námsgagna-
stjórn að gefa út handrit verður gerður útgáfu-
samningursamkvæmt reglum Námsgagnastofn-
unar. Starfslaun teljast þá hluti af endanlegri
greiðslu fyrir útgáfurétt verksins.
Frekari upplýsingar, m.a. um reglur um starfs-
laun, viðmiðanir stofnunarinnar um framsetningu
og frágang efnis og hugsanleg forgangsverkefni
gefur Hanna Kristín Stefánsdóttir upplýsinga-
fuiltrúi Námsgagnastofnunar.
Umsóknir skulu hafa borist Námsgagna-
stofnun í síðasta iagi fyrir 15. mars 1989.
Dagheimilið Furugrund
Fóstrur athugið
Okkur bráðvantar fóstrur til starfa. Vinnuhlutföll
gætu orðið frá 50-100%.
Hafið samband við forstöðumann í síma 41124
og fáið nánari upplýsingar um starfsemi og
launakjör. Einnig veitir dagvistarfulltrúi upplýs-
ingar í síma 45700.
Félagsmálastofnun Kópavogs
Kennarar Grindavík
Grunnskólann í Grindavík vantar, vegna forfalla,
kennara fyrir 7.-9. bekk frá og með 1. jan. 1989.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 92-
68504 og formaður skólanefndar í síma 92-
68304
MENNING
Nýr sýningarsalur
Gallerí Eva
Eva Benjamínsdóttir: Eg vil geta unnið að minni list
i
Það er ekkert einsdæmi að hafa
gallerí í hcimahúsi, þótt það
hafi kannski ekki verið gert mikið
að því hér á landi, segir Eva Benj-
amínsdóttir, sem fyrir skömmu
opnaði nýtt gallerí, Gallerí Evu,
heima hjá sér að Miklubraut 50,
beint á móti Kjarvalsstöðum.
Sem stendur sýnir Eva eigin
verk í galleríinu, vatnslitamyndir
og myndir unnar meö blandaðri
tækni, en ætlunin er aö bjóða
fólki að leigja salinn fyrir mynd-
listarsýningar og aðra listiðkun,
kammertónleika, ljóðalestur og
svo framvegis, og að taka myndir
í umboðssölu, - minn vinnustað-
ur er hér líka, segir hún, - og ég
hef ekkert á móti því að hér sé
einhver erill af fólki, því er ég
vön.
Eva útskrifaðist frá School of
the Museum of Fine Arts í Bost-
on og lauk BFA gráðu frá Tufts
University árið 1984. - Ég flutti
aftur hingað fyrir rúmlega
tveimur árum, í september 1986,
og var þá búin að vera í burtu í
ellefu ár, hafði bara komið hing-
að sem gestur, meðal annars til
að setja upp einkasýningu í Ás-
mundarsal 1983.
- Það gekk á ýmsu eftir
heimkomuna, það var töluvert
áfall að koma hingað í skamm-
degið beint úr eyðimörkinni i Ar-
izona. Svo ég fór að synda á
hverjum degi, hjólaði út á Sel-
tjarnarnes í sundlaugina, gerði í
stuttu máli það sem ég gat til að
halda sönsum. Ég gat lagt í að
eignast þessa íbúð með góðri að-
stoð fjölskyldunnar, og núna
finnst mér kominn tími til að gera
eitthvað í rnálinu og skapa mér
aðstæður til að vinna að myndlist-
inni af einhverri alvöru.
- Ég hef fengist við ýmislegt á
þessum tveimur árum. Kennt ís-
lensku í bandaríska sendiráðinu,
unnið á sólbaðsstofu, þrifið svita
og verið í fiskvinnu. En þótt það
sé kraftur í mér get ég ekki unnið
átta stunda vinnudag auk eftir-
vinnu, og sinnt myndlistinni eftir
það. Ég vil geta unnið að minni
Íist, ég lagði á mig langt nám og
erfiða tíma til að komast í gegn-
um þetta, svo ég ætla að þrjóskast
við.
- Mér fannst besti kosturinn
að gera íbúðina að galleríi. Ég
þurfti að gera ýmislegt fyrir hana,
meðal annars koma ljósunum í
lag svo ég gæti unnið hérna, og
þótt mér hafi boðist að halda sýn-
ingar í galleríum hérna sá ég að
þannig yrði kostnaðurinn of mik-
ill. Maður þarf að leigja galleríið,
og borga því þessi 25 prósent af
verði seldrar myndar, og þannig
hefði ég ekki átt neinn afgang.
Þar að auki getur verið tveggja
ára bið eftir sýningarsal, og ég er
ekki manneskja til að skipuleggja
eitthvað svo langt fram í tímann.
- Ég byrjaði á þessum mynd-
um sem ég sýni héma þegar aftur
fór að birta af degi. Þegar ég kom
aftur hingað hafði ég með mér
viðfangsefni sem ég ætlaði að fara
að vinna úr, en þau varð ég að
leggja til hliðar í bili. Vatnslita-
myndirnar eru til komnar af ein-
hvers konar sjálfslækningu. Ef
eitthvað frumefnanna kemur
fyrir í þeim er það vatnið, því
þangað leitaði ég til að halda
jafnvæginu á þessum fyrstu erf-
iðu árum.
- í myndunum, sem eru unnar
með blandaðri tækni, er mynda-
röð þar sem náttúra íslands er
viðfangsefnið, ég var kokkur í
fjallaferðum í sumar, og þarna er
viðfangsefnið hraunið, gos og
náttúruhamfarir, svo einhver
Eva Benjamínsdóttir: Nú verð ég aftur í sambandi við umheiminn.
Mynd - Jim Smart.
dæmi séu nefnd. Og síðan er ég
með fleiri myndir unnar með
blandaðri tækni þar sem við-
fangsefnin eru ýmsar
stemmningar, tilfinningamál,
skoðanir og hugleiðingar. Þessar
myndir skíri ég svo eftir því hvað
mér hentar og dettur f hug við að
skoða þær.
- Á námsárunum var ég líka í
skúlptúr, var alltaf í þrívíddinni
jafnhliða málverkinu. Ég þrái að
takast meira á við skúlptúrinn, en
það verður víst að bíða eitthvað,
því ég hef enga aðstöðu til þess,
svo hér er ég bara með módel.,
Þessi hef ég unnið í tré og gel,
gerðu úr akrýlmálningu, því
sama og er grunnurinn að stóru
málverkunum mínum.
- Ég er mjög bjartsýn á að ég
geti fengið gallerísdæmið til að
ganga upp, þótt ég sé bæði að
borga námslán og borga af íbúð-
inni, því ef út í það er farið er ég
meistari í að lifa af svo til engu,
lifði til dæmis af 7000 krónum á
mánuði árið 1987. Ég er ánægð
með að sjá fram á að hafa aftur
fólk í kringum mig, mér fannst ég
einangrast þegar ég kom hingað,
en nú verð ég aftur í sambandi við
umheiminn. Og svo er bara að
vinna að listinni, tæknina kanm
ég, hana lærir maður í skólum
þótt maður læri ekki að vera lista-
maður.
Sýning Evu verður opin í dag
kl. 15-21, en þá lýkur þessari
fyrstu sýningu í Gallerí Evu.
LG
Afmœli
Sigrún
Sveinsdóttir
85 ára
85 ára varð í gær, mánudaginn
5. desember, Sigrún Sveinsdóttir
verkakona, Skúlaskeiði 20 Hafn-
arfirði.
Sigrún hefur alla tíð verið mikil
baráttukona í röðum hafnfirskra
sósíalista og sendir Þjóðviljinn
henni hugheilar afmæliskveðjur.
4 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Þriðjudagur 6. desember 1988