Þjóðviljinn - 06.12.1988, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 06.12.1988, Blaðsíða 16
þJÓÐVIUINN Þriðjudagur 6. desember 1988 262. tölublað 53. örgangur SIMI 681333 Á KVÖLDIN CQ4040 ÁLAUGARDÖGUM 681663 Hér sjá fjögur heimatilbúin jólatré. Tréð sem er annað frá hægri er frá 1910 og var í eigu Sigurðar Fjalarssonar á Horni á Hornströndum. Þjóðminjasafnið Jólasveinar í sauðalitunum / # Þjóðminjasafnið opnar ídag jólasýningu sína. Ymsir munir og minjar sem tengjast jólasiðum til sýnis. íslensku jólasveinarnir koma íheim- sókn á sýninguna þegar þeir tínast ofan af fjöllunum —SPURNINGIN— Á aö halda út tveimur fé- lögum sem annast milli- landaflug? AlexanderIngason Samkeppni er til bóta fyrir okkur. Það er ekki góð reynsla af því ef eitt fyrirtæki getur í kraft einok- unar ráðið verði á þjónustu. Eva Einarsdóttir Já mér finnst það nauðsynlegt að hafa hér tvö flugfélög. Það hlýtur að leiða til þess að við getum ferðast ódýrara til útlanda. Þorvaldur Gröndal Það finnst mér alveg sjálfsagt. Hitt er svo annað mál ef þau geta ekki gengið án þess að þiggja ríkisstyrki veit ég ekki hvort það er þess virði. Bjarni Runólfsson Ég veit nú ekki hvort það er þörf á tveimur flugfélögum. Það liggur í augum uppi í að neytendur njóta góðs af samkeppni, en það fer í verra ef við skattborgarnir þurf- um að borga með rekstri þessara flugfélaga. Jón Sigurður Halldórsson Mér finnst nauðsyrilegt að hafa hér tvö flugfélög. Án samkeppni er hætt við einokun og hún getur aldrei leit neitt gott af sér. Við erum fyrst og fremst að sýna ýmsar útgáfur á íslenska jólasveininum, það hefur stund- um verið sagt um hann að þar fari jólasveinn í sauðarlitunum, sagði Bryndís Svcrrisdóttir. Hún hefur ásamt öðrum starfsmönnum Þjóðminjasafnsins unnið að því undanfarna daga að setja upp jól- asýningu safnsins. Sýningin verður opnuð í dag á degi heilags Nikulásar, og mun hann mæta og segja frá lífshlaupi sínu ásamt útlitsbreytingum sem hann hefur mátt þola hálft annað árþúsund. Á sýningunni má sjá ýmsa muni og minjar sem tengj- ast jólasiðum. Þar verða gömul heimatilbúin jólatré, jólakort, jólaskraut, jólasveinar af ýmsum gerðum, Grýla og Leppalúði. - Við höfum hér til sýnis jóla- tré sem Sigurgeir Fjalarson sem bjó á Horni á Hornströndum fékk árið 1910 þegar hann var 4 ára og notað hann það öll sín ár. Tréð er gert úr umbúðapappír, og er ákaflega skrautlegt, sagði Bryndís. Mánudaginn 12. desember kemur fyrsti íslenski jóla- sveinninn í heimsókn þrettán dögum fyrir jól, og munu síðan hver af örðum heimsækja safnið eftir því sem þeir tínast í byggð. Gert er ráð fyrir að börn muni taka á móti þeim kl. 11.00 á morgnanna. Sýningin verður opin daglega kl. 11-16 og stendur hún fram á þrettándann. Þetta er Stekkjarstaur sem hun Hlín Pálsdóttir teiknaöi fyrir jólin í fyrra. Börn og unglingar Sendiö okkur myndir af jólasveinunum Jólasveinar áforsíðufrá og með nœstu helgi Líkt og síðustu ár birtir Þjóð- viljinn skemmtilcgar teikningar af jólasveinum á forsíðunni síð- ustu dagana fyrir jólin. Að sjálfsögðu fylgjum við ís- lenskum hefðum og birtum myndir af jólasveinunum 13 síð- ustu 13 dagana fyrir jólin. Þar sem von er á Stekkjarstaur í bæ- inn mánudaginn 12. desemberen Þjóðviljinn kemur ekki út á mán- udögum, þá birtum við mynd af vininum um næstu helgi og síðan koll af kolli þangað til þeir bræður eru allir komnir til byggða. Oll börn og unglingar eru hvött til að teikna mynd af uppáhalds- jólasveininum sínum og senda til okkar á Þjóðviljanum, Síðumúla 6, 105-Reykjavík. Við veljum síðan úr 13 myndir á forsíðuna og sendum teiknurunum jólagjöf. Vinsamlegast notið aðeins rauðan og svartan lit í myndun- um. Byrjið strax að teikna og sendið myndirnar til okkar hið fyrsta. Þau sem vinna við að setja upp jólasýningu Þjóðminjasafnsins hafa hér komið sér vel fyrir í stofu frá fjórða áratuginum sem sett hefur verið upp á jólasýningu safnsins. Mynd Jim Smart Þau sem vinna við að setja upp jólasýningu Þjóðminjasafnsins hafa hér komið sér vel fyrir í stofu frá fjórða áratuginum sem sett hefur verið upp á jólasýningu safnsins. Mynd Jim Smart

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.