Þjóðviljinn - 06.12.1988, Qupperneq 11
Nýjar bækur — Nýjar bækur — Nýjar bækur
Stríðssaga
Kosinskys
Bók desembermánaðar hjá
Veröld er komin út og er það
skáldsagan Skræpótti fuglinn
eftir Jerzy Kosinsky. Hér er um
að ræða frásögn ungs drengs frá
Austur-Evrópu um vitfirringu
síðari heimsstyrjaldarinnar, sem
byggð er á eigin reynslu höfund-
arins. Þetta er margverðlaunuð
og heimsfræg bók.
Jerzy Kosinsky er fæddur í Pól-
landi, en fluttist til Bandaríkj-
anna árið 1957. Hann kenndi um
árabil við háskólana Princeton og
Wesley, en frá árinu 1970 hefur
hann verið prófessor í bók-
menntum við hinn fræga Yale-
háskóla.
Skræpótti fuglinn er fyrsta
skáldsaga Kosinskys. Hún kom
út árið 1965, en síðan hefur hver
bókin rekið aðra. Ef til vil er
Being There þekktust þeirra,
ekki síst vegna þess að hún hefur
verið kvikmynduð eftirminnilega
með Peter Sellers í aðalhlutverki.
Bjarni Einarsson
Ritgerðir dr.
Bjarna Einars-
sonar
Dr. Bjarni Einarsson er virtur
fræðimaður á sviði íslenskra forn-
bókmennta. Hann lauk cand.
mag. prófi frá Háskóla íslands
árið 1943. Um árabil var hann
lektor í íslensku við Hafnarhá-
skóla og starfaði þá jafnhliða að
handritaútgáfum og rannsóknum
í Árnasafni. Síðar gerðist hann
sendikennari við Óslóarháskóla
og frá þeim skóla lauk hann dokt-
orsprófi árið 1971. Bjarni sneri
heim frá Noregi árið 1972 og var
þá ráðinn sérfræðingur við Stofn-
un Árna Magnússonar. Þar starf-
aði hann óslitið uns hann lét af
störfum vegna aldurs í árslok árið
1987.
í rannsóknum sínum hefur
Bjarni einkum fjallað um skáld-
asögurnar svokölluðu, sögur
fornskáldanna Egils Skallagríms-
sonar, Kormáks Ögmundar-
sonar, Hallfreðar vandræða-
skálds og Gunnlaugs ormstungu.
Niðurstöður þessara rannsókna
birti hann meðal annars í bók
sinni Skáldsögum sem út kom
árið 1961 og í doktorsritgerð sinni
Litterære forudsætninger for Eg-
iis saga (1975). Greinar eftir
Bjarna hafa birst víða í tímarit-
um, bæði hér heima og erlendis.
Sjötugsafmæli Bjarna 11. apríl
1987 var tiiefni þess að safnað var
saman á bók úrvali greina sem
hann hefur sent frá sér og nefnist
Mælt mál og forn fræði.
Rannsóknir fornbókmennta
skipa þarna veigamikinn sess, en
Bjarni hefur einnig fengist tölu-
vert við rannsóknir örnefna, og
um mælt mál, hið lifandi tungu-
tak þjóðarinnar, er hann smekk-
vís og traustur leiðbeinandi. í
bókarlok er birt skrá yfir öll rit-
verk Bjarna.
Ritstjóri bókarinnar er Sigur-
geir Steingrímsson.
Saga Sjómanna-
dagsráðs
Út er komin bókin Siglinga-
saga Sjómannadagsráðs eftir Ás-
geir Jakobsson. Þessi 50 ára saga
Sjómannadagsráðs í Reykjavík
og Hafnarfirði er mikil bók að
vöxtum, um 500 bls. og prýdd á
annað hundrað mynda. Bókinni
er skipt í fimm hluta. I. hluti er
um aðdragandann og fyrsta Sjó-
mannadaginn. II. hluti segir frá
árunum 1939 til 1961, og þar hefst
III. hlutinn. IV. hlutinn hefst
þegar Hrafnista í Hafnarfirði er
vígð 1977 og þar er yfirlit um öll
fyrirtæki Sjómannadagsráðs sem
nú eru í gangi: Hrafnistu í
Reykjavík, Hrafnistu í Hafnar-
firði, orlofshúsahverfi að
Hraunkoti í Grímsnesi, Laugar-
ásbíó, Happdrætti DAS og Sjóm-
annadagshaldið sjálft. í V. hluta
eru síðan skrár um vinningshafa á
Sjómannadaginn, alla þá sem
heiðraðir hafa verið, þá sem
hlotið hafa afreksverðlaun dags-
ins. Inn í þessa frásögn alla er
blandað sjávarútvegssögu tíma-
bilsins, einkum að því leyti, sem
breytingar í sókn og úthaldi skipa
hafa haft áhrif á sögu Sjómanna-
dagsins og sjómannslífið.
Bókin mun kosta 3.900,-
Móðir í
menntaskóla
Komin er út hjá Máli og menn-
ingu ný unglingabók eftir Andrés
Indriðason. Bókin heitir Ég veit
hvað ég vil og er sjálfstætt fram-
hald bókarinnar Með stjörnur í
augum.
Sif er í menntaskóla og nýbúin
að eignast barn með skólabróður
sínum, Arnari. Þau eru hætt sam-
an en ekki búin að gleyma hvort
öðru. Sagan fjallar um hvernig
menntaskólastúlkan tekst á við
ábyrgðna sem fylgir móðurhlut-
verkinu, um vanda og gleði sem
takast á hjá hinni einstæðu móð-
ur. Viðbrögð pabbans skipta ekki
síður máli, tilfinningar hans, ást
og togstreita. Sagan er sögð frá
sjónarhóli þeirra tveggja til
skiptis.
Bókin er 154 blaðsíður, unnin í
Prentsmiðjunni Odda en ljós-
mynd á kápu var tekin í Frostfilm
af Páli Stefánssyni.
Unglingar
á söguöld
Mál og menning hefur gefið út
unglingasögu eftir Guðlaugu Ric-
hter, Jóra og ég, og er þetta
önnur bók hennar um unglinga á
söguöld. Jóra er uppi á Suður-
landi í Heklugosi árið 1104. Flótt-
inn undan eldinum er barátta upp
á líf og dauða og óvíst hvað tekur
síðan við. Sögu þessarar stúlku
finnur ung Reykjavíkurstelpa í
fornu handriti og hún kemst að
því að þrátt fyrir það að aldir að-
skilji þær Jóru þá eiga þær ýmis-
legt sameiginlegt. Astin, vonin
og mannlegar tilfinningar eru
samar við sig. Bókn er saga um líf
og örlög tveggja ólíkra kynslóða.
Ljósmynd á kápu er eftir Egil
Sigurðsson og teikningar í bókina
gerði Ingibjörg Hauksdóttir.
Aö brjótast inn til
fullorðinna
Mál og menning hefur sent frá
sér fyrstu unglingabók Ólafs
Hauks Símonarsonar. Bókin
heitir Gauragangur og segir frá
Ormi Óðinssyni 16 ára og þeim
gauragangi sem fylgir því að
brjótast inn í fullorðinsheiminn.
Sagt er frá lífinu í skólanum og
utan hans, fjölskyldunni, félög-
unum og ástamálunum. Allt
þetta er býsna flókið en oft hlægi-
legt og mjög spennandi að taka
þátt í því öllu.
Bókin er 260 blaðsíður, unnin í
Prentsmiðjunni Odda en kápuna
gerði Guðjón Ketilsson.
Fyrstu oröin
Út er komin hjá Máli og menn-
ingu litmyndabókin 100 fyrstu
orðin eftir Edwina Riddell.
Bókin sýnir lítil börn í daglegu
lífi og í kringum þau eru allir
helstu hlutir sem þau þurfa að
læra að þekkja fyrstu árin. Bókin
er bendibók sem ætluð er til að
skoða með börnunum um leið og
þeim er kennt að ná valdi á fyrstu
orðunum.
Bókin er 28 blaðsíður í fullum
litum, prentuð í Hong Kong.
Þriðjudagur 6. desember 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Veganesti
Að lokum.
Síðustu Ijóð
Ólafs Jóhanns Sigurðssonar
Djúpskyggn, yfirlætislaus og hljómfagur
skáldskapur eftir eitt listfengasta skáld
þjóðarinnar. Fjallað er um mannleg verð-
mæti á vargöld og fallvaltleik tilverunnar,
um „bernskuvorið bjarta", óravíddir rúms
og tíma-og haustið sem enginn færflúið.
Vituriega samin Ijóð og fögur - þessi bók
erþérveganesti.
Laugavegi 18. Sími 15199-24240. Siðumúla 7-9. Simi 688577.
t
I
VIS NVlSnNOfdVONI